Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 25

Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 25
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2012 25 Flestum mun kunnugt um að fyrir liggja áætlanir um að byggja upp nýjan Land- spítala við Hringbraut. Nefnd- ir hafa verið aðrir möguleikar á staðsetningu t.d. Vífilsstað- ir, Keldnaholt og fleiri en ekki hefur verið léð máls á þeim til- lögum. Undirrituð og fleiri hafa bent á að staðarvalið sé stór mistök ekki síst með hliðsjón af umferð. Miklabrautin/Hring- brautin og Bústaðavegur eru sennilega mestu umferðargötur höfuðborgarinnar og mikill far- artálmi bæði í nútíð og framtíð. Eftirfarandi tafla sem fengin er frá Umferðar- og samgöngu- sviði Reykjavíkurborgar sýnir sniðtalningar sl. 10 ára þ.e. umferðarmagn (metin sólar- hringsumferð, allir straumar í gatnamótum) á stærstu umferð- arljósagatnamótum borgarinn- ar: Af töflunni má ráða að umferðarþungi á götum Reykja- víkur er þyngstur einmitt næst þeim stað sem valinn hefur verið fyrir hinn Nýja Landspít- ala við Hringbraut. Þessar tölur koma samt ekki á óvart þar sem öllum sem leið eiga um Miklu- braut/Hringbraut og Bústaða- veg er kunnugt um hvernig umferðin mjakast áfram um þessar götur á flestum tímum dagsins. Aðkoman að Nýjum Landspít- ala við Hringbraut (sem vonandi mun aldrei verða byggður þar) er þannig skelfileg jafnt fyrir sjúklinga, heimsóknargesti, starfsfólk og síðast en ekki síst fyrir sjúkraflutninga. Ástandið á eftir að versna, bílafjöldi eykst og umferð mun aukast t.d. með tilkomu Háskól- ans í Reykjavík, nýrra stúdenta- garða, Hörpunnar og fjölgun ferðamanna. Fyrirhugað er að reisa 250 rúma hótel við hlið Hörpunnar, sótt hefur verið um leyfi til byggingar 300 rúma hótels við rætur Öskjuhlíðar, við Keiluhöllina. Þrengslin á göt- unum umhverfis Vatnsmýrina munu aukast ár frá ári. Reykjavíkurborg hefur þegar gefið út yfirlýsingu um að meiri háttar gatnagerð sé ekki á fram- kvæmdaáætlun næstu 10-15 árin. Var þeim sem tóku ákvörðun um staðarval hins Nýja Land- spítala við Hringbraut kunnugt um umferðarþungann sem ofan- greind tafla sýnir? Það verður að draga í efa. Var leitað álits sjúkraflutningamanna? Það eru jú þeir sem betur en aðrir þekkja þessa mestu farartálma Reykjavíkur og hve sjúkraflutn- ingar um ofangreindar umferð- aræðar geta verið tímafrekir og erfiðir á öllum tímum sólar- hrings. Flutningstími bráðveikra eða slasaðra sjúklinga frá heimili eða slysstað að bráðamóttöku sjúkrahúss getur oft skipt höfuð- máli varðandi það hvernig sjúk- lingnum reiðir af. Flestum er kunnugt um að hver mínúta sem líður áður en sjúklingur með bráðan kransæðasjúkdóm kemst á sjúkrahús getur verið afdrifa- rík. Mestu máli skiptir að flutn- ingstíminn sé sem allra stystur. Verði Landspítalinn byggður við Hringbraut er hverjum manni ljóst að sjúkraflutningar munu verða tímafrekari innan þessa þrengsta og umferðarþyngsta hluta höfuðborgarinnar, heldur en þar sem umferðaræðar eru greiðari og aðgengi betra eins og t.d. að Vífilsstöðum eða Keldna- holti eða þess vegna í Fossvog- inum. Í þessu samhengi er höfð í huga áætluð framtíðarsýn á íbúabyggð á höfuðborgarsvæð- inu sem og umferðarþungi eftir stofnbrautum. Tökum dæmi: Bráðveik- an sjúkling eða illa slasaðan þarf að flytja frá vettvangi í Grafarvogi, Breiðholti, Mos- fellsbæ, Akranesi eða Selfossi. Það tekur tímann X að flytja sjúklinginn að Vífilsstöðum, en að minnsta kosti 10 mínútum lengur, eða tímann X+10 mín- útur að Hringbrautinni, vegna meiri vegalengdar og hins mikla umferðarþunga á leið- inni eftir Miklubraut/Hring- braut. Þessi viðbótartími, 10 mínútur, getur skipt sköpum varðandi lífslíkur eða batahorf- ur sjúklingsins í sjúkrabílnum. Hver vill taka ábyrgð á manns- lífi eða heilsutjóni sem af slíkri töf á sjúkraflutningi getur leitt? Stjórnendur Landspítalans? Vel- ferðarráðherra? Alþingi? Greinarhöfundar hafa fyrr fært ítarlegar og vel rökstuddar ástæður fyrir því hvers vegna nýr Landspítali eigi ekki að rísa við Hringbraut. Það er versta staðsetningin af öllum þeim sem nefndar hafa verið. En svo virð- ist sem þeir sem tóku ákvörðun um staðarvalið hafi verið með svipað hugarfar og Snæfríður Íslandssól þegar velja skyldi henni mannsefni: „Heldur þann versta en þann næstbesta“ sagði hún þegar faðir hennar spurði hana 17 ára gamla hvers vegna hún vildi ekki Dómkirkjuprestinn. Nýi Landspítalinn: „Heldur þann versta …“ handföng hljómtæki í stýri stöð CFC frí. ur, armpúði og 2 glasahaldarar Hólf lofti ur að framan og aftan með klemmuvörn Fjarstýrð opnun/lokun á rafmagnsrúðum Mjóbaksstilling á ökumannssæti Svaka búnaður í Titanium Aksturstölva, stillanleg í stýri Þvottakerfi á aðalljósum Upplýstir speglar í sólskyggnum Leðurklætt stýrishjól Kælanlegt hanskahólf Easy fuel eldsneytisfylling án loks Stefnuljós í útispeglum Leðurklæddur gírstangarhnúður Armpúði í miðju aftursætis Frjókornasía Hæðarstillanlegt stýri með aðdrætti Háls- og bakhnykksvörn í framsætum Ofnæmisprófuð efni í innréttingu 12v tengill í mælaborði Dagljósabúnaður LED afturljós LED lesljós að framan og aftan Útihitamælir Hálkuviðvörun Innstigshlífar, svartar 17“ felgur og dekk Hæðarstillanleg öryggisbelti Viðgerðarsett fyrir dekk Verksmiðjuryðvörn 17“ Titanium álfelgur Hraðastillir með stillanlegum hraðatakmarkara Blátónaðar rúður Titanium sportsæti Baksýnisspegill með sjálfvirkri dimmingu Krómlistar neðst við hliðarrúður Krómútlit á grilli Teppamottusett Kortaljós að framan og aftan Svaka búnaður í Titanium ABS hemlalæsivörn með EBD hemlajöfnun IPS öryggiskerfi (Intelligent Protection System) 4 öryggispúðar 2 öryggisgardínur Öryggispúði fyrir hné ökumanns Diskabremsur á öllum hjólum ISOFIX festingar fyrir barnabí- lstóla, 2 stk. ESP stöðuleikastýrikerfi með spólvörn MacPherson fjöðrun að framan Control Blade fjöðrun að aftan Upphitanleg öll fram- rúðan, Quickclear Samlæsing með fjarstýringu Samlit hurðarhandföng Samlitir útispeglar Rafstillanlegir og upphi- tanlegir útispeglar Kastarar að framan Ford 6000 hljómtæki, 1 geisladiskur 8 hátalarar Ipod tengi Stillingar fyrir hljómtæki í stýri Tölvustýrð miðstöð CFC frí. Hólf fyrir gleraugu í lofti Rafdrifnar rúður að fra- man og aftan með klem- muvörn Fjarstýrð opnun/lokun á rafmagnsrúðum Rafdrifin hæðarstilling á ökumannssæti Mjóbaksstilling á öku- mannssæti Hiti í framsætum, stillanlegur Tvískipt aftursæti Aksturstölva, stillanleg í stýri Þvottakerfi á aðalljósum Upplýstir speglar í sólskyggnum Farmfestingar í skotti Leðurklætt stýrishjól Kælanlegt hanskahólf Easy fuel eldsneytisfylling án loks Stefnuljós í útispeglum Leðurklæddur gírstangarhnúður Háls- og bakhnykksvörn í framsætum Ofnæmisprófuð efni í innréttingu 12v tengill í mælaborði Dagljósabúnaður LED afturljós Gardína í farangursrými, station LED lesljós að framan og aftan Útihitamælir Hálkuviðvörun Innstigshlífar, svartar 16“ felgur og dekk 205/55 R16 Rafstýrðir bílbeltastrekkjarar í framsætum Hæðarstillanleg öryggisbelti Viðgerðarsett fyrir dekk Verksmiðjuryðvörn 12V tengill í farangursrými í station 17“ Titanium álfelgur Hraðastillir með stillanlegu hraðatakmarkara 5.8” lita upplýsingaskjár í mælaborði Blátónaðar rúður Titanium sportsæti Sér blástur frá miðstöð fyrir aftursæti Baksýnisspegill með sjálf- virkri dimmingu Regnskynnjari í framrúðu LED kastarar Krómlistar neðst við hliðar- rúður Krómútlit á grilli Teppamottusett Sjálfvirk hæðarstilling aðalljósa Kortaljós að framan og aftan.000! Nýr Landspítali Guðjón Baldursson læknir Bryndís Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur Miklabraut/Kringlumýrarbraut 95.901 Miklabraut/Grensásvegur 78.051 Miklabraut/Bústaðavegur/Hringbraut 69.432 Miklabraut/Háaleitisbraut 68.506 Reykjanesbraut/Bústaðavegur 68.202 Miklabraut/Langahlíð 54.791 Kringlumýrarbraut/Háaleitisbraut 51.065 Kringlumýrarbraut//Laugavegur 46.820 Bústaðavegur/Flugvallarvegur 40.189 Bústaðavegur/Snorrabraut 35.539 Bústaðavegur/Kringlumýrarbraut –brú austar 34.673 Aðkoman að Nýjum Landspítala við Hringbraut (sem vonandi mun aldrei verða byggður þar) er þannig skelfileg jafnt fyrir sjúklinga, heimsóknargesti, starfsfólk og síðast en ekki síst fyrir sjúkraflutninga.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.