Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 46
Kynning
Ég keypti umboðið af skó-smiðnum Högna Einarssyni sem hafði ofurtrú á merkinu
en hann kenndi mér allt sem ég
kann í sambandi við góða skó,“
segir eigandinn Gunnlaugur
Örn Valsson. LOMER er vinsælt
merki í Evrópu og gæðin eru að
sögn Gunnlaugs ótvíræð. Því eru
leiðsögumenn Útivistar sammála
sem og björgunarsveitarmenn og
aðrir gönguhrólfar sem hafa hlað-
ið skóna lofi eftir að hafa gengið á
þeim um fjöll og firnindi.
„Samstarfið við Útivist hefur
reynst afar vel en í versluninni
að Laugavegi 178 gengur fólk að
afgreiðslufólki með reynslu af
gönguferðum vísu og fær örugg-
ar leiðbeiningar um það hvernig
skór henta við tilteknar aðstæð-
ur. Þá höfum við verið að vinna
með öllum helstu hjálparsveitum
landsins og flytjum meðal annars
inn sérstaka jöklaskó til að mæta
þeirra þörfum, svo þetta er sífellt
að vinda upp á sig,“ segir Gunn-
laugur. Hann býður upp á fjöl-
margar gerðir sem henta fyrir
allar tegundir gönguferða; allt
frá göngum á jafnsléttu og upp í
alvöru fjallgöngur á hæstu tinda
heims. Skórnir eru misháir og
misstífir eftir því hvað hentar.
„Þeir eru allir með Vibram-sóla
og sérstaklega góðu gripi. Þeir
eiga það sameiginlegt að vera
fisléttir en þyngsti skórinn vegur
650 grömm. Skórnir eru úr þykku
Nabuk-leðri sem er það besta sem
völ er á og hentar sérstaklega vel
við íslenskar aðstæður. Það þarf
hins vegar að bera á þá eins og
alla leðurskó og fylgir tilheyrandi
áburður með. Með réttri með-
höndlun er endingin afar góð og
verðið með því lægsta sem gerist.
Gunnlaugur segir mikla vakn-
ingu hafa verið í gönguferðum frá
því að hann hóf rekstur. „Ég byrj-
aði rétt eftir hrun og þá var þetta
aðeins byrjað. Ég fór þó aðallega
út í þetta af því að ég hafði trú á
vörunni en í kjölfarið kom þessi
mikla vakning sem er virkilega
gaman. Það er líka gaman að sjá
hvað þetta gefur fólki mikið og
spretta gönguhópar upp úti um
allt hvort sem er meðal ættingja,
vina eða vinnufélaga. Til að mæta
þeim höfum við verið að gera
þeim góð hópatilboð.
Góðir skór eru lykilatriði
Gönguskór.is selur gönguskó frá ítalska skóframleiðandanum LOMER. Fyrirtækið
var stofnað árið 2009 en frá upphafi hefur verið náið samstarf við ferðafélagið Útivist
þar sem skórnir eru seldir.
Skórnir eru fisléttir en þyngsta týpan vegur einungis 650 grömm. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fjallganga er frábær hreyfing og tekur á öllum helstu vöðvum líkamans. Á uppleið
reynir mikið á rass, kálfa og aftanverð læri en á niðurleið reynir sérstaklega á framanverð
læri. Í kaupbæti fá göngugarpar ferskt loft í lungun.
Hippókrates vissi greinilega
hvað hann söng. Fjöldi rannsókna
hefur leitt í ljós að ganga er eitt
það heilsusamlegasta sem hægt
er að gera. Niðurstöðurnar benda
til að reglulegar gönguferðir dragi
verulega úr hættu á bæði sykur-
sýki og hjartasjúkdómum, lækki
blóðþrýsting, auki þéttni beina
og svo mætti lengi telja. Vefsíð-
an medicinenet.com hefur tekið
saman átta bestu ástæðurnar
fyrir því að taka upp reglulegar
göngur.
1 Gönguferðir vinna gegn því að fólk fái áunna sykursýki.
Rannsóknir sýna að með því að
ganga rösklega í 150 mínútur á
viku minnka líkurnar á sykursýki
um heil 58 prósent.
2 Ganga styrkir hjörtu karl-manna. Dánartíðni karla á
eftirlaunum úr hjartasjúkdómum
er helmingi minni hjá þeim sem
ganga reglulega en þeim sem gera
það ekki.
3 Ganga er holl fyrir heilann. Konur sem ganga í einn og hálf-
an tíma á viku eru mun minnisbetri
og eiga auðveldara með samhæfðar
hreyfingar en þær sem ekki ganga.
4 Ganga styrkir beinin. Marg-ar rannsóknir sýna að konur
sem ganga reglulega eftir tíða-
hvörf hafa mun þéttari bein og
eiga síður á hættu að fá beinþynn-
ingu en aðrar konur.
5 Ganga dregur úr einkennum þunglyndis. Þrjátíu mínútna
ganga þrisvar í viku minnkaði ein-
kenni hjá þunglyndissjúklingum
um 47 prósent í einni könnuninni.
6 Ganga dregur úr hættunni á að fá brjósta- eða ristilkrabba-
mein. Fjölmargar rannsóknir sýna
fram á að þeir sem ganga reglu-
lega fá sjaldnar brjósta- eða ristil-
krabbamein.
7 Ganga er styrkjandi fyrir allan líkamann. Þetta er óum-
deilanlegt og talið að nóg sé að
ganga í þrjátíu mínútur þrisvar í
viku til að komast í ágætis form.
8 Göngur auka styrk og liðleika. Ganga gagnast í baráttunni við
stirðnun vöðva og liðamóta. - fsb
Átta góðar ástæður til
þess að byrja að ganga
Hippókrates sagði á sínum tíma að gangan væri besta læknislyf sem fólk ætti völ á. Það hefur ekkert
breyst í aldanna rás og auknar rannsóknir renna enn frekari stoðum undir þessa kenningu.
Reglulegar gönguferðir eru ein besta líkamsrækt sem hægt er að stunda. Ávinningurinn er margfaldur á ýmsum sviðum.
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
Bjóðum alla almenna dekkjaþjónustu
Skjót og góð þjónusta!
38x15,5R15
arctictrucks.is
38 tommu dekk
sem er sérstaklega
hannað fyrir
íslenskar aðstæður.
- Slitsterkt
- Endingargott
- Hljóðlátt
- Míkróskorið
- Neglanlegt