Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 18
18 25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR
Stórvirki sem unnin voru fyrir nær hálfri öld og fólust í því
að efla menningarlíf á Íslandi eru
flestum gleymd, þó hafa þau auðg-
að daglegt líf okkar og eru nú talin
sjálfsögð. En er nokkuð sjálfsagt?
Hollt er að rifja upp að fátt verður
til af sjálfu sér. Menningarsókn dr.
Gylfa Þ. Gíslasonar og Vilhjálms
Hjálmarssonar, þáverandi mennta-
málaráðherra sem beittu sér fyrir
löggjöf um tónlistarmenntun á
Íslandi á 7. og 8. áratug síðustu
aldar, ber vott um framsýni þessara
merku stjórnmálamanna sem svör-
uðu kalli tímans með því að greiða
börnum og fullorðnum leið að iðkun
tónlistar og innihaldsríkara lífi.
Skipulagsmál
Hinn öri vöxtur kallaði á skjót
úrræði. Námsefni af skornum
skammti, hljóðfærakostur fábrot-
inn og aðstaða frumstæð. Kenn-
ara vantaði, en þar kom sér vel
að til var stofnun sem gat tekist á
við það úrlausnarefni, Tónlistar-
skólinn í Reykjavík bjó yfir langri
og dýmætri reynslu og mótaði
kennaranám með tilliti til hinnar
nývöknuðu skólahreyfingar. Önnur
skipulagsmál voru leyst af einlæg-
um vilja og áhuga.
Aðstoð ráðuneytis
Dr. Gylfi réði fulltrúa í mennta-
málaráðuneytinu til að aðstoða
hina nýstofnuðu skóla og gefa góð
ráð. Frá Bretlandi bárust fréttir af
góðu fyrirkomulagi, þaulreyndu
áfangakerfi, sem íslenskir tónlist-
arkennarar tóku tveim höndum.
Nú er svo komið að tekin eru hér á
landi samræmd áfangpróf í öllum
námsgreinum tónlistar undir
umsjón Prófanefndar tónlistar-
skólanna í samræmi við námskrár
sem gefnar eru út af menntamála-
ráðuneytinu.
Samvinna ríkis og sveitarfélaga
Frá upphafi voru tónlistarskól-
arnir samvinnuverkefni ríkis og
sveitarfélaga og reyndist sú skip-
an ákaflega vel, eða þar til árið
1989 að tónlistarskólarnir urðu
verkefni sveitarfélaganna. Nú lið-
lega 20 árum síðar er ríkið aftur
orðinn virkur þátttakandi á þessu
sviði með því að veita fjárstuðning
sbr. samkomulag þessara aðila frá
sl. vori um eflingu tónlistarnáms.
Þegar sniðnir hafa verið af fram-
kvæmdinni byrjunarhnökrar ætti
endurvakið samstarf ríkis og sveit-
arfélaga um starfsemi tónlistarskól-
anna að geta orðið íslenskri tónlist-
arfræðslu til hagsbóta.
Þegar litið er til baka er efst
í huga þakklæti til þeirra frum-
kvöðla sem lögðu grunninn að
íslenskri tónlistarfræðslu. Það sér
ekki fyrir endann á menningarsókn
þeirri sem dr. Gylfi og Vilhjálm-
ur stofnuðu til í árdaga. Tilkoma
tónlistarhússins Hörpu er rökrétt
framhald af þeirri ævintýralegu
atburðarrás og verður í framtíðinni
vettvangur þess sem fremst stend-
ur í tónmenningu þjóðarinnar.
Sá fríði hópur æskufólks sem
flutti öndvegisverk á sviði Hörpu í
lok janúar er aðeins eitt dæmi um
það gróskumikla starf sem unnið
er í tónlistarskólunum sem helga
sér þennan dag til að vekja athygli
á starfi sínu.
Til hamingju með daginn!
Þegar litið er til
baka er efst í huga
þakklæti til þeirra frum-
kvöðla sem lögðu grunn-
inn að íslenskri tónlistar-
fræðslu.
Það liggur í loftinu ný menning. Forstjórar leiðandi fyrirtækja
stíga niður úr stólum sínum og eiga
lárétt samskipti við starfsfólk sitt
og viðskiptavini. Þeir styrkja stöðu
fyrirtækja sinna á félagstengslum á
félagsmiðlum, þeir virkja hugvit og
hugarflug starfsfólks síns til að ná
árangri og hlúa að ímyndum vöru,
vörumerkja og þjónustu með aðferð-
um netsins. Og þeir nota tölvuleiki,
(tilbúnar) persónur og önnur úrræði
netsins til þess að tengjast réttum
félagshópum á netinu. Jafnræði
og félagsauður virðast handan við
hornið.
Nýr milliríkjasamningur?
Alþjóðavæðing með tilkomu netsins
og upplýsingatækninnar er smám
saman að ná til íslensks samfélags.
Stjórnmálamenn hafa ekki gert nýja
milliríkjasamninga sem auka frelsi
og opna landið fyrir alþjóðlegum
áhrifum. Enda vita þeir ekki hvað-
an á sig stendur veðrið. Samt eru
breytingarnar mjög sýnilegar og
þær munu ganga umtalsvert lengra
en orðið er. Óháð samningum við
önnur ríki. Við erum á hraðfleygu
breytingaskeiði í sögu mannkyns-
ins, viljug óviljug.
Verslunin hefur nú óskað eftir
lækkun innflutningsgjalda af vöru í
því skyni að bæta stöðu sína. En því
miður er það ekki í valdi ríkisins að
bjarga vöruversluninni, enda greiðir
netverslun öll innflutningsgjöld og
það er hún sem ógnar. Hætt er við
því að stóru alþjóðlegu vöruhúsin
nái til sín umtalsverðum hluta af við-
skiptum Íslendinga, en mun ganga
það hægar en annars ef verslunin
hér er vel rekin. Svo lengi sem ríkið
lokar ekki landamærunum, sem er
gert varðandi margs konar matvæli.
Hliðstæða sögu er að segja frá
mörgum öðrum atvinnugreinum,
þær geta ekki snúið sér til ríkisins
til að rétta sinn hlut, heldur þurfa
þær að berjast á nýjum forsendum á
alþjóðlegum markaði netsins.
Tækifæri og ógnanir
Þessi alþjóðavæðing nær til margra
sviða innlendrar starfsemi. Í henni
felast bæði tækifæri og ógnanir. Ef
ekkert er að gert þá mætum við ógn-
unum. Atvinna mun fyrirsjáanlega
dragast saman um mörg þúsund
„hefðbundin“ störf á komandi árum
vegna þessarar þróunar. Framhald-
ið gæti orðið kaupmáttarrýrnun og
landflótti.
Tækifærin eru þau sömu og ógn-
anirnar. Það losnar umtalsverður
hluti vinnuaflsins í landinu og hann
getur tekist á við ný verðmætaskap-
andi verkefni. Og þau verkefni er
ekki að finna í iðnaði, landbúnaði
og sjávarútvegi, sem nýta tæknina
til fækkunar starfsfólks. Hins vegar
getur mannauðurinn skapað ný
verðmæti á netinu.
Við þurfum að fylgja fordæmi
dúkkulísavefjarins á Ísafirði, sem
sýnir vel að undirbyggja má verð-
mætasköpun á netinu með hugviti
hvar sem er og það getur jafnvel
hver sem er gert.
Jöfnuður og frjálst val
Þessari þróun fylgja ný sjónarmið
um samskipti fólks, einkum með
tilkomu gagnvirkni á netinu og
félagsmiðlum. Einráðir forstjórar
og stjórnmálamenn sem ekki líta á
almenning sem jafningja sína eru
líklegir til að endast stutt. Þann-
ig eru verðmætin önnur en áður.
Þau felast meðal annars í láréttum
samböndum á netinu og viðskipta-
vild og nýjum viðskiptaaðferðum á
netinu sem eru af allt öðrum toga
en áður hafa sést. Staða almennings
stór styrkist því nú fá allir rödd og
almenningur velur og hafnar í
meira mæli en áður.
Skemmtilegri störf
En allt það fólk sem missir vinn-
una vegna hagkvæmni netsins
getur fengið skemmtilegri og betri
atvinnu, valdeflst við samskipti á
netinu og tekið þátt í samfélögum
og mörkuðum um allan heim. Þetta
snýst í aðalatriðum ekki um pen-
inga eða tækni heldur um samskipti
á félagsmiðlum og nýja menningu.
Í stað iðnaðaraldar kemur upplýs-
ingatækniöld. Einkenni hennar eru
hröð gagnvirk samskipti sem skila
árangri á skemmri tíma, með fleiri
sjónarmiðum og þátttöku.
Að horfa til framtíðar
Þörfin fyrir að líta til framtíðar og
opna augu landsmanna fyrir tæki-
færum hennar, bæði til lengri og
skemmri tíma, er gríðarlega mikil.
Tækifæri smáþjóðar í alþjóðavæð-
ingunni eru alls ekki minni en hjá
stærri þjóðum. En við verðum að
líta á allan heiminn sem viðskipta-
vin ef við ætlum öll að eiga heima
á Íslandi til framtíðar og hafa jafn-
an kaupmátt hér á landi og íbúar
nágrannaþjóðanna hafa.
Bóka- og söguþjóðinni gæti verið
tamt að horfa í baksýnisspegilinn
og það getur orðið að aðalóvini vel-
megunar og farsællar framtíðar á
Íslandi. Sem stendur hrannast ógn-
anir netsins og alþjóðavæðingarinn-
ar að okkur og tækifærin bíða ónýtt.
Enginn stjórnmálamaður berst
fyrir skilningi á breytingunum eða
alþjóðlegri framtíðarsýn sem bygg-
ir á veruleika netsins.
Ótrúlegt skeytingarleysi ríkir
raunar um framtíðina hér á landi.
Hún er þó meiri breytingum undir-
orpin en nokkru sinni fyrr. Netverj-
ar og fjölmiðlamenn hamast við að
greina atburði fortíðarinnar og taka
með því athyglina frá því sem skipt-
ir meira máli.
Alþjóðavæðing netsins
Á degi tónlistarskólanna
Ógnanir upplýsingatækninnar og netsins eru einkum hagkvæmni hennar:
a) Tæknivæðing opinberrar þjónustu fækkar opinberum starfsmönnum
mikið.
b) Félagsauður og traust minnkar enn frekar ef stjórnvöld taka ekki upp
lárétt samskipti við kjósendur.
c) Tölvudeildir fyrirtækja og stofnana leggjast af, reksturinn fer til gagnavera
á netinu.
d) Verslunin smáflyst frá íslenskum aðilum til alþjóðlegra stórverslana eftir
því sem innflutningsmúrar falla.
e) Útgáfa og dreifing fjölmiðla- og menningarefnis flyst til stórra hringja á
netinu.
f) Auglýsingar og auglýsingatekjur flytjast til netsins, einkum félagsmiðla.
g) Samning, útgáfa og dreifing kennsluefnis flyst til alþjóðlegra aðila sem
starfa m.a. á netinu.
h) Menntun vinnuaflsins á Íslandi er röng, endurmenntunin og skólakerfið
þarf að leggja áherslu á raungreinar.
i) Varnarmál eru í enn meiri ólestri en nokkru sinni fyrr, en þau hafa flust til
upplýsingatæknikerfa hjá helstu burðarstofnunum samfélagsins.
j) Staða landsbyggðarinnar veikist.
Menning
Sigursveinn
Magnússon
formaður Samtaka
tónlistarskólastjóra
Alþjóðavæðing
netsins
Haukur
Arnþórsson
stjórnsýslufræðingur
Tækifæri netsins opna fyrir nýja verðmætasköpun þess vinnuafls sem
losnar vegna hagkvæmni upplýsingatækninnar og netsins. Hún kallar á
markvissar aðgerðir og ákveðnar stórar fjárfestingar:
a) Efna þarf til vakningar meðal almennings og stjórnmálamanna um
tækifæri netsins. Horfa þarf til framtíðar í stað fortíðar (söguþjóðin).
b) Breyta þarf menningu fyrirtækja og stofnana og auka jafnræði og sam-
skipti í því skyni að nýta þekkingu og sköpunarafl vinnuafls. Forstjórarnir
stigi niður úr stólunum.
c) Stórefla þarf menntun og endurmenntun á sviði upplýsingatækni.
d) Efla þarf alþjóðlega netverslun og leggja áherslu á sérstöðu ef sam-
keppni í magnsölu er erfið. Selja ætti íslenska framleiðsluvöru beinni
sölu á netinu.
e) Uppbygging (íslenskra) gagnavera fari fram þar sem orka er.
f) Styðja þarf sprotafyrirtæki með stórfelldum fjárfestingum í tæknigörðum
og þróunarstyrkjum og þróunarlánum. Það er næsta stórframkvæmd
Íslands og mætti útbúa verkefnið sem vænlegan alþjóðlegan fjárfest-
ingarkost.
g) Leggja þarf mörg þúsund ljósleiðara á kostnað samfélagsins um allt
Ísland þannig að hver leiðari kosti nánast ekki neitt. Það jafnar aðstöðu
byggðarlaga fyrir gagnaver og margmiðlunarstarfsemi, breytir atvinnu-
samsetningu og nýtir ódýrt vinnuafl.
h) Ljósleiðaratenging við útlönd verði allri starfsemi í landinu að kostnaðar-
lausu.
i) Stjórnvöld og stjórnmálamenn starfi fyrir opnum tjöldum á netinu og eigi
eðlileg lárétt samskipti við almenning og bæti með því samfélagið.
Niðurlag
Þótt þær aðgerðir sem stjórnmála-
menn hafa gripið til í þágu fram-
tíðarinnar séu virðingarverðar,
svo sem sóknaráætlun ríkisstjórn-
arinnar, þá er vilji ekki allt sem
þarf. Þær eru mörgum stærðar-
gráðum of smáar, að verulegu
leyti án fjármögnunar og byggja
ekki á markvissri greiningu sér-
fróðra aðila á tækifærum fram-
tíðarinnar.
Stjórnmálin og stjórnsýslan
þurfa að hafa bæði vilja og getu
til þess að endurskapa Ísland, rétt
eins og atvinnu- og viðskiptalífið.
Lega Íslands er auðlind vegna þeirrar aðstöðu og tækifæra,
sem hún býður upp á. Íslendingar
verða að nýta sér tækifærin í fram-
tíðinni sem uppbyggingin í Nýja
Norðrinu mun skapa. Þess vegna er
Nýja Norðrið einn af hornsteinum
í utanríkisstefnu stjórnmálahreyf-
ingarinnar Hægri grænna, flokks
fólksins. Íslendingar eru smátt og
smátt að gera sér grein fyrir þeim
gríðarlegu tækifærum sem upp-
bygging og umsvif á norðurslóðum
munu skapa okkur á komandi ára-
tugum.
Áhugi Evrópusambandsins (ESB)
á norðurslóðum er skiljanlegur en
ESB er efnahagslegt og pólitískt
stórveldi og á mikilla hagsmuna að
gæta vegna nýrra siglingaleiða og
náttúruauðlinda í hinu Nýja Norðri.
Íslendingar þurfa að halda vel á
málum í því kapphlaupi sem hafið
er á milli ríkja á norðurslóðum um
aðgang að auðlindum sem þar er að
finna. Íslendingar verða að gæta
að strandríkin fimm haldi okkur
ekki fyrir utan umræðuna. Banda-
ríkjamenn eru vinir okkar í þessu
samhengi og getum við verið þeim
þakklát fyrir þá vináttu.
Þessi litla þjóð verður einnig að
gæta þess að ESB gleypi okkur ekki
með húð og hári og nái óverðskuld-
uðum yfirráðum yfir auðlindum
okkar og Nýja Norðursins. Flokk-
urinn telur einnig nauðsynlegt að
hefja viðræður við Bandaríkjamenn
og NATO að koma hér upp varnar-
liði á ný.
Hægri grænir eru alfarið á móti
inngöngu Íslands í ESB. Flokkur-
inn telur óskynsamlegt að standa
í aðlögunarferli við ESB á meðan
efnahagslíf þjóðarinnar er í molum
og hver höndin uppi á móti annarri.
Flokkurinn vill að aðlögunarferlinu
og aðildarviðræðum að ESB verði
umsvifalaust hætt, umsóknin dreg-
in til baka og framhaldið eingöngu
ef þjóðin er spurð í bindandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu eftir ítarlega end-
urskoðun EES-samningsins. Flokk-
urinn vill nota beint lýðræði, þ.e.
þjóðaratkvæðagreiðslur, þegar um
mjög mikilvæg mál er að ræða sem
varða þjóðarhag.
Nýja Norðrið
Norðurslóðir
Guðmundur
Franklín Jónsson
viðskiptafræðingur
og formaður Hægri
grænna, flokks fólksins
Námskeið með DAVÍÐ KRISTINSSYNI
næringar- og lífsstílsþjálfara
www.heilsuhusid.is
30 daga hreinsun á
mataræði!
Námskeiðið er haldið í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5, kl. 20 - 22.
Innifalið er uppfærð handbók með öllum
upplýsingum sem þú þarft og 30 daga framhaldsmatseðill.
Námskeiðsgjald aðeins kr. 5.500,-
Nánari upplýsingar á www.30.is og í síma 864 9155.