Fréttablaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 34
Fjármál heimilanna4 SKATTLEGGÐU FJÖLSKYLDUNA: Komdu upp innheimtukerfi og sektum fyrir brot á heimilisreglum til að safna fyrir salti í grautinn. Til dæmis mætti sekta 100 krónur fyrir hvert blótsyrði sem meðlimir fjöl- skyldunnar missa út úr sér, 200 krónur fyrir að svíkjast um að vaska upp, 500 krónur fyrir að hengja ekki upp útifötin og svo framvegis. Til að auka skattheimtuna gæti verið sniðugt að búa til fleiri verkefni og leggja frekari skyldur á hvern og einn í fjölskyldunni. Þannig aukast líkurnar á að eitthvað gleymist og hægt verði að innheimta skattinn. Varaðu þig þó að ganga ekki of langt, það gæti skapað þér óvinsældir. SPARIBAUKUR HEIM ILISINS: Settu fallega krukku á mitt eldhúsborðið eða í eldhúsgluggann og vendu þig á að setja alla smápeninga sem þú finnur á lausu í krukkuna. Laumaðu líka seðlum í krukkuna öðru hverju. Notaðu krukkuaur- ana síðan í matarinnkaup. FALINN FJÁRSJÓÐUR: Smápeningar leynast víða á heimilum ef vel er að gáð. Veltu sófapullunum fram og þreifaðu milli púða. Farðu gegnum vasana á öllum yfirhöfnum og jökkum í skápum, sér- staklega þær flíkur sem þú hefur ekki notað lengi. Gleymdir seðlar leynast þar merkilega oft. Athugaðu vel brjóstvasa innan á frökkum. SLEPPTU SJOPP UNNI: Taktu með þér heimasmurt í vinnuna. Helltu líka upp á kaffið heima og taktu það með á brúsa. SKYNSAMLEG KAUP: Kauptu föt á útsölum eða kauptu efni og saumaðu fötin á fjöl- skylduna. Ef saumaskap- urinn leikur í höndunum á þér gætirðu einnig drýgt tekjurnar með því að sauma á aðra. MARKAÐUR: Seldu óþarfa dót úr geymslunni á netinu og leggðu vel á. Þú gætir líka dreift lítilli auglýsingu í öll hús í hverfinu og haldið bílskúrs- sölu einhvern laugardagseftirmiðdag. Fylgstu bara með veðurspánni, menn eru kaupglaðari þegar veðrið er gott. Ráð til sparnaðar Landsbankinn landsbankinn.is 410 4040 Sjóðurinn árfestir í dreifðu safni skuldabréfa, hlutabréfa og hlutdeildarskírteina. Grunnárfesting sjóðsins er í verðbréfum með ábyrgð ríkisins. Þannig verður áhættan meiri en í hreinum ríkisskuldabréfasjóðum og vænt ávöxtun til lengri tíma hærri. Reglubundinn sparnaður Með reglubundnum sparnaði í sjóðum getur þú byggt upp eignasafn með áskri frá 5.000 kr. á mánuði. Enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskri. Sparnað í sjóðum má alltaf innleysa. Eignabréf – Eignasamsetning 01.01.2012 Eignasamsetning ræðst af árfestingarstefnu og markaðsaðstæðum hverju sinni. Fjárfestingarstefnu má finna í útboðslýsingu á landsbankinn.is. Fyrirvari: Eignabréf er árfestingarsjóður samkvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur eirliti Fjármálaeirlitsins. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt árfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á landsvaki.is eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsinguna áður en árfest er í sjóðnum, en þar er meðal annars ítarleg umöllun um árfestingarstefnu sjóðsins og áhættu sem felst í árfestingu í honum. Eignabréf er nýr blandaður árfestingarsjóður sem hentar vel fyrir reglubundinn sparnað. Sjóðurinn hentar vel í langtímasparnað fyrir ein staklinga sem vilja ávaxta hluta af sparnaði sínum í öðrum verðbréfum en ríkisskuldabréfum. Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4040 eða sendu okkur póst á armalaradgjof@landsbankinn.is. Nýr kostur í sparnaði Skuldabréf, víxlar og aðrar kröfur með ríkisábyrgð 83% Hlutabréf9% Reiðufé7% Innlán hjá ármálafyrirtækjum 1%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.