Fréttablaðið - 09.02.2012, Síða 58
9. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR46
Ég er með skemmti-
legt mál í myndinni
sem kom upp í desember.
Það mál fer vonandi að skýr-
ast fljótlega.
KÁRI KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
LEIKMAÐUR WETZLAR
HANDBOLTI Þýska stórliðið Kiel staðfesti í gær
að Guðjón Valur Sigurðsson hefði skrifað undir
tveggja ára samning við félagið. Hann gengur
formlega til liðs við það í sumar þegar samn-
ingur hans við AG Kaupmannahöfn rennur út.
„Ég hafði alltaf óskað mér þess að spila einn
daginn með Kiel,“ sagði Guðjón Valur á heima-
síðu félagsins í gær. „Loksins gekk það eftir. Ég
hlakka mikið til að koma til Kiel, spila í Spar-
kassen-Arena og fyrir stuðningsmennina.“
Klaus Elwardt er framkvæmdastjóri Kiel og
sagði þetta góðar fréttir fyrir félagið. „Guðjón
Valur er góður drengur og leikmaður í heims-
klassa. Hann passar vel inn í okkar lið og leik-
skipulag þess. Hann var efstur á óskalista
okkar og við vorum efstir á óskalista hans.
Þetta passar því vel saman.“
Guðjón Valur varð á dögunum bikarmeistari
með AGK en liðið er sem stendur í efsta sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar og svo gott sem
komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar
Evrópu.
Hann hóf atvinnumannaferil sinn árið 2001
er hann gekk til liðs við Essen í Þýskalandi.
Þaðan fór hann til Gummersbach þar sem hann
lék til að mynda undir stjórn Alfreðs Gísla-
sonar, núverandi þjálfara Kiel. Guðjón Valur
fór árið 2008 til Rhein-Neckar Löwen og þaðan
í sumar til Danmerkur.
Aron Pálmarsson leikur með Kiel sem trónir
á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús
stiga. Guðjóni Val er ætlað að fylla í skarð Hen-
riks Lundström sem fer frá liðinu í sumar.
- esá
Guðjón Valur Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska stórliðið Kiel:
Guðjón Valur og Alfreð sameinast á ný
GUÐJÓN VALUR Hér í íslenska landsliðsbúningnum á
EM í Serbíu í síðasta mánuði. MYND/VILHELM
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Eimskipsbikar kvenna:
Valur-Stjarnan 35-28
Valur Mörk (skot): Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
8/2 (8/2), Þorgerður Anna Atladóttir 8 (12),
Anna Guðmundsdóttir 5 (6), Dagný Skúladóttir 3
(3), Ágústa Björnsdóttir 3 (4), Karólína Bærhenz
Lárudóttir 3 (4), Kristín Guðmundsdóttir 2 (6/1),
Nataly Valencia 1 (1), Aðalheiður Hreinsdóttir 1
(2), Ragnhildur Guðmundsdóttir 1/1 (3/1)
Varin skot: Guðný Ásmundsdóttir 20/1 (41/2,
49%), Sunneva Einarsdóttir 4/1 (11/4, 36%),
Stjarnan Mörk (skot): Rut Steinsen 7 (15), Esther
Viktoría Ragnarsdóttir 4 (7), Sandra Sif Sigurjóns-
dóttir 3 (3), Þórhildur Gunnarsdóttir 3/1 (6/1),
Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3/1 (7/2), Jóna
Margrét Ragnarsdóttir 3/1 (9/1), Sólveig Lára
Kjærnested 2 (3), Guðrún Hrefna Guðjónsdóttir
2/1 (6/2), Arna Dýrfjörð 1 (2
Varin skot: Helga Dóra Magnúsdóttir 5 (14/2,
36%), Kristín Ósk Sævarsdóttir 5/1 (31/2, 16%),
ÍBV-FH 24-13 (12-7)
Mörk ÍBV: Grigore Ggorgata 6, Ivana Mladenovic
3, Rakel Hlynsdóttir 3, Ester Óskarsdóttir 3,
Mariana Trbojevic 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2,
Aníta Elíasdóttir 2.
Mörk FH: Ingibjörg Pálmadóttir 4, Berglind Ósk
Björgvinsdóttir 3, Birna Íris Helgadóttir 2, Stein-
unn Guðjónsdóttir 1, Kristrún Steinþórsdóttir 1,
Steinun Snorradóttir 1, Sigrún Jóhannsdóttir 1.
Það verða því Valur og ÍBV sem leika til úrslita í
bikarkeppninni.
IE-deild kvenna:
Valur-Njarðvík 100-81
Valur: Melissa Leichlitner 23, Lacey Katrice
Simpson 19, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 16, Guð-
björg Sverrisdóttir 13, Kristrún Sigurjónsdóttir 12,
María Ben Erlingsdóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir 2.
Njarðvík: Lele Hardy 26, Shanae Baker-Brice 22,
Ólöf Helga Pálsdóttir 12, Salbjörg Sævarsdóttir 8,
Sara Dögg Margeirsdóttir 5, Erna Hákonardóttir 3.
Fjölnir-Snæfell 88-90
Fjölnir: Brittney Jones 38, Katina Mandylaris 28,
Erla Sif Kristinsdóttir 13, Bergdís Ragnarsdóttir 4,
Birna Eiríksdóttir 3, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2.
Snæfell: Kieraah Marlow 32, Alda Leif Jóns-
dóttir 20, Jordan Lee Murphree 16, Hildur Björg
Kjartansdóttir 8, Ellen Alfa Högnadóttir 6.
Haukar-Hamar 72-66
Haukar: Hope Elam 17, Jence Ann Rhoads 15, Íris
Sverrisdóttir 13, Guðrún Ósk Ámundardóttir 11,
Margrét Rósa Hálfdánardóttir 10.
Hamar: Katherine Virginia Graham 22, Samantha
Murphy 17, Marín Laufey Davíðsdóttir 10, Fanney
Lind Guðmundsdóttir 8, Jenný Harðardóttir 4.
Keflavík-KR 70-56
Keflavík: Jaleesa Butler 21, Pálína Gunnlaugsdóttir
18, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 12, Sara Rún
Hinriksdóttir 10, Shanika Chantel Butler 5.
KR: Margrét Kara Sturludóttir 18 Hafrún Hálf-
dánardóttir 12, Erica Prosser 10, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 6, Bryndís Guðmundsdóttir 5.
Enski bikarinn:
Middlesbrough-Sunderland 1-1
ÚRSLIT
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Kári Kristján Kristjánsson ætlaði
að vera búinn að ganga frá sínum
framtíðarmálum fyrir EM í janú-
ar. Það gekk ekki eftir og er alls
óvíst hvar Kári leikur handbolta
næsta vetur.
„Staðan er þannig að það eru
þessar klassísku þreifingar í
gangi,“ sagði Kári Kristján sem er
í viðræðum við félag sitt, Wetzlar,
um nýjan samning og svo er annað
þýskt úrvalsdeildarlið komið inn í
myndina.
„Ég er með skemmtilegt mál í
myndinni sem kom upp í byrjun
desember og ég er að vonast til
þess að það fari að skýrast fljót-
lega hvort af því verði. Á meðan
er ég ekkert að pressa sérstaklega
mikið á Wetzlar. Mér finnst þetta
vera mjög spennandi dæmi,“ sagði
Kári Kristján en hann var með öllu
ófáanlegur til þess að gefa upp
nafn félagsins sem væri í mynd-
inni.
Viðræður Kára og Wetzlar hafa
verið stál í stál síðustu mánuði og
virðist nokkuð bera á milli í þeim
viðræðum.
„Ég skrifa ekki undir þann
samning sem þeir hafa boðið mér.
Ég gerði þeim gagntilboð og eins
og gengur í þessum bransa er
verið að þrefa um þetta mál. Þeir
vilja lækka mitt gagntilboð en við
því mátti svo sem búast,“ sagði
Kári en hann vill helst af öllu fara
að klára sín mál.
Vildi klára sín mál í desember
„Ég hefði helst af öllu viljað hafa
allt klárt í desember því vitað var
að ef það næðist ekki myndi allt
frestast fram í febrúar út af EM.
Það verður eitthvað að gerast núna
í mínum málum. Ég er samt ekkert
að bíða í vöggunni eftir því að mér
verði rétt snuddan. Ég er ekki að
ganga á eftir neinu heldur. Brans-
inn virkar þannig að ef maður
stendur sig þá á þetta að koma til
manns og við sjáum hvað setur.“
Kári hefur átt virkilega gott
tímabil með Wetzlar í vetur og
oftar en ekki verið markahæstur
eða með markahæstu mönnum
liðsins. Hann er þess utan orðin
vítaskytta liðsins sem er nýtt hlut-
verk fyrir hann.
„Ég hef verið mjög ánægður
með minn leik og vonandi heldur
það áfram. Ég hef verið heitur á
vítalínunni í síðustu leikjum og
skoraði úr öllum fjórum vítunum
í síðasta leik fyrir EM. Ekki enn
klikkað á punktinum og gaman að
því.“
Wetzlar er nýbúið að semja við
hinn 37 ára gamla línumann, And-
rej Klimovets. Tengist það eitt-
hvað því að Kára gangi illa að
semja við félagið?
„Hann fékk samning út tíma-
bilið og er aðallega hugsaður sem
varnarmaður en svo getur vel
verið að hann spili líka einhverja
sókn. Hinn línumaðurinn hefur
verið meiddur og þeir vildu auka
breiddina.
Maður veit samt aldrei hvern-
ig þetta fer. Hann er Hvít-Rússi
að upplagi og þjálfarinn er Hvít-
Rússi. Hann hefur líka átt flottan
feril en það segir samt sína sögu
að hann fékk ekki samning fyrir
þetta tímabil.“
henry@frettabladid.is
Bíð ekki í vöggunni eftir snuddunni
Framtíð línumannsins Kára Kristjáns Kristjánssonar er óráðin. Kári hefur leikið mjög vel fyrir félag sitt,
Wetzlar, í vetur og félagið vill halda honum. Samningar hafa þó ekki tekist milli Wetzlar og Kára en nú-
verandi samningur rennur út í sumar. Línumaðurinn er í viðræðum við annað þýskt úrvalsdeildarlið.
STENDUR Í STRÖNGU Kári Kristján er óviss um hvað framtíðin beri í skauti sér. Hann er hér í miklum átökum gegn Spánverjum á
EM en Kári átti margar fínar innkomur á mótinu í Serbíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Fabio Capello sagði í gær
af sér sem landsliðsþjálfari Eng-
lands. Ítalinn hætti eftir átaka-
fund með forkólfum enska knatt-
spyrnusambandsins.
Sambandið fór fram á að fyrir-
liðabandið yrði tekið af John
Terry. Capello var því mótfallinn
og gaf sig greinilega ekki á fund-
inum því hann er hættur.
Harry Redknapp, stjóri Spurs,
er sterklega orðaður við starfið
en England fer á EM í sumar. - hbg
England þjálfaralaust:
Capello hættur