Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 6

Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 6
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR6 STJÓRNSÝSLA Bann íslenskra stjórnvalda við sölu á áfengum drykkjum með koffíni í vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis- ins (ÁTVR) er á leið fyrir EFTA- dómstólinn til að fá úr því skorið hvort það standist ákvæði samn- ingsins um evrópska efnahags- svæðið (EES). Þar með eru tvö mál á leið fyrir dómstólinn, en eins og Fréttablað- ið greindi frá í gær hefur annar áfengisheildsali farið fram á að fá ráðgefandi úrskurð dómstólsins um heimildir ÁTVR til að neita að taka áfengistegundir í sölu. Drykkurinn Cult Shaker var fáanlegur í vínbúðum frá árinu 2006. Þegar nýjar reglur um vöru- úrval ÁTVR um leyfilegt innihald á koffíni í áfengi tóku gildi árið 2009 tóku verslanirnar drykkinn úr sölu þar sem koffíninnihald hans var yfir leyfilegum mörkum. Ákvörðun ÁTVR var kærð til fjármálaráðuneytisins, sem stað- festi ákvörðunina. Áfengisheild- salinn Vín Tríó, sem flutti drykk- inn til landsins, höfðaði mál fyrir héraðsdómi til að fá niðurstöðunni hnekkt. „Ákvörðunin byggði ekki á neinum rannsóknum, það hafði ekkert komið fram að svona drykkir væru skaðlegri en áfengi almennt,“ segir Birgir Tjörvi Pét- ursson, lögmaður Vín Tríó. Hann segir þá ákvörðun stjórnvalda að banna áfengistegundir sem inni- haldi koffín skýrt brot á reglum EES-samningsins um frjálst flæði vöru. Engin rök séu fyrir því að banna þessa drykki þegar óáfeng- ir koffíndrykkir séu seldir í versl- unum, og séu gjarnan notaðir með áfengi. Íslenska ríkið tók til varnar í málinu, og taldi viðurkennt að Áfengir koffíndrykkir sendir til EFTA-dóms Bann við sölu á áfengum koffíndrykkjum í vínbúðum stenst ekki ákvæði EES- samningsins að mati víninnflytjanda. Segir engar rannsóknir liggja að baki banninu. Íslenska ríkið vísar í heilsufarsleg sjónarmið til stuðnings banninu. VÍNBÚÐ Heimilt var að selja áfenga koffíndrykki til ársins 2009, þegar bann var lagt við sölu þeirra í vínbúðunum með nýrri reglugerð. Því banni vill áfengisheild- sali fá hnekkt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ekki er rétt að orðið bríó sé slangur yfir að vera hífaður, eins og fram kemur í kæru til fjármálaráðuneytisins vegna ákvörðunar ÁTVR að heimila ekki sölu á bjórnum Svarta dauða. Þetta fullyrða vertar Ölstofu Kormáks & Skjaldar. Í kæru sem lögmaður eiganda vörumerkisins Svarta dauða bjórs sendi ráðuneytinu segir að mismunun eigi sér stað hjá ÁTVR. Stofnunin hafi neitað að taka í sölu bjór með slagorðinu „drekkið í friði“, en tekið í sölu bjór með slagorðinu „það er gott að vera bríó“. Lögmaðurinn segir að orðið bríó sé ekki til í orðabókum, en það muni vera slangur yfir að vera hífaður. Í yfirlýsingu frá vertum Ölstofunnar er þessari fullyrðingu mótmælt. Bjórinn var upphaflega framleiddur fyrir Ölstofuna, en fæst nú í verslunum ÁTVR. Í yfirlýsingunni segir að bjórinn sé nefndur eftir tónlistarmanninum Steingrími Eyfjörð, sem oft var kallaður Bríó. Þar segir jafnframt að orðið bríó sé vel þekkt úr erlendum málum, þar sem það standi fyrir fjör, kraft, hressleika eða tilþrif. Slagorðið vísi því ekki í ölvun. Bjór ekki kenndur við ölvunarástand ríki hefði heimild til að takmarka aðgang að áfengi á grundvelli heilsufarslegra sjónarmiða. Héraðsdómur tók ekki afstöðu í málinu, heldur ákvað að óska eftir ráðgefandi úrskurði EFTA-dóm- stólsins. Því mótmælti lögmaður íslenska ríkisins og kærði niður- stöðuna til Hæstaréttar, sem stað- festi niðurstöðu héraðsdóms. Birgir segist vonast til þess að EFTA-dómstóllinn komist að nið- urstöðu í málinu fyrir sumarið. brjann@frettabladid.is Framboð í trúnaðarstöður Skv 34. grein félagsins skal tveim mánuðum fyrir aðalfund ár hvert auglýsa frest til framboðs í trúnaðarstöður samkvæmt 23. gr. og 24. gr. Framboðsfrestur skal vera minnst 14 sólarhringar og skal tillögum skilað til kjörstjórnar innan þess tíma. Með hliðsjón af framansögðu hefur framboðsfrestur verið ákveðinn til kl. 12 á hádegi 12.03.2012 Reykjavík 21. febrúar 2012 Stjórn Félags íslenskra símamanna Ráðgeri að opna lækningastofu 8. maí í Domus Medica, Egilsgötu 3, 101 Reykjavík. Opið er fyrir tímapantanir í síma 563 1000 alla virka daga kl. 9-17. Ólöf H. Bjarnadóttir. Sérgrein: taugalækningar. GRIKKLAND, AP Grísk stjórnvöld hafa samþykkt áætl- un um skuldbreytingu, sem felur í sér að fjármála- fyrirtæki felli niður 53,5 prósent af skuldum gríska ríkisins. Gríska stjórnin lagði blessun sína yfir þessi áform í gær, daginn eftir að gríska þingið samþykkti þau. Enn er þó óvíst hvort öll fjármálafyrirtækin fallast á niðurfellinguna, sem vegna lágra vaxta felur lík- lega í sér að þau tapi allt að 70 prósentum af því sem Grikkir skulda þeim. Vogunarsjóðir, sem krefjast þess sumir enn að Grikkir greiði skuldir sínar að fullu, gætu þó neyðst til að fallast á þessar sameiginlegu ráðstafanir. Skuldbreytingin er forsenda þess að leiðtogaráð Evrópusambandsins leggi blessun sína yfir 130 milljarða fjárhagsaðstoð til Grikkja, sem fjármála- ráðherrar evruríkjanna samþykktu nú í vikunni. Gegn þessu hafa grísk stjórnvöld einnig sam- þykkt enn harðari aðhaldsaðgerðir, sem mætt hafa mikilli andstöðu verkalýðsfélaga og almennings í Grikklandi. - gb Grísk stjórnvöld hafa fyrir sitt leyti samþykkt skilmála skuldaniðurfellingar: Beðið eftir samþykki bankanna TILÞRIF Á ÞINGI Evangelos Venizelos fjármálaráðherra sann- færir þingmenn um nauðsyn skuldbreytingarinnar. NORDICPHOTOS/AFP FÓLK „Þegar ég var akkúrat komin að 25 metrunum þá sýndist mér ég sjá dúkku og hélt að einhver væri að gera grín að mér,“ segir Aníka Mjöll Júlíusdóttir, ellefu ára, sem með snarræði bjargaði stúlku á öðru ári frá drukknun í Keflavík í gær. Aníka var á sundæfingu í miðri skriðsundsferð þegar litla stelpan stökk út í laugina. Hún hafði stung- ið af frá fjölskyldu sinni, ósátt við að þurfa að fara upp úr, að sögn Ragnars Arnar Péturssonar, for- stöðumanns Vatnaveraldarinnar í Reykjanesbæ. Ragnar segir að farið hafi verið yfir málið á fundi í fyrrakvöld og aftur í gær. „Ég tók hana upp úr eins fljótt og ég gat. Þá gat hún varla andað en ég sló létt á bakið á henni og þá spýttist vatn upp úr henni. Þetta var mjög hræðilegt,“ segir Aníka og kveðst hafa verið mjög létt þegar hún heyrði stelpuna gráta. „Ég hélt að hún væri dáin,“ segir hún. Þórunn Ósk Haraldsdóttir, móðir Aníku, er mjög stolt af dótt- ur sinni. „Hún var í svolitlu sjokki eftir þetta í gær og ég sagði bara við hana: „Þetta er bara nákvæm- lega eins og alvöru hetjum líður“,“ segir Þórunn. - sh, sv Ellefu ára stúlka bjargaði barni á öðru ári frá drukknun í Keflavík: Hélt að litla stelpan væri dáin BJARGVÆTTURINN Aníka Mjöll segist hafa verið í slíku áfalli að hún hafi varla getað haldið áfram á sundæfingunni. MYND/ÞÓRUNN ÓSK HARALDSDÓTTIR FORVARNIR Slysavarnaskóli sjó- manna fékk í byrjun vikunnar að gjöf tíu björgunarbúninga til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Sigrún Ragna Ólafsdóttir, for- stjóri VÍS, afhenti búningana, sem eru liður í forvarnasamstarfi sem hófst haustið 2009 og felur meðal annars í sér að VÍS færi skólanum árlega tug björgunar- búninga. „Enda engin vanþörf á þar sem skólinn þarf að endur- nýja hátt á þriðja tug björgun- arbúninga á ári vegna mikillar notkunar á þeim á æfingum.“ - óká Fengu gefins tíu búninga: Þurfa árlega að endurnýja 30 Munt þú frekar kaupa D-víta- mínbætta mjólk en hefðbundna? Já 45,8% Nei 54,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Vilt þú að Náttúruminjasafn Íslands fái inni í Perlunni? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.