Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2012 25
Flestum mun kunnugt um að fyrir liggja áætlanir
um að byggja upp nýjan Land-
spítala við Hringbraut. Nefnd-
ir hafa verið aðrir möguleikar
á staðsetningu t.d. Vífilsstað-
ir, Keldnaholt og fleiri en ekki
hefur verið léð máls á þeim til-
lögum. Undirrituð og fleiri hafa
bent á að staðarvalið sé stór
mistök ekki síst með hliðsjón af
umferð. Miklabrautin/Hring-
brautin og Bústaðavegur eru
sennilega mestu umferðargötur
höfuðborgarinnar og mikill far-
artálmi bæði í nútíð og framtíð.
Eftirfarandi tafla sem fengin
er frá Umferðar- og samgöngu-
sviði Reykjavíkurborgar sýnir
sniðtalningar sl. 10 ára þ.e.
umferðarmagn (metin sólar-
hringsumferð, allir straumar í
gatnamótum) á stærstu umferð-
arljósagatnamótum borgarinn-
ar:
Af töflunni má ráða að
umferðarþungi á götum Reykja-
víkur er þyngstur einmitt næst
þeim stað sem valinn hefur
verið fyrir hinn Nýja Landspít-
ala við Hringbraut. Þessar tölur
koma samt ekki á óvart þar sem
öllum sem leið eiga um Miklu-
braut/Hringbraut og Bústaða-
veg er kunnugt um hvernig
umferðin mjakast áfram um
þessar götur á flestum tímum
dagsins.
Aðkoman að Nýjum Landspít-
ala við Hringbraut (sem vonandi
mun aldrei verða byggður þar)
er þannig skelfileg jafnt fyrir
sjúklinga, heimsóknargesti,
starfsfólk og síðast en ekki síst
fyrir sjúkraflutninga.
Ástandið á eftir að versna,
bílafjöldi eykst og umferð mun
aukast t.d. með tilkomu Háskól-
ans í Reykjavík, nýrra stúdenta-
garða, Hörpunnar og fjölgun
ferðamanna. Fyrirhugað er að
reisa 250 rúma hótel við hlið
Hörpunnar, sótt hefur verið um
leyfi til byggingar 300 rúma
hótels við rætur Öskjuhlíðar, við
Keiluhöllina. Þrengslin á göt-
unum umhverfis Vatnsmýrina
munu aukast ár frá ári.
Reykjavíkurborg hefur þegar
gefið út yfirlýsingu um að meiri
háttar gatnagerð sé ekki á fram-
kvæmdaáætlun næstu 10-15
árin.
Var þeim sem tóku ákvörðun
um staðarval hins Nýja Land-
spítala við Hringbraut kunnugt
um umferðarþungann sem ofan-
greind tafla sýnir? Það verður
að draga í efa. Var leitað álits
sjúkraflutningamanna? Það
eru jú þeir sem betur en aðrir
þekkja þessa mestu farartálma
Reykjavíkur og hve sjúkraflutn-
ingar um ofangreindar umferð-
aræðar geta verið tímafrekir
og erfiðir á öllum tímum sólar-
hrings.
Flutningstími bráðveikra eða
slasaðra sjúklinga frá heimili
eða slysstað að bráðamóttöku
sjúkrahúss getur oft skipt höfuð-
máli varðandi það hvernig sjúk-
lingnum reiðir af. Flestum er
kunnugt um að hver mínúta sem
líður áður en sjúklingur með
bráðan kransæðasjúkdóm kemst
á sjúkrahús getur verið afdrifa-
rík. Mestu máli skiptir að flutn-
ingstíminn sé sem allra stystur.
Verði Landspítalinn byggður við
Hringbraut er hverjum manni
ljóst að sjúkraflutningar munu
verða tímafrekari innan þessa
þrengsta og umferðarþyngsta
hluta höfuðborgarinnar, heldur
en þar sem umferðaræðar eru
greiðari og aðgengi betra eins og
t.d. að Vífilsstöðum eða Keldna-
holti eða þess vegna í Fossvog-
inum. Í þessu samhengi er höfð
í huga áætluð framtíðarsýn á
íbúabyggð á höfuðborgarsvæð-
inu sem og umferðarþungi eftir
stofnbrautum.
Tökum dæmi: Bráðveik-
an sjúkling eða illa slasaðan
þarf að flytja frá vettvangi í
Grafarvogi, Breiðholti, Mos-
fellsbæ, Akranesi eða Selfossi.
Það tekur tímann X að flytja
sjúklinginn að Vífilsstöðum, en
að minnsta kosti 10 mínútum
lengur, eða tímann X+10 mín-
útur að Hringbrautinni, vegna
meiri vegalengdar og hins
mikla umferðarþunga á leið-
inni eftir Miklubraut/Hring-
braut. Þessi viðbótartími, 10
mínútur, getur skipt sköpum
varðandi lífslíkur eða batahorf-
ur sjúklingsins í sjúkrabílnum.
Hver vill taka ábyrgð á manns-
lífi eða heilsutjóni sem af slíkri
töf á sjúkraflutningi getur leitt?
Stjórnendur Landspítalans? Vel-
ferðarráðherra? Alþingi?
Greinarhöfundar hafa fyrr
fært ítarlegar og vel rökstuddar
ástæður fyrir því hvers vegna
nýr Landspítali eigi ekki að rísa
við Hringbraut. Það er versta
staðsetningin af öllum þeim sem
nefndar hafa verið. En svo virð-
ist sem þeir sem tóku ákvörðun
um staðarvalið hafi verið með
svipað hugarfar og Snæfríður
Íslandssól þegar velja skyldi
henni mannsefni:
„Heldur þann versta en þann
næstbesta“ sagði hún þegar
faðir hennar spurði hana 17 ára
gamla hvers vegna hún vildi
ekki Dómkirkjuprestinn.
Nýi Landspítalinn: „Heldur þann versta …“
handföng
hljómtæki í stýri
stöð CFC frí.
ur, armpúði og
2 glasahaldarar
Hólf
lofti
ur að framan
og aftan með klemmuvörn
Fjarstýrð opnun/lokun á
rafmagnsrúðum
Mjóbaksstilling á ökumannssæti
Svaka búnaður í Titanium
Aksturstölva, stillanleg í stýri
Þvottakerfi á aðalljósum
Upplýstir speglar í
sólskyggnum
Leðurklætt
stýrishjól
Kælanlegt
hanskahólf
Easy fuel eldsneytisfylling án loks
Stefnuljós í útispeglum
Leðurklæddur gírstangarhnúður
Armpúði í miðju aftursætis
Frjókornasía
Hæðarstillanlegt stýri með
aðdrætti
Háls- og bakhnykksvörn í
framsætum
Ofnæmisprófuð efni í innréttingu
12v tengill í mælaborði
Dagljósabúnaður
LED afturljós
LED lesljós að framan og aftan
Útihitamælir
Hálkuviðvörun
Innstigshlífar, svartar
17“ felgur og dekk
Hæðarstillanleg
öryggisbelti
Viðgerðarsett
fyrir dekk
Verksmiðjuryðvörn
17“ Titanium álfelgur
Hraðastillir með stillanlegum
hraðatakmarkara
Blátónaðar rúður
Titanium sportsæti
Baksýnisspegill með
sjálfvirkri dimmingu
Krómlistar neðst við hliðarrúður
Krómútlit á grilli
Teppamottusett
Kortaljós að framan og aftan
Svaka búnaður í Titanium
ABS hemlalæsivörn með EBD
hemlajöfnun
IPS öryggiskerfi (Intelligent
Protection System)
4 öryggispúðar
2 öryggisgardínur
Öryggispúði fyrir hné ökumanns
Diskabremsur á öllum hjólum
ISOFIX festingar fyrir barnabí-
lstóla, 2 stk.
ESP stöðuleikastýrikerfi með
spólvörn
MacPherson fjöðrun að framan
Control Blade fjöðrun að
aftan
Upphitanleg öll fram-
rúðan, Quickclear
Samlæsing með
fjarstýringu
Samlit hurðarhandföng
Samlitir útispeglar
Rafstillanlegir og upphi-
tanlegir útispeglar
Kastarar að framan
Ford 6000 hljómtæki,
1
geisladiskur
8 hátalarar
Ipod tengi
Stillingar fyrir hljómtæki
í stýri
Tölvustýrð miðstöð CFC
frí.
Hólf fyrir gleraugu í lofti
Rafdrifnar rúður að fra-
man og aftan með klem-
muvörn
Fjarstýrð opnun/lokun á
rafmagnsrúðum
Rafdrifin hæðarstilling á
ökumannssæti
Mjóbaksstilling á öku-
mannssæti
Hiti í framsætum, stillanlegur
Tvískipt aftursæti
Aksturstölva, stillanleg í stýri
Þvottakerfi á aðalljósum
Upplýstir speglar í sólskyggnum
Farmfestingar í skotti
Leðurklætt stýrishjól
Kælanlegt hanskahólf
Easy fuel eldsneytisfylling án loks
Stefnuljós í útispeglum
Leðurklæddur gírstangarhnúður
Háls- og bakhnykksvörn í
framsætum
Ofnæmisprófuð efni í innréttingu
12v tengill í mælaborði
Dagljósabúnaður
LED afturljós
Gardína í farangursrými, station
LED lesljós að framan og aftan
Útihitamælir
Hálkuviðvörun
Innstigshlífar, svartar
16“ felgur og dekk 205/55
R16
Rafstýrðir bílbeltastrekkjarar í
framsætum
Hæðarstillanleg öryggisbelti
Viðgerðarsett fyrir dekk
Verksmiðjuryðvörn
12V tengill í farangursrými í
station
17“ Titanium álfelgur
Hraðastillir með stillanlegu
hraðatakmarkara
5.8” lita upplýsingaskjár í
mælaborði
Blátónaðar rúður
Titanium sportsæti
Sér blástur frá miðstöð fyrir
aftursæti
Baksýnisspegill með sjálf-
virkri dimmingu
Regnskynnjari í framrúðu
LED kastarar
Krómlistar neðst við hliðar-
rúður
Krómútlit á grilli
Teppamottusett
Sjálfvirk hæðarstilling
aðalljósa
Kortaljós að framan og aftan.000!
Nýr Landspítali
Guðjón
Baldursson
læknir
Bryndís
Guðjónsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Miklabraut/Kringlumýrarbraut 95.901
Miklabraut/Grensásvegur 78.051
Miklabraut/Bústaðavegur/Hringbraut 69.432
Miklabraut/Háaleitisbraut 68.506
Reykjanesbraut/Bústaðavegur 68.202
Miklabraut/Langahlíð 54.791
Kringlumýrarbraut/Háaleitisbraut 51.065
Kringlumýrarbraut//Laugavegur 46.820
Bústaðavegur/Flugvallarvegur 40.189
Bústaðavegur/Snorrabraut 35.539
Bústaðavegur/Kringlumýrarbraut –brú austar 34.673
Aðkoman að Nýjum Landspítala við
Hringbraut (sem vonandi mun aldrei
verða byggður þar) er þannig skelfileg
jafnt fyrir sjúklinga, heimsóknargesti, starfsfólk og
síðast en ekki síst fyrir sjúkraflutninga.