Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 10
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR10
landsbankinn.is 410 4040Landsbankinn
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
j
l.
is
•
S
ÍA
*Nafnávöxtun 30.12.2010–30.12.2011. Nánari upplýsingar
um ávöxtun sjóðsins er að fi nna á landsvaki.is.
Fyrirvari: Sparibréf verðtryggð er verðbréfasjóður sam-
kvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur e irliti Fjármála-
e irlitsins. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og
Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt
árfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði
hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vís-
bendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um
sjóðinn má fi nna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á
landsvaki. is eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að
kynna sér útboðslýsinguna áður en árfest er í sjóðnum,
en þar er meðal annars ítarleg um öllun um árfestingar-
stefnu sjóðsins og áhættu sem felst í árfestingu í honum.
Landsbankinn býður upp á öl-
breytt úrval ríkis skulda bréfa sjóða.
Sparibréf verðtryggð er sjóður sem
árfestir í verðtryggðum skuldabréf-
um íslenska ríkisins og hefur það
markmið að endurspegla ávöxtun
verðtryggðra ríkisskuldabréfa.
Reglubundinn sparnaður
Með reglubundnum sparnaði í
sjóðum getur þú byggt upp eigna-
safn með áskri frá 5.000 kr. á
mánuði. Enginn munur er á kaup-
og sölugengi í áskri . Sparnað
í sjóðum má alltaf innleysa.
Komdu við í næsta útibúi, hringdu
í 410 4040 eða sendu okkur póst
á armalaradgjof@landsbankinn.is.
Framúrskarandi
ávöxtun Sparibréfa
verðtryggðra á
árinu 2011
16,3%
Ársávöxtun
2011*
SÝRLAND, AP Konur og börn voru
flutt burt frá úthverfi sýrlensku
borgarinnar Homs í gær en þá
komust starfsmenn Rauða kross-
ins og Rauða hálfmánans á stað-
inn. Sprengjuregn hefur dunið á
hverfinu undanfarið og eru slas-
aðir blaðamenn meðal þeirra sem
bíða flutnings.
Hundruð stuðningsmanna Bas-
hars al-Assad Sýrlandsforseta
réðust í gær inn á hótel í Túnis
þar sem fulltrúar Vesturlanda og
arabaríkja ræddu leiðir til lausnar
átökunum í Sýrlandi. Öryggisvörð-
um tókst þó að stöðva mennina.
Á fundinum komu fulltrú-
ar Bandaríkjanna, Evrópusam-
bandsins, Arababandalagsins
og ýmissa alþjóðastofnana sér
saman um að auka enn þrýsting-
inn á Assad forseta. „Vinahópur
sýrlensku þjóðarinnar“, eins og
þessi hópur Vesturlanda, araba-
ríkja og alþjóðastofnana nefnir
sig, krefst þess í drögum að álykt-
un fundarins að allri valdbeitingu
verði þegar í stað hætt svo hægt
sé að senda fólk frá hjálparstofn-
unum til landsins að aðstoða fólk,
sem á þar um sárt að binda eftir
hörð átök síðustu vikna og mánaða.
Hvorki Rússland né Kína vildu
taka þátt í þessum fundi, enda
eru þau andvíg því að erlend ríki
blandi sér í átökin í Sýrlandi og
beittu neitunarvaldi þegar ályktun
þess efnis var borin undir atkvæði
í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
nýverið.
Sýrlensk stjórnvöld efna á morg-
un til þjóðaratkvæðagreiðslu um
breytta stjórnskipan, sem sögð er
fullnægja kröfum mótmælenda
um endurbætur í lýðræðisátt,
meðal annars með því að afnema
formlega sérstöðu stjórnmála-
flokksins Baath. Í reynd styrkja
breytingarnar völd Assads forseta,
meðal annars vegna þess að Baath-
flokkurinn hefur aðeins að nafninu
til haft sterka stöðu. Völdin hafa
verið hjá forsetanum og verða það
áfram.
Breytingarnar eru því fallnar
til þess að kljúfa enn frekar sam-
félagið í andstæðar fylkingar, en
uppreisnin gegn Assad forseta
hófst fyrir tæpu ári með friðsam-
legum mótmælum. Harkaleg við-
brögð stjórnvalda sneru mótmæl-
unum fljótt upp í óeirðir og nú
síðast borgarastyrjöld sem kostað
hefur þúsundir manna lífið.
Engar nákvæmar tölur eru um
mannfallið. Í janúar sögðu Sam-
einuðu þjóðirnar 5.400 manns hafa
látið lífið, en hafa ekki uppfært þá
tölu síðan vegna þess að ekki er
aðgangur að áreiðanlegum upplýs-
ingum. Þó er vitað að fleiri hundr-
uð manns hafa látist síðan. Upp-
reisnarmenn í Sýrlandi segja tölu
látinna komna yfir 7.300 manns.
Stór hluti þeirra eru almenn-
ir borgarar, sem linnulítið verða
fyrir sprengjuárásum frá stjórn-
arhernum. Hundruð barna eru þar
á meðal.
gudsteinn@frettabladid.is
Konur og börn
flutt frá Homs
Starfsmenn Rauða krossins og Rauða hálfmánans
komu til Homs í Sýrlandi í gær. Þeir hófu þegar að
flytja konur og börn á brott. Leiðtogar Vesturlanda
og arabaríkja krefjast vopnahlés í Sýrlandi.
BORGARASTYRJÖLD Sýrlenskir uppreisnarmenn í borginni Homs í átökum við herinn.
NORDICPHOTOS/AFP
GLYS OG GLAUMUR Frá kjötkveðjuhá-
tíð í Brasilíu þar sem óhófið ræður
ríkjum að vanda. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Eigendastefna ríkisins
ætti að ná til fjármálafyrirtækja í
eigu hins opinbera og skylda þau
þannig til að upplýsa opinberlega
um eignir sínar og hvaða stefnu
þau hafa um sölu þeirra.
Þetta segir starfshópur forsæt-
isráðuneytisins um verklag við
einkavæðingu í skýrslu sem lögð
var fram á fundi ríkisstjórnarinn-
ar í vikunni.
Starfshópurinn telur að rétta
leiðin til að hafa áhrif á sölu fjár-
málafyrirtækja í meirihlutaeigu
ríkisins á hlutum sínum í öðrum
fyrirtækjum sé að fella þau undir
eigendastefn-
una. Ekki ætti
að setja sérstak-
ar reglur um
Landsbankann
eða önnur fjár-
málafyrirtæki í
meirihlutaeigu
ríkisins.
Starfshóp-
urinn telur að
sk ý ra þurfi
mörkin milli markmiða stjórn-
valda með sölu ríkisfyrirtækja og
faglegrar umsjónar með henni,
ella verði ekki hafið yfir vafa að
jafnræðis og gagnsæis verði gætt
við einkavæðingar.
„Verklagið við einkavæðingu
ríkisbankanna fyrir um einum
áratug varð afdrifaríkt fyrir
þjóðina og hefur verið harðlega
gagnrýnt,“ er haft eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra
í fréttatilkynningu. „Við viljum
koma í veg fyrir að slíkt endur-
taki sig og því fagna ég niðurstöð-
um starfshópsins.“
Með gerð skýrslunnar sé þó ekki
gefið til kynna að á döfinni sé að
selja í bráð stórar eignir ríkisins,
eins og Landsbankann. - sh
Starfshópur forsætisráðuneytisins vill breyta ferlinu við einkavæðingar:
Ríkisbankar lúti eigendastefnu
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
VÍETNAM, AP Óttast er að algengur
barnavírus muni leggjast á marg-
falt fleiri víetnömsk börn þetta
árið en undanfarin misseri. Síðan
í janúar hafa meira en 6.000 börn
í landinu veikst af vírusnum, sem
veldur sýkingu á höndum, fótum
og í munni, og níu látist. Bana-
meinið er stökkbreytt afbrigði
vírussins EV-71.
Fjöldi sýktra er sjö sinnum
meiri en á fyrstu sex vikum síð-
asta árs. Þá veiktust meira en 110
þúsund manns og 116 létust. Ekk-
ert bóluefni er til við sýkinni. - sv
Börn veikjast í Víetnam:
Óttast faraldur
barnavíruss