Fréttablaðið - 08.02.2012, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 8. febrúar 2012 13
HEILSA Sýking í munni sem orsak-
að getur krabbamein í hálsi, á kyn-
færum, í ristli og í höfði er tölu-
vert algengari í körlum en konum
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar sem gerð var á vegum
Læknafélagsins í Bandaríkjunum.
Rannsóknin leiddi í ljós að um
það bil sjö prósent þátttakenda
voru með svokallaða HPV-sýkingu
í munni. Um tíundi hver karlmaður
var með sýkinguna en um 3,6 pró-
sent kvenna.
Dr. Maura Gillison, sem stýrði
rannsókninni, segir niðurstöðuna
mikilvæga í þróun krabbameins-
lyfja. Auk þess geti hún skipt sköp-
um þegar kemur að því að fyrir-
byggja krabbamein í höfði og háls.
Oft má rekja meinin til reykinga
og áfengisneyslu, en talið er að árið
2020 verði hægt að rekja þau flest
til HPV-veirunnar.
Rannsóknarteymi við krabba-
meinsdeild Háskólans í Ohio hefur
fundið út að HPV-sýking í munni
auki hættu á krabbameini um 50
prósent. Líkur á að veiran nái ból-
festu í fólki aukast með aldri og
auknum fjölda kynlífsfélaga, hvort
heldur sem um munnmök eða kyn-
mök sé að ræða. - trs
FERÐAMENN Ferðamálastofa telur brott-
farir frá flugstöðinni í hverjum mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SAMGÖNGUMÁL Erlendir gestir til
Íslands hafa aldrei verið fleiri í
janúar en í ár, samkvæmt tölum
frá Ferðamálastofu.
Um 26 þúsund erlendir gestir
fóru frá landinu í janúar, en það
er tæplega fjórum þúsundum
fleiri en í fyrra. Gestum fjölgaði
því um 17,5 prósent milli ára.
Bretar voru fjölmennastir í
hópi ferðamanna, rúmlega 26
prósent. Fimmtán prósent ferða-
mannanna komu frá Bandaríkj-
unum. Danir voru rúm sex pró-
sent af fjöldanum og Norðmenn
sömuleiðis. - þeb
Talningar Ferðamálastofu:
Metfjöldi ferða-
manna í janúar
KRABBAMEINSFRUMA Nú hefur verið fundið út að HPV-sýking í munni eykur hættu
á krabbameini.
Um sjö prósent eru með HPV-veiruna í munni sem getur orsakað krabbamein:
Sýking algengari hjá körlum en konum
KÓPAVOGSVÖLLUR Nýir salir í stúkunni
verða auglýstir til leigu samkvæmt
ákvörðun bæjarráðs.
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Kópa-
vogs hefur samþykkt að tveir
salir, fundarherbergi og eldhús í
nýrri stúku Kópavogsvallar, verði
auglýstir til leigu. Er þetta gert
til reynslu fram á næsta haust.
Í nýju stúkunni er meðal ann-
ars fullbúið eldhús og salur sem
nota má sem kaffihús. Íþrótta-
félögin og tómstundafélög í
bænum hafa notað salina án þess
að greiða fyrir. „Húsnæðið hefur
hins vegar ekki nýst sem skyldi
fram að þessu,“ segir í minnis-
blaði sem lagt var fyrir bæjarráð.
„Yfir sumarmánuðina fer fram
ýmiss konar starfsemi á Kópa-
vogsvelli og svæðinu þar í kring,
sem ætla mætti að gæti skapað
tekjur með réttri nýtingu hús-
næðisins.“ - gar
Bætt nýting á Kópavogsvelli:
Stúkan leigð til
að afla peninga
Ný reiðhöll rís
Verið er að leggja lokahönd á bygg-
ingu 1.100 fermetra reiðhallar í landi
Saltvíkur rétt sunnan við Húsavík.
Hestamannafélögin Grani og Þjálfi
fengu styrk frá ríkinu til að byggja
höllina. Byggingin mun bæta aðstöðu
hestamanna á svæðinu mikið.
HÚSAVÍK
VIÐSKIPTI Sala á nýjum einkabíl-
um í V-Evrópu minnkaði um 8,7
prósent í janúar miðað við sama
mánuð í fyrra. Alls seldust 933.333
einkabílar á svæðinu í janúar sam-
kvæmt upplýsingum frá LMC
Automotive.
Sala á nýjum bílum minnkaði
um 0,4 prósent í Þýskalandi þar
sem markaðurinn fyrir einkabíla
er stærstur. Í Frakklandi minnkaði
salan um 20,7 prósent en í Bret-
landi var salan óbreytt.
Salan í janúar þykir staðfesta
spár um erfiðleika á þessu ári. - ibs
Erfiðleikar í V-Evrópu:
Sala á nýjum
bílum minnkar
KÍKTU Á KYNNINGARFUNDINN
Í KVÖLD KL. 20:00 Í VERSLUN
66°NORÐUR, FAXAFENI 12.
66°NORÐUR og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn þjálfa
þig til að komast á toppinn á Hvannadalshnúki í
byrjun maí. Boðið verður upp á æfingadagskrá þar
sem hópurinn hittist einu sinni í viku til æfinga og
undirbúnings. Nokkrar helgar fer hópurinn saman
á hærri fjöll s.s. Skarðsheiði og Eyjafjallajökul.
Nánari upplýsingar á 66north.is og fjallaleidsogumenn.is