Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 96
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR60
Þeim Íslendingum sem
semja tónlist við bandarísk-
ar kvikmyndir hefur fjölgað
mikið að undanförnu. Nýj-
asti meðlimurinn í hópnum
er Barði Jóhannsson.
Þeim íslensku tónlistarmönnum
sem semja tónlist við bandarískar
kvikmyndir virðist fjölga með degi
hverjum.
Núna síðast greindi Fréttablaðið frá
því að Barði Jóhannsson hefði samið
alla tónlistina í spennumyndinni
Would You Rather, ásamt Daniel
Hunt úr hljómsveitinni Ladytron.
Einnig er stutt síðan greint var frá
því að Jóhann Jóhannsson hefði
samið tónlistina við myndina For
Ellen með Paul Dano og Jon Heder
í aðalhlutverkum.
Þá eru ótaldir Jónsi í Sigur Rós,
sem samdi tónlistina við Holly-
wood-myndina We Bought A Zoo,
Ólafur Arnalds sem samdi tónlist-
ina við Another Happy Day með
Demi Moore og Kate Bosworth í
aðalhlutverkum, og Atli Örvarsson
sem samdi tónlistina við Season of
the Witch með Nicolas Cage í titil-
rullunni.
Hægt er að hafa mikið upp úr því
að semja tónlist við dýrar myndir
og til að mynda hefur Jónsi vafa-
lítið fengið væna summu í vasann
fyrir vinnu sína fyrir We Bought
A Zoo, sem er týpísk Hollywood-
mynd með stjörnum í aðalhlutverk-
unum, eða þeim Matt Damon og
Scarlett Johansson. Leikstjórinn
Cameron Crowe var svo ánægður
með frammistöðu Jónsa að hann
fékk hann til að semja tónlistina
við nýja gamanmynd sem hann er
með í smíðum. Vafalítið hefur Atli
Örvarsson einnig fengið vel borg-
að fyrir tónlist sína við rándýra
hasarmynd byggða á ævintýrinu
um Hans og Grétu sem verður
frumsýnd á næsta ári með Jeremy
Renner og Gemmu Arterton í aðal-
hlutverkunum. Jóhann Jóhannsson
skrifaði nýverið undir samning
við eina virtustu umboðsskrif-
stofu kvikmyndatónskálda í Holly-
wood; Gorfein/Schwartz. Aðspurður
segir hann það rosalega mismun-
andi hvernig menn fái borgað fyrir
vinnu sem þessa. Það fari allt eftir
eðli og stærð myndarinnar. „Fyrir
mig er það ekkert alltaf pening-
urinn sem skiptir aðalmáli heldur
hvort verkefnið er áhugavert. Hins
vegar er þetta yfirleitt frekar vel
borgað. Þetta er mismunandi eftir
markaðssvæðum en í Ameríku er
miklu hærri kostnaðaráætlun en í
Evrópu.“
Hvað sem peningamálum líður
er ljóst að íslenskir tónlistarmenn
eru farnir að fikra sig inn í Holly-
wood og eiga eflaust eftir að gera
sig enn frekar gildandi þar á kom-
andi árum.
freyr@frettabladid.is
ÍSLENSK TÓNSKÁLD FÁ AUKIN
TÆKIFÆRI Í HOLLYWOOD
J. K. Rowling, höfundur Harry
Potter bókanna hefur tilkynnt að
hún sé að vinna að nýrri skáld-
sögu. Þó er ekki um að ræða við-
bót við Potter-bækurnar, en að
sögn Rowling verður skáldsagan
mjög ólík bókunum um galdra-
strákinn. Ekki er enn kominn
titill á bókina né útgáfudagur.
Rowling er sögð fagna því að vel-
gengni Potter-bókanna hafi veitt
henni frelsi til að takast á við ný
viðfangsefni, en bókin er ætluð
fullorðnum.
Bækurnar um Harry Potter
eru sjö talsins og hafa selst í
meira en 450 milljón eintökum
um allan heim.
Ný bók frá
J. K. Rowling
ENGIN NÝ POTTER-BÓK Í BILI Aðdá-
endur J. K. Rowling bíða þrátt fyrir það
eflaust spenntir eftir nýju skáldsögunni.
folk@frettabladid.is
KVIKMYNDATÓNSKÁLD
Íslensku kvikmyndatónskáldin Barði
Jóhannsson, Jóhann Jóhannsson, Atli
Örvarsson, Jónsi og Ólafur Arnalds eru
farin að fá aukin tækifæri í Hollwyood.
Mynd af söngkonunni Whitney
Houston í opinni kistu sem birt-
ist á forsíðu götublaðsins The
National Enquirer hefur vakið
mikið hneyksli.
Á myndinni liggur Houston í
gylltri kistu í einkaathöfn sem
fjölskylda hennar hélt daginn
fyrir jarðarförina. Ákvörðun
blaðsins um að birta myndina
með fyrirsögninni Whitney: Síð-
asta myndin!, hefur verið gagn-
rýnd harðlega bæði af aðdá-
endum söngkonunnar og öðrum
fjölmiðlum.
Whitney Houston lést 11. febrú-
ar á hótelherbergi í Los Angeles.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað
varð henni að aldurtila.
Mynduð í
kistunni
FANGELSI FYRIR SÍMAÞJÓFNAÐ Chris Brown, fyrrverandi kærasti söng-
konunnar Rihönnu, gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm, ef ásakanir um símaþjófnað
reynast réttar. Fregnir herma að hann hafi stolið iPhone af aðdáanda sem reyndi að
ná af honum mynd. Brown er enn á skilorði eftir líkamsárás gegn Rihönnu.