Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 41
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir25. FEBRÚAR 2012 LAUGARDAGUR 3 Gengið milli byggðarlaga Sigrún Valbergsdóttir er öllum hnútum kunn- ug í Færeyjum en þar leiðir hún göngugarpa milli byggðarlaga. Þá er Sigrún einnig fararstjóri í göngu- ferðum um Keisarafjöllin í Austurríki. „Þetta eru hvort tveggja vikuferðir og gengið alla dagana. Í Færeyjum gistum við á þremur mismun- andi stöðum og göngum milli byggða, gamlar leið- ir sem gengnar voru áður en vegasamband komst á. Þetta eru óbyggðagöngur, stundum troðningar eða varðaðar leiðir en ekki alltaf,“ útskýrir Sigrún og segir fólk þurfa að vera í sæmilegu formi til að ráða við gönguleiðirnar. „Þetta er ekkert klifur né yfir jökulár að fara en við leggjum að baki nokkur hundruð hæðarmetra á hverjum degi. Hver dagleið er 10-15 kíló- metrar og við komum við á sex af átján eyjum Færeyja. Einn daginn sigl- um við frá Vogum og yfir í Mykines sem er vestasta eyjan, undurfögur klettaey með gamalli byggð og eins og að detta inn í nítjándu öldina að ganga þar um. Á göngunni er fræðst um fólk og sögu og náttúru eyjanna og farið á menningarstaði eins og Kirkjubæ á Straumey.“ Í gönguferðinni um Keisarafjöllin er gist á fjögurra stjörnu hóteli í bænum Walchsee við samnefnt vatn. Þar er gist allan tímann og dag- lega farið í ferðir út frá hótelinu. „Þarna eru allt í kring fjöll og fjalla- hryggir og aldrei gengin sama leiðin tvo daga í röð. Þetta er óendanlega fallegt svæði,“ segir Sigrún. „Við miðum við að vera á hæsta hrygg um hádegisbil og þar eru bændur með veitingastað þar sem hægt er að fá sér hressingu. Ekkert þarf að bera með sér á göngunni, nema kannski auka peysu eða regnstakk. En annars er að sjálfsögðu alltaf sól í svona ferðum.“ Hjólið frábær ferðamáti Rúnar Helgason er fararstjóri tveggja sjö daga hjólaferða um Þýskaland: Við rætur Alpanna og Garmisch Partenkirchen – Bad Tölz. Í báðum ferðum er hjólað eftir vinsælustu hjólaleið- um Þýskalands. „Þessar hjólaferðir eru fyrir alla sem hreyfa sig eitthvað og þátttakend- ur hafa verið á aldrinum 12 til 74 ára. Í flestum tilfellum leigjum við reiðhjólin á staðnum og fólk pakkar létt fyrir ferðina en við hjólum með farangurinn á bögglaberanum,“ segir Rúnar en búið er að skipleggja dagleiðirnar fyrirfram. Hópur- inn hjólar á milli hótela þar sem gist er eina nótt, en einu sinni í hvorri ferð gistir hópur- inn í tvær nætur og er þá hægt að taka hvíld. „Við erum ekkert að f lýta okkur. Við stoppum á veitingastöðum á leiðinni, fáum okkur hressingu og skoðum okkur um. Það er engin keppni í gangi og markmiðið að allir fái á tilfinninguna að þeir séu í fríi,“ segir Rúnar. „Hjólið er frábær ferðamáti til að upplifa umhverfið, lyktina, ferska loft- ið og hljóðin, en í báðum ferðum er hjól- að um stórbrotið landslag. Við reynum að velja leiðir þar sem eru ekki miklar brekk- ur en auðvitað er alltaf eitthvað um þær. Við hjólum frá München og inn í Alpana. Ég fer yfirleitt á undan hópnum og konan mín, Þuríður Árnadóttir, er aftast og pass- ar að enginn dragist aftur úr. Við segj- um bara eins og skáldið, ekkert bratt, bara mismunandi flatt,“ segir Rúnar. Útivist með Bændaferðum Bændaferðir hafa boðið upp á svokallaðar hreyfiferðir um margra ára skeið þar sem náttúrunnar er notið með útivist og hreyfingu. Rúnar Helgason og Sigrún Valbergsdóttir eru fararstjórar í spennandi hjóla- og gönguferðum meðal annars í Færeyjum, Austurríki og Þýskalandi. Mikil náttúrufegurð einkennir svæðið við rætur Keisarafjallanna. Sigrún Vilbergs- dóttir leiðir ferðalanga um svæðið. MYND/BÆNDAFERÐIR Hjólað er um eina fallegustu hjólaleið Þýskalands við rætur Alpanna sem gjarnan er kölluð „Panorama-hjólaleiðin” eða útsýnisleiðin. MYND/BÆNDAFERÐIR ÞAÐ SEM FER Í TAUGARNAR Á FREYJUNUM Ferðasíðan Frommers tók saman fjögur atriði sem fara mest í taug- arnar á flugfreyjum og -þjónum. 1. Að veita kynningu á öryggisatriðum ekki athygli. Farþegar eiga til að lesa bók eða spjalla saman meðan á kynningunni stendur. Þetta þykir mörgum flugfreyjum dónalegt og bera vott um virðingarleysi. 2. Þegar fólk tekur ekki af sér heyrnartólin rétt á meðan því er þjónað. 3. Fólk sem hagar sér ruddalega og segir til dæmis ekki takk þegar því er réttur koddi eða drykkur fer í taugarnar á áhafnarmeðlimum. Það þykir heldur ekki fínt að sitja og klippa á sér neglurnar eða vera með skóna upp í sætinu. Þeir sem standa langdvölum í ganginum og eru þannig fyrir flugfreyjunum og vögnunum þeirra vekja sjaldnast lukku. 4. Þeir sem hlusta ekki á leiðbeiningar. Meðan á flugferðinni stendur þarf áhöfnin stundum að koma skilaboðum til farþeganna. Oft virðast þessar ábendingar fara inn um annað eyrað og út um hitt. Því spyr fólk reglulega um atriði sem búið er að útskýra í hátalarakerfinu, flugfreyjunum til mikillar armæðu. heimild: turisti.is Flugþjónar og -freyjur þola ekki þegar fólk hunsar kynningar á öryggisatriðum. B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in ga á s lík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Bratislava – Budapest 27. apríl - 1. maí Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir Vínarborg og Györ Beint flug Skemmtileg 5 daga sérferð til Vínarborgar í Austurríki og Györ í Ungverjalandi. Innifalið: Flug til og frá Budapest, skattar, gisting á góðum 3*/ 3*+ hótelum í 4 nætur með morgun- verðarhlaðborði. 4 kvöldverðir. Kynnisferðir um: Vínarborg, Bratislava, Györ og Budapest. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns. Netverð: 145.900 kr. á mann í tvíbýli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.