Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 94
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR58
folk@frettabladid.is
HEILSA Þunglyndislegar stöðuupp-
færslur á samskiptasíðum eins og
Twitter og Facebook geta verið ágæt-
is vísbending um andlegt ástand ein-
staklinganna sem þá skrifa.
Höfundar uppfærslnanna líta
stundum á þær sem eins konar leið
til að deila vandamálum sínum með
heiminum og oft og tíðum liggur
ekkert meira á bak við þær en pirr-
ingur eða leiði á þeim tímapunkti.
Samkvæmt rannsókn sem fram-
kvæmd var af Háskólanum í Wash-
ington gefa þær þó oft vísbend-
ingar um að ekki sé allt með felldu
hjá viðkomandi og geta verið hróp
á hjálp.
Stöðuupp-
færslur vísa
á þunglynda
Gildir eingöngu þegar forráðamaður kaupir máltíð. 1 máltíð á barn af barnamatseðli. Gildir eingöngu í sal.
HEILSA Nú hefur komið fram ný
leið til að hylja skallabletti.
Dr. Sanusi Umar er búinn að
þróa leið til að taka hárígræðslur
á næsta stig, og segir hann frá
rannsóknum sínum í febrúar-
tímariti blaðsins Archives of Der-
matology.
Yfirleitt er hár úr neðanverð-
um hnakka notað í ígræðslur, en
þar sem grófara er ofan á höfðinu
er oft augljóst að um ígræðslu sé
að ræða.
Aðferðir Umars fela það í sér
að tekið er hár af öðrum líkams-
pörtum og því blandað saman
við hár úr hnakka. Þannig notar
hann fínustu hárin við hárlínuna
til að ná sem eðlilegustu útliti.
Bestu hárin til að nota segir
Umar vera af fótleggjum einstak-
lingsins.
Fótleggjahár
á höfuð
NÝJUNG Í CHROME Google Chrome-vafrinn býður notendum nú þann
möguleika að gera vefsíðum ókleift að afla upplýsinga um þá í þeim tilgangi að
beina auglýsingum að þeim. Möguleikinn er einnig til staðar í Firefox og Safari.
ÞUNGLYNDI Stöðuuppfærslur á
Facebook gætu verið hróp á hjálp.
lifsstill@frettabladid.is
Vinsældir hárlits á borð við
rauðan, bleikan og fjólubláan
hafa aukist í vetur. Eva Sús-
anna Victorsdóttir hefur verið
með skærrautt hár í eitt ár
núna og er harðákveðin í að
hárið verður blátt með vorinu.
TÍSKA „Það er bara svo gaman að
breyta til og ég hef fengið mjög
jákvæð viðbrögð við háralitnum,“
segir Eva Súsanna Victorsdótt-
ir, mannfræðinemi við Háskóla
Íslands, sem hefur skartað skær-
rauðu hári í um það bil ár.
Fréttablaðið hafði samband við
hárgreiðslustofur á höfuðborgar-
svæðinu en þar voru menn sammála
um að aukning hafi átt sér stað í eft-
irspurn eftir skærum hárlit. Bleik-
ur, rauður og fjólublár eru vinsæl-
ustu litirnir um þessar mundir.
Gegnum tíðina hefur Eva gert
ýmsar tilraunir með hár sitt. Rétt
áður en hún litaði hárið skærrautt,
eða „kókakóla-rautt“ eins og hún
kallar það, skartaði Eva dreddum
í þrjú ár. „Mig hafði langað í rautt
hár í langan tíma og lét slag standa
þegar ég losaði mig við dreddana,“
segir Eva sem hefur myndað gott
samband við hárgreiðslumann sinn,
Grjóna á Rauðhettu og úlfinum, en
skæri háraliturinn krefst mikils við-
halds og þarf Eva því að fara í litun
á fjögurra vikna fresti.
Ástæðan fyrir tíðum breytingum
Evu á hári sínu skrifar hún á nýj-
ungagirni en einnig á utanaðkom-
andi áhrif. „Ég segi kannski ekki
að ég sé að fylgja einhverjum tísku-
straumum en örugglega síast ein-
hver áhrif frá Hollywood inn í und-
irmeðvitundina.“ Eva verður vör
við aukna athygli og vill meina að
flestir séu hrifnir af hárinu. „Ég fæ
mikla athygli og margir hafa hrós-
að litnum. Það er annað en þegar
ég var með dreddana því þá fékk
ég misjöfn viðbrögð og fólk var
ekki eins hrifið,“ segir Eva, sem er
hvergi hætt tilraunum sínum með
hárið. „Ég er allt í einu farin að sjá
svo marga með rautt hár í Reykja-
vík að ég er að spá í að skipta yfir í
blátt næst.“ alfrun@frettabladid.is
58
„Ég held að þetta séu áhrif
frá Hollywood og hugsan-
lega tölvuleikja-menn-
ingunni líka,“ segir Grjóni,
hárgreiðslumaður og annar
eigenda stofunnar Rauð-
hetta og úlfurinn, en hann
segist hafa orðið var við
ákveðna aukningu í skærum
háralitum í vetur.
Að sögn Grjóna hafa
litirnir bleikur, rauður og
fjólublár verið vinsælastir í
vetur. Kollegi hans, Raggi
á hárgreiðslustofunni
Circus Circus, tekur í sama
streng. „Stelpur eru orðnar
jákvæðari fyrir rauðum
litum en einu sinni var það
alveg bannað. Það getur
samt ekki hver sem er borið
skæran háralit og maður
þarf að átta sig á því að það
vekur athygli að vera með
skærbleikt hár í Kringlunni
til dæmis. Annars fagna
ég fjölbreytileikanum og
gaman að fólk þori að prufa
eitthvað nýtt,“ segir Raggi og
bætir við að æðið fyrir rauða
litnum komi líklegast frá
söngkonunni Rihönnu.
Rihanna skartaði skær-
rauðu hári á tímabili og stall-
systur hennar í Hollywood
hafa fylgt söngkonunni fast
eftir. Nú síðast mátti sjá
söngkonuna Katy Perry
með blátt hár á fótbolta-
leik og Lady Gaga hefur
bæði verið með bleikt
og blátt hár en hún er
gjörn á að skipta ört
um háralit.
Bæði Grjóni og
Raggi segjast geta
litað hár öllum
regnbogans
litum fyrir þá
sem þora.
ÁHRIFIN KOMA FRÁ HOLLYWOOD
Að spá í að skipta yfir í blátt næst
FRÉTTABLAÐIÐ/
Eva Viktorsdóttir hefur skartað
skærrauðu hári í eitt ár og er ákveðin
í að skipta yfir í bláan lit næst.