Fréttablaðið - 09.02.2012, Page 42

Fréttablaðið - 09.02.2012, Page 42
9. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR30 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þetta er algjör frumskógur þarna úti! Ertu með einhvern í sigtinu? Nei, en ég veit hvað ég vil! Þú vilt ekki hvern sem er! Langt því frá, systir! Hann verður að vera kattþrifinn, heilt sett af tönnum og risastóra bankabók, ef þú veist hvað ég meina! Þá þarf hann að vera stæltur og eiga bíl sem fer í gang í fyrstu tilraun! Og hann þarf að heita Igor! Igor? Helst! Hei! Mamma! Manstu þegar þú varðst rosalega reið út í mig þegar þú hélst að ég hefði týnt miðanum? Hvaða miða? Miðanum í skóla- ferðalagið á vísindasafnið. Það var þegar þú varst í sjöunda bekk! Málið er samt að ég týndi honum ekki! Afsakið hvað ég kem seint... hikst! Ég var í alla nótt að læra! Brugg- skólinn Pabbi, geisla- spilarinn sem ég fékk í jólagjöf er bilaður. Mér heyrist hann hljóma vel. Hvað er að honum? Hann er ekki iPod. Karl Lagerfeld segir að Adele sé feit. Sem hún er. Netbyggðin fyllist heilagri vandlætingu. Svívirðingunum rignir yfir Karl: Hann er gamall ljótur hommi sem vill að konur séu í vextinum eins og ungir strákar. Hvað segir það um hann, ha? Á SAMA tíma birtast á öllum helstu vef- miðlum myndaraðir af Demi Moore. Sem er mjó. Fyrirsagnirnar eru einróma: Hún er alltof mjó. Ógeðslega horuð. Með æskublæti. Slæm fyrirmynd fyrir ungar stúlkur. Netbyggðin breytist í halelúja- kór: Þetta er sko alveg rétt. Það ætti að taka svona konur og neyða ofan í þær mat. Verndið unglingana okkar fyrir þessum skaðvænlegu áhrif- um. ÞAÐ MÁ sem sagt óskapast yfir holdafari kvenna ef þær eru grann- ar en vei þeim sem minnist á að þær séu feitar. Samt er offita mun meira vandamál í vestrænum sam- félögum en anorexía. Og sama fólk og óskapast yfir ummælum Karls lækar hverja „lífsstíls- síðuna“ á fætur annarri þar sem allt gengur út á það að verða grannur. Ekki það að blessað fólkið hafi áhuga á útliti sínu, sussunei. Heilbrigði heitir það á pólitískt kórréttu máli. ÞESSI tvískinnungur litar alla umræðu á netinu. Það má til dæmis segja að nafn- greindir karlar séu hórkarlar sem dreymi um að nauðga öllum konum, en það má alls ekki segja að nafngreindir femínistar séu ómálefnalegir og hörundsárir. Einn helsti rithöfundur þjóðarinnar, Hallgrímur Helgason, gengur svo langt að segja í Facebook-svari að konum leyfist að taka dýpra í árinni þar sem þær standi höllum fæti í samfélaginu. Samkvæmt því er það orðin afsökun fyrir rógsherferðum að sá sem fyrir þeim stendur sé í minnihluta. Allt í nafni jafnréttis. Er ekki pólitísk rétt- hugsun farin að snúast upp í andhverfu sína í svona málflutningi? RÉTTHUGSUN er hættulegt hugtak. Rétt hugsun er ekki til. Sjálfstæð hugsun var einu sinni í hávegum höfð en virðist nú fullkomlega gamaldags og úr sér gengið hugtak í álíka mikilli útrýmingarhættu og hugtakið ábyrgð. Og orðtakið gamla um að betra sé að veifa röngu tré en öngvu er algjörlega úr gildi fallið. Ef þú veifar ekki hinu rétta tré áttu ekki að veifa neinu. Ekki einu sinni blaka hendi. ÞAÐ VERSTA er að þessi hugsanakúgun virkar. Fjöldi fólks óttast að viðra „rang- ar“ skoðanir. Þorir ekki fyrir sitt litla líf að stynja því upp að keisaraynjan sé kvik- nakin. Má ennþá segja að fólk sé fífl? Það sem ekki máLÁRÉTT 2. ungdómur, 6. fæddi, 8. tímabils, 9. bjargbrún, 11. tveir eins, 12. tjón, 14. endurtekning, 16. hvað, 17. sæ, 18. skörp brún, 20. frá, 21. sett. LÓÐRÉTT 1. einómur, 3. dreifa, 4. jaðra, 5. flýtir, 7. yfirráðaréttur, 10. flík, 13. eldsneyti, 15. hluti handar, 16. gyðja, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. æska, 6. ól, 8. árs, 9. nöf, 11. ii, 12. ógagn, 14. stagl, 16. ha, 17. sjó, 18. egg, 20. af, 21. lagt. LÓÐRÉTT: 1. mónó, 3. sá, 4. kringja, 5. asi, 7. lögsaga, 10. fat, 13. gas, 15. lófi, 16. hel, 19. gg.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.