Fréttablaðið - 08.02.2012, Side 12
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR12
NÁMIÐ SKEMMTILEGRA Rasmus Borch upplýsingatækniráðgjafi segir nemendur í
Odder nú afla sér þekkingar á nýjan hátt og nota hana í nýju samhengi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
MENNTAMÁL Allir grunnskólanem-
endur í Odder í Danmörku, alls
2.200 talsins, hafa fengið spjald-
tölvur frá sveitarfélaginu til þess
að nota í skólanum. Það hafa kenn-
ararnir 400 einnig fengið.
„Nemendur eru himinlifandi.
Þeir eru ánægðir með að hafa
fengið spjaldtölvu sem þeir mega
nota að vild heima samtímis því
sem þeim þykir námið í skólanum
skemmtilegra. Kennararnir eru
einnig ánægðir. Þeir segja nem-
endur einbeittari og áhugasamari
og kennslustundina nýtast betur,“
segir Rasmus Borch upplýsinga-
tækniráðgjafi, einn fyrirlesara á
menntaráðstefnu sem epli.is hélt
um spjaldtölvuvæðingu skólakerf-
isins.
Borch segir í viðtali við Frétta-
blaðið að markmiðið í Odder hafi
verið að samhæfa skólastarfið
reynslu nemenda utan skólans.
„Nemendur nota tölvur heima í
margs konar tilgangi. Í skólanum
hefur aðallega verið unnið með
texta og kennarinn hefur staðið við
töfluna. Námsáhugi nemenda, eink-
um drengja, fór minnkandi eftir
sjötta bekk. Það þurfti að bregðast
við þessu. Námið hefur verið mjög
kennarastýrt en með spjaldtölvu-
væðingunni verða nemendurnir
virkari. Þeir afla sér þekkingar á
nýjan hátt og nota hana í nýju sam-
hengi. Kennarinn verður leiðbein-
andi.“
Stjórnmálamenn voru ekki allir
sannfærðir í fyrstu um nauðsyn
spjaldtölvuvæðingarinnar, að því
er Borch greinir frá. „Sú skoðun
varð hins vegar ofan á að þetta væri
nauðsynlegt til þess að búa börnin
undir framtíðina.“
Gerður hefur verið samningur
við tvö stærstu bókaforlögin í Dan-
mörku um að kennslubækurnar
verði settar beint inn á spjaldtölv-
urnar. En þótt nemendur lesi skóla-
bækurnar í spjaldtölvum verða
gamlar skólabækur enn í notkun.
„Það er engin ástæða til þess að
fleygja gömlum bókum. Þetta snýst
um að velja rétta verkfærið fyrir
ákveðið verk,“ segir Borch.
Stóri spjaldtölvudagurinn í Odder
var 5. janúar síðastliðinn en þá
fengu nemendurnir spjaldtölvurnar
sínar. Kennarar höfðu fengið spjald-
tölvur í október síðastliðnum auk
nemenda í tveimur bekkjum sem
fengu að prufukeyra nýju tæknina.
Það kostar sveitarfélagið Odder
um átta milljónir danskra króna,
eða nálægt 175 milljónum íslenskra
króna, að spjaldtölvuvæða alla nem-
endur og kennara grunnskólans.
Odder er fyrsta sveitarfélagið í
Evrópu sem kaupir spjaldtölvur
handa öllum grunnskólanemum og
kennurum. ibs@frettabladid.is
Nemendur
fengu allir
spjaldtölvur
Danska sveitarfélagið Odder spjaldtölvuvæddi alla
grunnskólanema og kennara. Kennslubækurnar
settar beint inn á tölvurnar frá forlögum. Nemend-
urnir himinlifandi. Kennararnir segja þá einbeittari.
SKIPULAGSMÁL Sveitarstjórn
Strandabyggðar hefur höggið á
hnútinn í deilu tveggja húseig-
enda á Kópnesbraut á Hólma-
vík sem höfðu „ósamrýmanleg“
sjónarmið um mörk lóða sinna.
Eigandi geymsluhúsnæðis
vildi að land sem sveitarfélagið
á milli húsanna yrði allt innlim-
að í lóð hans. Eigandi einbýlis-
húss við hliðina vildi hins vegar
að þeir skiptu með sér landi
sveitarfélagsins eftir miðlínu á
milli skúrs við hús hans annars
vegar og geymsluhússins hins
vegar.
Sveitarstjórnin hefur nú stað-
fest niðurstöðu skipulagsnefnd-
ar sem setur línuna einn metra
frá skúrveggnum.
Eigandi geymslunnar hafi
meiri hagsmuni af því að fá
stærri viðbót við sína lóð. - gar
Lóðadeila á Hólmavík:
Ósamrýmanleg
sjónarmið sætt
PERSÓNUVERND Stjórnarformað-
ur Karls K. Karlssonar ehf. mátti
skoða tölvupóst fyrrverandi for-
stjóra samkvæmt áliti sem Persónu-
vernd hefur sent frá sér.
Í álitinu segir að stjórnarfor-
manninn hafi grunað að eftir að for-
stjórinn var hættur hefði hann notað
pósthólf KKK til að senda út póst
um að fyrirtækið væri á leið í gjald-
þrot. Birgjar hefðu í kjölfarið hótað
að segja upp samningum og sumir
jafnvel látið verða af því og valdið
félaginu tugmilljóna tjóni. Ekki hafi
verið hægt að láta forstjórann fyrr-
verandi vita að til stæði að skoða
pósthólfið því þá myndi hann geta
eytt póstinum. Forstjórinn fyrrver-
andi sagðist eingöngu hafa rætt það
lauslega að fjárhagsstaða KKK væri
með öðru orsök þess að hún hætti
hjá fyrirtækinu. „Sú staða var birgj-
um félagsins vel kunn, enda hafði
KKK þá átt í langvarandi vanskil-
um og vanefndum gagnvart birgj-
um sínum og fleirum. Voru margir
þeirra þá þegar löngu hættir við-
skiptum við KKK og farnir annað,“
segir lögmaður forstjórans í grein-
argerð sem vitnað er til í álitinu.
Persónuvernd segir að forstjórinn
hafi haft ráðrúm til að eyða tölvu-
pósti áður en vinnutölvunni var skil-
að til KKK. Fyrirtækið hafi mátt
skoða póstinn til að kanna hvort
ólöglegir viðskiptahættir hefðu átt
sér stað. Hins vegar megi fyrir-
tækið ekki halda slíku áfram fyrr
en starfsmenn hafi verið fræddir
um tilhögunina. - gar
Karli K. Karlssyni ehf. heimilt að leita af sér grun:
Mátti skoða tölvupóst
fyrrverandi forstjóra
KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐ Eftirlíking af
Nikolas Sarkozy Frakklandsforseta á
hestbaki var áberandi á kjötkveðjuhá-
tíð í Viareggio á Ítalíu. NORDICPHOTOS/AFP
MALDÍVEYJAR, AP Mohammed Nasheed, fyrsti
lýðræðislega kjörni forseti Maldíveyja,
sagði af sér í gær eftir öflug mótmæli gegn
honum.
Mohammed Waheed Hassan varaforseti,
sem áður hefur verið yfirmaður hjá UNI-
CEF, tók við embættinu og hét því að vernda
Nasheed fyrir hefndaraðgerðum mótmæl-
enda.
Fyrr um daginn hafði lögreglan gengið
til liðs við mótmælendur, tekið ríkisútvarp
landsins á sitt vald og lent í átökum við her-
inn.
Hassan var kosinn forseti árið 2008. Hann
naut mikilla vinsælda í byrjun og lofaði
miklum umbótum í átt til lýðræðis og mann-
réttinda. Hann var þekktur baráttumaður
fyrir mannréttindum og umhverfismálum
víða um heim. Meðal annars hafði hann
setið í fangelsi fyrir gagnrýni sína á forvera
sinn í embætti, Maumon Abdul Gayoom, sem
hafði ríkt í 30 ár.
Undanfarið ár hafa mótmæli gegn honum
hins vegar farið vaxandi. Landsmenn voru
ósáttir við efnahagsumbætur og töldu hækk-
andi verðlag mega rekja beint til þeirra.
Upp úr sauð svo nýverið þegar hann lét
handtaka Abdulla Mohamed, yfirdómara
sakadómstóls landsins. Dómarinn hafði
unnið sér það til sakar að láta lausan stjórn-
arandstæðing, sem hafði gagnrýnt forsetann
harðlega. - gb
Lögreglumenn í hörðum átökum við herinn í uppreisninni á Maldíveyju:
Mótmælendur hröktu forsetann úr embætti
[Kennarar] segja
nemendur einbeittari
og áhugasamari og kennslu-
stundina nýtast betur
RASMUS BORCH
UPPLÝSINGATÆKNIRÁÐGJAFI
MÓTMÆLENDUR FAGNA Fréttir af því að lögreglan
hefði gengið til liðs við mótmælendur vöktu ómældan
fögnuð. NORDICPHOTOS/AFP