Fréttablaðið - 08.02.2012, Síða 20

Fréttablaðið - 08.02.2012, Síða 20
8. FEBRÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR2 Fróðleiksmolinn Dagatal viðskiptalífsins MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR ➜ Fasteignamarkaðurinn eftir landshlutum ➜ Össur hf. ársuppgjör ➜ Erlend staða SÍ ➜ Vaxtaákvörðun SÍ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR ➜ Talningar úr þjóðskrá ➜ Markaðsuppl. Lánamála ríkisins ➜ UTmessan: Ráðstefna fyrir fagfólk UT ➜ Upplýsingatækniverðlaun Ský FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR ➜ Evrópufundarröð Alþjóðamálastofnunar MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR ➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir-hagtölur SÍ ➜ Greiðslumiðlun-hagtölur SÍ ➜ Útboð ríkisvíxla ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR ➜ Atvinnuleysi í janúar 2010 ➜ Smásöluvísitala RSV ➜ Birting ársreiknings HS Orku hf. Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á dagatal viðskiptalífsins Samsetning bensínverðs Algengt verð á einum lítra af bensíni er í dag í kringum 246 krónur á lítra. Af þessum 246 krónum fær Ríkið í sinn hlut u.þ.b. 119 krónur eða rúmlega 48% sem skiptist í virðisaukaskatt (50 kr.), sérstakt bensíngjald (39,5 kr.), almennt bensíngjald (24,5 kr.) og kolefnisgjald (5 kr.). Eftir standa þá 127 kr. hjá olíufélaginu. Eðli málsins samkvæmt liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um það hvernig þeirra kostnaður skiptist, en með því að skoða heimsmarkaðsverð á bensíni og gengi dollars má reikna út líklegt innkaupaverð þeirra. Verð á 95 oktana bensíni til afhendingar í New York höfn var um það bil 0,77 dollarar á lítra í byrjun febrúar eða u.þ.b. 94,5 krónur miðað við gengi dollars á sama tíma. Það eru um það bil 38,4% af verðinu sem við greiðum. Rétt er að taka fram að þarna getur munað nokkrum krónum vegna lagerstöðu olíufyrirtækjanna, skammtímasveiflna á markaði og annarra þátta. Sé miðað við þetta innkaupaverð standa nú eftir 32,5 krónur – eða um 13,2% sem ætla má að fari í flutninga, tryggingar og álagningu olíufélagsins. Þessa skiptingu og þróun hennar má sjá á myndinni hér að neðan, en gögnunum er viðhaldið mánaðarlega á vef DataMarket á slóðinni http:// data.is/ynTka7 250 200 150 100 5 kr. 2008 2009 2010 2011 2012 ● Almennt bensíngjald ● Sérstakt bensíngjald ● Kolefnisgjald ● VSK ● Líklegt innkaupaverð ● Flutningar, tryggingar, álagning ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 5 39 19 0 3 /2 01 1 ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING? Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki. Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir: Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki. Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins. Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair. Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum. + Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is ECONOMY COMFORT Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða, rafmagnsinnstunga fyrir tölvu. NAUÐASAMNINGAR Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Kröfuhafar SJ Eignarhaldsfélag, sem áður hét Sjóvá, hafa sam- þykkt nauðasamning félagsins. Í honum felst í raun að þeir fá um 7% af um 12 milljarða króna kröfum sínum, eða rúmlega 800 milljónir króna. Kröfuhafarn- ir, sem eru skilanefnd Glitnis, Landsbankinn, Eignasafn Seðla- banka Íslands (ESÍ) og Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins (LSR) höfðu hins vegar af því áhyggjur að sú háa tekjufærsla sem myndi myndast við gerð nauðasamnings- ins gæti haft í för með sér skatt- skuldbindingu sem félagið myndi ekki ráða við að greiða. Því gæti nauðasamningurinn í raun kall- að gjaldþrot yfir gamla Sjóvá með tilheyrandi skiptakostnaði. Á því höfðu kröfuhafarnir fjórir ekki áhuga. Því var ákveðið að fara þá leið í nauðasamningsferlinu að af- skrifa öll hlutabréf og víkjandi lán en gefa síðan út ný hlutabréf sem nema 0,1% af samningskröf- um til kröfuhafanna. Kröfuhafarn- ir veittu síðan ný lán fyrir þeim 99,9% krafna sem eftir standa. Lánin bera enga vexti og gjald- dagi þeirra er 31. mars 2015. Þó má framlengja hann um allt að fjögur ár. Með þessari leið verð- ur tekjufærslan sem skapast, af- skrift víkjandi lána og andvirði 0,1% af kröfum, nægilega lág til að hægt sé að nota uppsafnað nýtan- legt skattatap á móti henni. Síðan munu kröfuhafarnir tæma félagið hægt og rólega eftir því sem eignir þess breytast í verðmæti. Samhliða gerð nauðasamnings- ins var allt hlutafé, sem skilanefnd Glitnis hélt á, afskrifað. Sama gilti um víkjandi lán upp á tæplega þrjá milljarða króna. Eitt hinna víkj- andi lána var frá Ingunni Wer- nersdóttur. Lánið, sem stóð í tæpum milljarði króna, var hluti af greiðslu bræðra hennar, Karls og Steingríms Wernerssona, þegar þeir keyptu hana út úr Milestone. Hin víkjandi lánin voru veitt af fagfjárfestum, að mestu lífeyris- sjóðum. Það nam um tveimur milljörðum króna. Stærsti einstaki lánveitandinn í þeim hópi var Al- menni lífeyrissjóðurinn. Gamla Sjóvá skilar litlu til kröfuhafa Gert er ráð fyrir að 7% fáist upp í kröfur félags sem áður hét Sjóvá. Kröfuhafar fóru afar óhefðbundna nauðasamningsleið. Vildu ekki skapa skiptakostnað. SJÓVÁ Tryggingarekstur Sjóvár var færður út SJ eignarhaldsfélagi yfir í nýtt félag, Sjóvá- Almennar tryggingar hf., í lok september 2009. Íslenska ríkið lagði nýja félaginu til 11,6 milljarða króna og Glitnir og Íslandsbanki lögðu því til fimm milljarða. Í fyrra keypti síðan SF1 slhf. meirihluta í nýja Sjóvá. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Stærsti hluti tugmilljarða afskrifta gamla Sjóvá var vegna krafna á Mile- stone, fyrrum eiganda félagsins, og Földung, áður Vafningur, upp á samtals 19,3 milljarða króna sem skiptist nokkuð jafnt milli félaganna. Krafan var tilkomin vegna lána sem gamla Sjóvá, þá tryggingafélag, var látið lána félögunum tveimur í gerningi sem kallaður hefur verið „Vafningsfléttan“ í fjölmiðlum. Hún snerist um að endurfjármagna lán til eignarhaldsfélaga í eigu Milestone og Einars og Benedikts Sveinssona sem þeir höfðu tekið hjá bandaríska fjárfestingabankanum Morgan Stanley árið 2007 til að endur- fjármagna hlutabréf í Glitni. Lánin voru veitt í febrúar 2008 eftir að Morgan Stanley hafði ákveðið að framkvæma veðkall vegna lánanna. Í fléttunni var Vafningi lánað um 30 milljarða króna. Um þriðjungur þess láns kom frá gamla Sjóvá en afgangurinn frá Glitni. Til viðbótar fór sambærileg upphæð til Milestone til sömu nota, að endurfjármagna hlutabréf í Glitni. Vátryggingaskuld gamla Sjóvar við viðskiptavini sína, sem oft er kölluð bótasjóður, nam 22,7 milljörðum króna í lok árs 2008. Þar sem Milestone er gjaldþrota og Földungur er eignarlaust félag er ljóst að þau iðgjöld sem greidd voru inn í félagið á móti vátryggingaskuldinni töpuðust að nánast öllu leyti. SJÓVÁ LÁNAÐI MILLJARÐA Í VAFNINGSFLÉTTU Til viðbótar voru skuldir við dótturfélög gamla Sjóvá ekki hluti af nauðasamningnum. Þær voru tæpir 26 milljarðar króna í lok árs 2010. Einu eignir félags- ins eru fasteignaverkefni á vegum sömu dótturfélaga. Þau eru meðal annars í Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu. Gamla Sjóvá tapaði 3,9 millj- örðum króna árið 2010, rúmlega 33 milljörðum króna á árinu 2009 vegna niðurfærsla og taps á fjár- festingum og 30,2 milljörðum króna á árinu 2008. Trygginga- rekstur félagsins var færður til nýs félags, Sjóvá-Almennra trygg- inga ehf., í lok september 2009.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.