Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 4
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR4
Sambankalánið orðið verðtryggt
Sambankalánið sem Austurhöfn-TR tók hjá stóru viðskiptabönkunum
þremur, með 17,1 milljarðs króna þaki, var óverðtryggt fram til 15. febrúar
síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur það borið 3,5% verðtryggða vexti og mun
gera það í tvö ár til viðbótar verði það ekki endurfjármagnað. Eftir tvö ár
eiga verðtryggðu vextirnir að hækka um 0,15% samkvæmt lánaskilmál-
unum. Heildarlánstíminn er 35 ár og gert er ráð fyrir að lánið verði verð-
tryggt út þann tíma.
VIÐSKIPTI Þrjár innlendar lána-
stofnanir skiluðu í gær inn tilboði
til að sjá um skuldabréfaútgáfu til
að endurfjármagna lántökur vegna
byggingar tónlistar- og ráðstefnu-
hússins Hörpu. Búist er við því
að ákvörðun um við hverja þeirra
verði samið liggi fyrir í lok næstu
viku. Endurfjármögnuninni á að
ljúka fyrir mitt þetta ár. Skulda-
bréfaútgáfan verður um 18,3 millj-
arðar króna til að hægt verði að
endurgreiða sambankalán sem
veitt var fyrir byggingu hússins
og eigendalán sem íslenska ríkið
og Reykjavíkurborg veittu eigenda
þess í lok síðasta árs.
Pétur J. Eiriksson, stjórnarfor-
maður Portusar ehf., sem heldur
utan um eignarhald Hörpunnar,
segir að næsta vika fari í það að
meta þau tilboð sem skilað var inn.
„Ég get ekki sagt til um hvenær
þeirri vinnu muni ljúka. En okkar
markmið er að vera búnir að klára
endurfjármögnun félagsins ekki
seinna en á miðju þessu ári.“
Portus er dótturfélag Austur-
hafnar-TR, sem er eigandi Hörpu.
Austurhöfn, sem er í 54 prósenta
eigu íslenska ríkisins og 46 pró-
senta eigu Reykjavíkurborgar, tók
sambankalán hjá íslenskum bönk-
um í janúar 2010 sem átti að fjár-
magna byggingu Hörpunnar að
fullu. Landsbankinn, Arion banki
og Íslandsbanki veittu lánið. 17,1
milljarðs króna þak er á láninu,
sem kostar eigendur Hörpunn-
ar um einn milljarð króna á ári
í kostnað. Því ríkir enn ákveðin
óvissa um hver endanlegur kostn-
aður ríkis og borgar verður vegna
Hörpu á meðan lánið hefur ekki
verið endurfjármagnað.
Áætlaður heildarkostnaður
vegna byggingar Hörpu, reksturs
hennar fram að endurfjármögnun
og kostnaðar vegna annarra bygg-
ingareita er áætlaður 17,7 milljarð-
ar króna, eða hærri en sem nemur
sambankaláninu. Vegna þessa
þurftu eigendur Austurhafnar,
íslenska ríkið og Reykjavíkur-
borg, að lána félaginu 730 milljónir
króna í lok síðasta árs. Lánið er til
eins árs og á að endurgreiðast að
fullu þegar skuldabréfaútboðinu
verður lokið.
Heildarkostnaður vegna Hörpu
og tengdra verkefna, að meðtöld-
um afskrifuðum kostnaði, er áætl-
aður um 27,7 milljarðar króna.
Þegar samningar um byggingu
hússins voru undirritaðir í apríl
2002 var áætlaður kostnaður við
framkvæmdina um sex milljarðar
króna. thordur@frettabladid.is
GENGIÐ 24.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,8634
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,70 124,30
195,32 196,26
165,50 166,42
22,254 22,384
22,101 22,231
18,743 18,853
1,5340 1,5430
191,82 192,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
4 2012 –
, ,
.
4 2012
-08-51,
-08- russcons@internet.is).
.
DANMÖRK Daninn Steen Rytter
sér nú eftir því að hafa ásamt
systkinum sínum gefið 83 ára
gamalli móður þeirra sjálfvirka
ryksugu í jólagjöf. Móðirin hefur
nefnilega fengið bréf frá sveitar-
félaginu í Randers um að hún
muni ekki lengur fá heimilishjálp
þar sem hún geti nú sjálf sinnt
heimilisverkunum.
Gömlu konunni var þó boðin
þjálfun í meðal annars gólfþvotti
en þar sem hún hafði verið ræsti-
tæknir áður en hún fór á eftirlaun
afþakkaði hún boðið.
Steen Rytter segir að í fyrstu
hafi hann haldið að um grín hafi
verið að ræða. - ibs
Óheppileg jólagjöf:
Svipt aðstoð
vegna ryksugu
Þrjú tilboð í útboð
skuldabréfa á Hörpu
Þrjár lánastofnanir vilja sjá um skuldabréfaútboð sem á að endurfjármagna
skuldir vegna byggingar Hörpunnar. Umfang útboðsins verður 18,3 milljarðar
króna. Féð verður notað til að borga sambankalán og lán frá ríki og borg.
HARPA Kostnaður vegna byggingar tónlistar- og ráðstefnuhúss átti að vera um
sex milljarðar króna samkvæmt áætlunum sem settar voru fram árið 2002. Hann
er í dag tæpir 28 milljarðar króna að teknu tilliti til afskrifaðs kostnaðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
DÓMSMÁL Óvarlegt er að áætla að
fordæmisgildi dóms Hæstaréttar
um vexti af ólögmætum, gengis-
tryggðum lánum sé bundið við
ákveðna tegund lána. Líklegra sé
að hann eigi við um allar gerðir
gengistryggðra lánasamninga.
Þetta kemur fram í álitsgerð
þriggja lögmanna lögmannsstof-
unnar LEX, sem unnin var fyrir
Samtök fjármálafyrirtækja.
Í álitinu segir að niðurstaða
Hæstaréttar taki til allra lánþega
sem hafa undir höndum fullnaðar-
kvittun fyrir þeim greiðslum sem
inntar hafa verið af hendi. Aðrir,
sem ekki eiga slíkar kvittanir,
þurfa að sætta sig við að lánið beri
lægstu óverðtryggða vexti Seðla-
bankans, í stað lágra vaxta gengis-
tryggðu lánanna.
Þá komast lögmennirnir að
þeirri niðurstöðu að þótt dómur-
inn fjalli ekki um lán til fyrirtækja
geti hann haft fordæmisgildi gagn-
vart smærri fyrirtækjum. Stærð
og staða fyrirtækja við samn-
ingsgerðina hafi að þeirra mati
þýðingu við úrlausnina.
Enn fremur segir í álitinu að
skilmálabreytingar á lánum hafi
engin áhrif á niðurstöðuna að því
gefnu að lántakinn hafi staðið í
skilum. - sh
Lögmenn segja fullnaðarkvittun forsendu þess að samningsvextir gildi:
Getur gilt um alla lánasamninga
HÆSTIRÉTTUR Samkvæmt niðurstöðu
Hæstaréttar skulu samningsvextir gilda
en ekki Seðlabankavextir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
11°
5°
7°
11°
9°
4°
4°
19°
12°
17°
7°
26°
3°
14°
14°
2°
Á MORGUN
8-13 m/s.
MÁNUDAGUR
5-10 m/s.
1
-1
0
0
2
-3
2
2
3
3
4
5
6
6
5
2
3
2
1
7
3
5
5
5
7
7
4
0
-2-2
4
2
GOTT Í DAG Yfi rleitt
hæglætis veður og
bjart með köfl um
en gengur í stífa
suðaustanátt með
vætu um sunnan-
og vestavert landið
í kvöld. Suðlæg átt
og milt með mikilli
vætu sunnanlands
í fyrstu á morgun
en úrkomulítið
norðaustan til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
NOREGUR Þegar faðirinn missir
vinnuna lækka einkunnir
barnanna en ekki þegar móðirin
missir vinnuna.
Þetta eru niðurstöður könn-
unar sem gerð var í Háskólanum
í Stafangri í Noregi. Bornar voru
saman einkunnir nemenda sem
áttu foreldra með vinnu við ein-
kunnir þeirra sem áttu atvinnu-
lausa foreldra. Nemendurnir voru
allir í tíunda bekk.
Atvinnumissir móður hafði
jafnvel jákvæð áhrif á einkunnir
nemendanna. - ibs
Atvinnumissir föður:
Einkunnir
barna lækka
SVÍÞJÓÐ Nýfædd prinsessa Svía
hefur fengið nafnið Estelle Silvia
Ewa Mary. Karl
Gústaf Svíakon-
ungur greindi
frá nafninu í
gær.
Estelle er
dóttir Viktor-
íu krónprins-
essu og Daníels
prins og fædd-
ist aðfaranótt
fimmtudags á
Karólínska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi.
Veðmálafyrirtæki og fjölmiðlar
höfðu velt nafninu fyrir sér í
sólarhring áður en það var til-
kynnt í gær. Nöfnin Silvia og Ewa
eru nöfn móður- og föðurömmu
prinsessunnar.
Forsætisráðherrann var meðal
þeirra sem heimsóttu fjölskylduna
í gær, en æðstu yfirmenn þurfa að
staðfesta fæðingu ríkisarfa. - þeb
Ný prinsessa Svíþjóðar:
Heitir í höfuðið
á ömmunum
SJÁVARÚTVEGUR Fiskiskipum á
skrá Siglingastofnunar fjölgaði
um þrjátíu milli áranna 2010 og
2011. Alls voru 1.655 skip á skrá
í lok síðasta árs. Fjöldi vélskipa
var 764, togarar voru 58 og opnir
fiskibátar 833.
Flest fiskiskip voru með skráða
heimahöfn á Vestfjörðum, að því
er fram kemur á vef Hagstof-
unnar. Það gerir um 23 prósent
flotans, en næstflest voru með
skráða höfn á Vesturlandi. Flestir
af opnu fiskibátunum voru einnig
skráðir á Vestfjörðum. Fæst skip
voru skráð á Suðurlandi sem og
opnu fiskibátarnir. Fæstir togar-
ar voru skráðir á Vesturlandi. - sv
Flest skráð á Vestfjörðum:
Fjölgar í skipa-
flota á milli ára
REYKJAVÍKURHÖFN Togarar voru 58 í lok
síðasta árs og opnir fiskibátar 833.
BÚLGARÍA Kínverjar hafa nú hafið
framleiðslu á bílum í verksmiðju
sem þeir hafa opnað í Búlgaríu, þá
fyrstu í Evrópu. Kínverski bílaris-
inn Great Wall Motors hefur hafið
innreið sína á evrópska markað-
inn og hyggst framleiða 2.000 bíla
í verksmiðjunni í Búlgaríu í ár.
Markmiðið er að framleiðslan
verði 50 þúsund bílar eftir tvö ár.
Í fyrstunni er ráðgert að kom-
ast inn á bílamarkaðinn í Make-
dóníu, Albaníu, Svartfjallalandi
og Serbíu. Því næst á að hefja inn-
reið í önnur lönd Evrópu. -ibs
Kínverjar á Evrópumarkað:
Kínverskur bíla-
risi í Búlgaríu
VIKTORÍA
KRÓNPRINSESSA