Fréttablaðið - 09.02.2012, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 9. febrúar 2012 33
Sýning Margrétar Danadrottningar í lista-
safninu Arken í Danmörku hefur fengið
misjafnar móttökur gagnrýnenda.
Gagnrýnandi dagblaðsins Politiken
ákveður að gefa enga stjörnu, hann bendir
á að listamaður í svipuðum gæðaflokki og
drottningin fengi aldrei boð um að halda
yfirlitssýningu á einu helsta safni landsins
í samtímalistum.
Sýning hefur fengið góðar viðtökur og
aðsókn, sem hefur ekkert að gera með
listáhuga segir í umfjöllun Politiken sem
segir engar líkur á því að mikil aðsókn
að þessari sýningu skili aukinni aðsókn
og áhuga á samtímalist, áhorfendur sem
streyma á sýningu drottningar geri það
fyrst og fremst af áhuga á henni.
„Það er ekki áhugi á samtímalist sem
hefur fengið áhorfendur til þess að mæta á
safnið heldur áhuginn á drottningunni sem
listrænni manneskju, sem málar, gerir
klippimyndir, búninga, leikmyndir og svo
framvegis.“
Í öðrum miðlum hefur sýningin hlotið
miðlungsdóma, Jótlandspósturinn gefur
drottningu þrjár stjörnur af sex en í Berl-
ingske tidende fær hún fjórar stjörnur af
sex og tekið fram að list hennar eigi það
fyllilega skilið að vera gerð skil á yfirlits-
sýningu.
Sýningin í Arken spannar 35 ára feril
Margrétar sem listmálara. Hún stendur til
1. júlí. Arken er í Ishøj, í um 25 mínútna
lestarfjarlægð frá Kaupmannahöfn.
Engar stjörnur fyrir list Danadrottningar
LISTSKÖPUN DROTTNINGAR Til hægri má sjá eitt af nýrri verkum Danadrottningar sem sjá má á Arken.
Strætóskýli nefnist sýning Sig-
urðar Guðmundssonar sem
opnar í Skotinu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í dag klukkan 14.
Í fréttatilkynningu frá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur segir að
þótt hlutverk strætóskýla virðist
einfalt sé útlit þeirra ekki eins-
leitt. Það hafi breyst mikið frá
því þau voru fyrst sett upp fyrir
meira en 50 árum, til að veita
notendum almenningssamgangna
skjól meðan beðið er eftir fari. Þá
séu þau líka kennileiti sem endur-
spegli íslenskt samfélag, þró-
unina frá nýtishyggju til mark-
aðsvæðingar.
Þetta er fimmta sýning Sig-
urðar, sem fæddur er 1978 og er
búsettur í Reykjavík.
Strætóskýli eru
samfélagsspegill
STRÆTÓSKÝLI Sigurður Gunnarsson
sýnir ljósmyndir sínar af strætóskýlum í
Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
MYND/SIGURÐUR GUNNARSSON
Tilurð, staða og framtíðaráform
minningarsjóðs Vilhjálms Vil-
hjálmssonar verða kynnt á fundi
í salarkynnum Söngskólans í
Reykjavík að Snorrabraut 54 í
dag klukkan 12.
Sjóðurinn var stofnaður í fram-
haldi af minningartónleikum
um Vilhjálm Vilhjálmsson sem
haldnir voru í Laugardalshöllinni
10. og 11. október 2008. Hlutverk
hans er að styrkja árlega til náms
söngvara sem þykja skara fram
úr á sínu sviði.
Stofnendur sjóðsins eru Þóra
Guðmunds-
dóttir,
ekkja Vil-
hjálms,
og fjöl-
skylda,
Jón Ólafs-
son athafna-
maður,
Magnús Kjart-
ansson og Sena.
Auk þess sem
sjóðurinn verð-
ur kynntur
fyrir öllum
áhugasömum
á fundinum
í dag, mun
Söngskólinn
í Reykjavík
bjóða upp á
söngatriði.
- hhs
Funda um sjóð
Vilhjálms í dag