Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 12
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR12
Skilafrestur er 20. apríl
NÁTTÚRUVERNDARSJÓÐUR
PÁLMA JÓNSSONAR
STOFNANDA HAGKAUPS
Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru
svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari
mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að
bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott
hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið.
Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást við
sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi.
Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og vísindi.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Náttúruverndarsjóði Pálma
Jónssonar. Skilafrestur er 20. apríl. Heildarúthlutun á þessu ári
nemur allt að 25 milljónum króna. Umsóknareyðublöð og allar
nánari upplýsingar má fá á vefsíðu sjóðsins:
www.natturuverndarsjodur.is.
Umsóknir sendist sjóðnum í Pósthólf 10, 550 Sauðárkróki.
V i r ð i ng · Væg i · Ve rðmæt i
BAKAR PÖNNUKÖKU Á HLAUPUM
Ralph Godsall, sem er prestur í
Westminster Abbey í London, hleypur
þarna með pönnukökupönnu í
Washington í árlegu pönnukökuhlaupi
þar vestra. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDUR Fyrirtækið Aðföng
hefur innkallað eins lítra rjóma-
sprautu af
gerðinni Excel-
lent House-
ware. Á vef
fyrirtækisins
segir að í ljós
hafi komið að
rjómaspraut-
an geti verið
hættuleg neyt-
endum.
Varan var til
sölu í verslun-
um Bónus frá því í mars í fyrra.
„Viðskiptavinir Bónus sem eiga
rjómasprautuna eru hvattir til að
hætta notkun hennar nú þegar og
skila við fyrsta tækifæri til versl-
unarinnar þar sem hún var keypt
gegn fullri endurgreiðslu,“ segir í
tilkynningu frá Aðföngum. - óká
Innkalla rjómasprautu:
Sögð hættuleg
neytendum
RJÓMASPRAUTAN
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknir sendi
frá sér yfirlýsingu á fimmtudag
vegna dreifibréfs sem Framför –
krabbameinsfélag karla sendi körl-
um sem verða fimmtugir á þessu
ári. Í bréfinu er mælt með að við-
takandi láti mæla PSA-gildi í blóði
sem geti gefið vísbendingar um
blöðruhálskrabbamein á frumstigi.
Landlæknir varar hins vegar sterk-
lega við að blóðprufan sé notuð í
þessum tilgangi.
Í yfirlýsingu landlæknis segir:
„Að gefnu tilefni vill landlæknir
árétta að ekki er mælt með því að
mæling á PSA-mótefni í blóði sé
notuð til skimunar eftir krabba-
meini í blöðruhálskirtli. Mæling-
in gefur ekki nægilega áreiðanleg-
ar upplýsingar og ekki hefur verið
sýnt fram á með óyggjandi hætti að
slík leit bjargi mannslífum. Hins
vegar er ljóst að í kjölfarið fá stórir
hópar karla að óþörfu meðferð sem
getur haft í för með sér alvarlegar
aukaverkanir, svo sem ristruflanir
og þvagleka.“
Yfirlýsingin er samin í samráði
við sérfræðinga í heimilislækn-
ingum, krabbameinslækningum
og þvagfæraskurðlækningum, og
í samræmi við ráðleggingar frá
Krabbameinsfélagi Íslands.
Helgi Sigurðsson, yfirlæknir á
LSH og prófessor í krabbameins-
lækningum við HÍ, segir að nið-
urstöður liggi fyrir úr stórum
rannsóknum erlendis á blöðruháls-
krabbameini og PSA. „Niðurstaðan
er sú að þetta leiðir til alveg hrika-
legrar ofgreiningar og yfirmeð-
höndlunar. Við vitum að verið er
að ofgreina þetta krabbamein hér
á landi, og það verulega.“
Blóðprófið sem um ræðir er mjög
næmt og segir Helgi að það skil-
greini marga sjúka af krabbameini
þótt sú sé ekki raunin. „Að gera
svona stikkprufu skapar miklu
fleiri vandamál en það leysir.“
Það vekur athygli að árið 2008
var PSA-mæling í blóði talin af
læknum besta greiningaraðferð
sem völ var á. Þá kom til álita að
hefja skipulega innköllun á ein-
kennalausum körlum milli fimm-
tugs og sjötugs til rannsóknar, líkt
og gert var erlendis. Læknar eru á
annarri skoðun nú og hvergi í heim-
inum mæla heilbrigðisyfirvöld með
því að einkennalausir karlar fari í
mælingu eins og Framför hvetur
til.
Guðmundur Örn Jóhannsson, for-
maður Framfarar, segir það ekki
standa til að fara í stríð við land-
lækni en félagsmenn í Framför séu
þessu ósammála. Bréf hafi verið
sent út núna til karlmanna sem
verða fimmtugir á árinu og sami
háttur verði hafður á að ári.
Einar Benediktsson, fyrrver-
andi sendiherra og stjórnarmaður
í Framför, segir að yfirlýsing land-
læknis sé óviðeigandi í því ljósi að
PSA-mælingar bjargi mannslífum.
Einar segist sjálfur vera í þeim
hópi.
Framför hefur skrifað landlækni
og óskað eftir fundi til að skýra
sjónarmið sín. svavar@frettabladid.is
Segja blóðprufu ekki
henta til greiningar
Krabbameinslæknir segir að blöðruhálskrabbamein sé ofgreint hér á landi og
erlendis. Mæling á PSA-mótefni í blóði á þar hlut að máli. Félagið Framför ráð-
leggur fimmtugum körlum að fara í blóðprufu. Landlæknir varar við því.
■ Blóðprófið PSA mælir efni sem blöðruhálskirtillinn gefur frá sér. Blóð-
prófið er næmt og getur gefið vísbendingu um sjúkdóminn en greinir hann
þó ekki eitt sér.
Hækkuð gildi geta líka komið fram af öðrum ástæðum, til dæmis við
sýkingar í blöðruhálsi og góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli, en líkur á
henni aukast með hækkandi aldri.
■ Ár hvert greinast hér um 220 karlar með krabbamein í blöðruhálskirtli og
um 50 látast af völdum sjúkdómsins. Tveir af hverjum þremur eru komnir
yfir sjötugt þegar meinið greinist og sjúkdómurinn er mjög sjaldgæfur hjá
karlmönnum undir fimmtugu. Heimild: Krabbameinsfélag Íslands
Sjúkdómurinn og PSA-blóðpróf
VESTURBYGGÐ Byggðaráð Vestur-
byggðar hefur ákveðið „áherslu-
breytingar“ í rekstri sveitar-
félagsins fyrir árið 2012. Eru þær
sagðar gerðar „í ljósi bættrar
niðurstöðu í fjárhagsáætlun
2012 vegna niðurfellingar á láni í
Landsbanka Íslands vegna stofn-
fjárbréfakaupa og endurfjár-
mögnunar á lánum sveitarfélags-
ins“.
Álögur á íbúana verða léttar
með því annars vegar að draga
til baka hækkun á leikskólagjöld-
um sem varð um áramót og hins
vegar með því að fella niður inn-
ritunargjald í félagsstarf aldr-
aðra. - gar
Betri tíð í Vesturbyggð:
Leikskólagjöld
aftur lækkuð
PATREKSFJÖRÐUR Niðurfelling á
bankaláni skapar svigrúm.
Frítt í sund fyrir hádegi
Vinnumálastofnun á Suðurlandi vill
samstarf við sveitarfélög um sundkort
fyrir atvinnuleitendur. Bæjarstjórn
Ölfuss hyggst veita atvinnuleitendum
þar frían aðgang í sund í Þorlákshöfn
fyrir hádegi á virkum dögum. Erindi
frá Velferðarþjónustu Árnesþings um
að hleypa atvinnuleitendum frítt í
líkamsrækt í íþróttahúsinu var hins
vegar hafnað.
SUÐURLAND