Fréttablaðið - 09.02.2012, Side 56

Fréttablaðið - 09.02.2012, Side 56
9. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR44 sport@frettabladid.is ICELAND EXPRESS-DEILD KARLA fer aftur af stað í kvöld með fjórum leikjum. Topplið Grindavíkur sækir Tindastól heim, Þór Þorlákshöfn fær Njarðvík í heimsókn, ÍR ferðast í Stykkishólm og Valur tekur á móti Fjölni. Leikirnir hefjast klukkan 19.15. Við ætlum okkur að spila á Fylkisvellinum í sumar og ekkert annað kemur til greina. BJÖRN GÍSLASON FORMAÐUR FYLKIS FÓTBOLTI Aðeins þrír mánuðir eru í að keppni í Pepsi-deild karla hefjist á ný og enn sem komið er eru stúkumál Fylkis enn óleyst. Félagið þarf að hefja framkvæmd- ir við byggingar á nýrri stúku til þess að fá keppnisleyfi á heima- velli sínum í Árbænum. Björn Gíslason, formaður Fylk- is, segir að teikningar séu tilbúnar og að nú standi yfir fjáröflunar- vinna. Félagið sé í viðræðum við Reykjavíkurborg en setji það ekki fyrir sig að safna þeim peningi sem þarf fyrir stúkunni. „Það er verið að leggja inn teikningar fyrir nýrri stúku og það er stefnt að því að hefja jarð- vegsvinnu í næsta mánuði,“ sagði Björn sem segir félagið reiðubúið að hefja fjáröflun í hverfinu. „Við ætlum að tala við einstak- linga og fyrirtæki í hverfinu. Við höfum gert athuganir og fengið mjög góð viðbrögð hingað til. Það er greinilegt að fólkið í hverfinu vill ekki missa Fylkisleikina úr Árbænum. Við ætlum okkur að spila á Fylkisvellinum í sumar og það er ekkert annað sem kemur til greina,“ segir Björn. Fylkismenn eru enn í viðræðum við borgaryfirvöld og munu funda með þeim, ÍTR og KSÍ í dag vegna málsins. Björn er bjartsýnn á að viðræðurnar muni bera árangur. Undanþágufresturinn útrunninn „Við höfum þegar fundað með borgarstjóra, aðstoðarmanni hans og fulltrúum ÍTR. Við erum heldur bjartsýnni eftir þann fund heldur en hitt en þó er ekkert fast í hendi. Hvort við fáum einhver svör á næsta fundi verður að koma í ljós.“ Fylkir hefur verið á undanþágu í um áratug vegna leyfiskerfis KSÍ sem gerir þær kröfur að félög í efstu deild séu með yfirbyggða stúku fyrir áhorfendur. Nú er sá frestur runninn út og Fylkismenn þurfa því að grípa til aðgerða. Grófar fjárhagsáætlanir sem gerðar voru fyrir rúmu ári gera ráð fyrir að stúkan muni kosta á bilinu 150-160 milljónir. Aðeins þrír mánuðir eru í að keppni í Pepsi-deild karla hefjist og ljóst að ný stúka mun ekki rísa á þeim tíma. „Í mars munum við hefja jarð- vegsvinnu og stækka núverandi áhorfendapalla til að bæta við sætum fyrir 300 áhorfendur í viðbót. Framkvæmdir liggja svo niðri á meðan tímabilið er í gangi og þær myndu svo hefjast aftur næsta haust,“ segir Björn og er vongóður um að Fylkir fái áfram undanþágu frá leyfiskerfinu fyrst framkvæmdir verði hafnar. „Ég hef orð fyrir því frá KSÍ.“ Hvort Reykjavíkurborg muni leggja til pening í byggingu stúk- unnar og hversu mikinn á eftir að koma í ljós. En Björn segir að allt verði gert til að missa ekki heima- leiki félagsins úr hverfinu. Mikil hverfisvitund í Árbænum „Í hvert sinn sem Fylkir spilar á heimavelli verður lítil hátíð í hverfinu. Það er mikil hverfis- vitund á meðal íbúanna og mikill stuðningur við félagið.“ Keppni í Pepsi-deild karla hefst 6. maí næstkomandi og er áætlað að Fylkismenn taki á móti Kefl- víkingum á heimavelli sínum í Árbænum strax í fyrstu umferð. eirikur@frettabladid.is Söfnum fyrir stúkunni ef þess þarf Fylkismenn eru harðákveðnir í að spila heimaleiki sína í Pepsi-deild karla næsta sumar. Til þess þarf þó nýja stúku sem búið er að teikna. Óvíst er með þátttöku borgaryfirvalda í kostnaði við byggingu hennar. FORMAÐURINN OG STÚKAN Björn Gíslason á Fylkisvellinum. Í bakgrunni er aðstaða fyrir áhorfendur eins og hún lítur út í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fylkir var ekki eina félagið á undanþágu frá leyfis kerfi KSÍ vegna aðstöðu áhorfenda. ÍBV átti það á hættu að missa heimaleiki sína frá Vest- mannaeyjum en er nú komið af stað í sínum framkvæmdum. „Það er búið að grafa og er verið að setja undirlag. Svo verður byrjað að reisa eftir helgi,“ sagði Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnu- deildar ÍBV. Hann bindur vonir við að fyrsta áfanga framkvæmdarinnar verði lokið þegar keppni hefst í Pepsi-deild karla í maí. Sá áfangi gerir ráð fyrir að sæti í yfirbyggðri stúku verði 470 talsins og að hann kosti 47 milljónir króna. Félagið fékk styrk frá KSÍ, Vestmannaeyjabæ og fyrirtækjum í bænum fyrir kostnað- inum. Félagið áætlar að ljúka við bygginguna á næstu árum en Óskar segir að fyrsti áfanginn dugi til að uppfylla kröfur leyfiskerfis KSÍ í bili. Auk nýju stúkunnar eru nú þegar sæti fyrir 525 manns í óyfirbyggðri stúku hinum megin við völlinn. Framkvæmdir hafnar í Eyjum FÓTBOLTI Niðurstaða er komin í réttarhöldum þeirra Harrys Redknapp og Milans Mandaric. Kviðdómur komst að þeirri niður- stöðu í gær að þeir væru saklaus- ir af ákærum um skattsvik. Redknapp var gefið að sök að hafa skotið greiðslum frá Milan Mandaric undan skatti þegar þeir störfuðu saman hjá Portsmouth. Redknapp var knattspyrnustjóri félagsins en Mandaric eigandi. Greiðslan nam um 189 þús- und pundum og sagði Redknapp að um gjöf hafi verið að ræða og tengdist starfi hans hjá Ports- mouth á engan hátt. Voru þeir lýstir saklausir í öllum ákæru- atriðum og því lausir allra mála. Munu þeir hafa fallist í faðma þegar niðurstaðan var kunngjörð í dómsalnum. „Þetta var martröð sem tók ekki enda fyrr en að fimm árum liðnum. Þetta mál hefði aldrei átt að fara fyrir rétt. Ég er bara ánægður með að mega fara heim,“ sagði Redknapp. Hann er knattspyrnustjóri Tottenham og getur einbeitt sér að því að sinna sínum störfum þar. - esá Léttir fyrir Redknapp: Saklaus af öll- um kæruliðum REDKNAPP Getur farið að einbeita sér að fótboltanum á nýjan leik. Hér svarar hann spurningum blaðamanna. NORDIC PHOTOS/GETTY HANDBOLTI Tvö efstu lið N1-deild- ar karla, Haukar og FH, munu eigast við í Hafnarfjarðarslag í Schenker-höllinni í kvöld en þá fer heil umferð fram í deildinni. Haukar steinlágu fyrir Val í síð- ustu umferð en eru engu að síður með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Sex efstu lið deildarinnar berj- ast um fjögur laus sæti í úrslita- keppninni og mætast HK og Valur í mikilvægum leik í þeirri baráttu í kvöld. Leikirnir hefjast báðir klukkan 19.30. - esá N1-deild karla: Hafnarfjarðar- slagur í kvöld HANDBOLTI „Ég er með tilboð frá Odense í Danmörku að þjálfa kvennaliðið þar og verð að svara því fljótlega. Það er ágætlega spennandi og svo hafa verið fyrir- spurnir frá karla- og kvennaliðum í Skandinavíu. Það er samt ekk- ert sem ég er hoppandi spenntur fyrir,“ sagði Ágúst Þór Jóhanns- son, landsliðsþjálfari kvenna og þjálfari norska liðsins Levanger. Ágúst Þór lætur af störfum hjá norska félaginu í lok tímabilsins og gæti allt eins farið svo að hann komi aftur heim til Íslands. „Við fjölskyldan þurfum að fara yfir stöðuna og við útilokum ekki að koma bara heim. Okkur langar alveg að vera úti en við ætlum ekki að vera úti bara til að vera úti. Það verður eitthvað spennandi að koma upp.“ Kvennalandsliðið náði eftirtekt- arverðum árangri á HM í Brasi- líu í desember. Hefur sá árangur ekki skilað Ágústi neinu? „Jú, það hefur skilað fjölda fyrirspurna en markaðurinn er erfiður og það eru ekki mörg störf að losna. Ég gæti eflaust djöflast og fengið eitthvað einhvers staðar. Það er samt líka spennandi að koma heim og vinna með landsliðið á fullu enda spenn- andi tímar fram undan þar,“ sagði Ágúst en hann hafði ekki gert upp við sig hvort það yrði við hæfi að þjálfa félagslið hér heima sam- hliða starfi landsliðsþjálfara. - hbg Ágúst Þór Jóhannsson með tilboð frá Odense en framtíðin alveg óráðin: Útiloka ekki að koma bara heim Á MARKAÐNUM Ágúst Þór er með eitt tilboð í höndunum sem stendur en hefur fengið fjölda fyrirspurna að eigin sögn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.