Fréttablaðið - 25.02.2012, Side 74
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 20128
VAKA ÝTT ÚR VÖR
VAKINN er nýtt gæða- og um-
hverfiskerfi fyrir íslenska ferða-
þjónustu sem verður formlega
ýtt úr vör í Sunnusal Radisson
Blu Hótel Sögu þriðjudaginn 28.
febrúar klukkan 14.30.
VAKINN er afsprengi þróunar-
verkefnis sem iðnaðarráðu-
neytið fól Ferðamálastofu og
Nýsköpunarmiðstöð Íslands að
vinna að. Verkefnið er unnið í
náinni samvinnu við Samtök
ferðaþjónustunnar og Ferða-
málasamtök Íslands og þannig
hefur skapast breið samstaða
innan ferðaþjónustunnar um
þennan mikilvæga málaflokk.
Ávörp flytja Ólöf Ýrr Atladóttir
ferðamálastjóri, Oddný
Harðardóttir iðnaðarráðherra,
Árni Gunnarsson, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar,
Unnur Halldórsdóttir, for-
maður Ferðamálasamtaka
Íslands, og Stefán Gíslason
umhverfisstjórnunarfræðingur.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.ferdamalastofa.is
BREYTINGAR Á
GARDERMOEN
Í janúar fór ein og hálf milljón
farþega um Gardermoen flug-
völlinn í Ósló og er það aukning
um 8% frá sama mánuði í fyrra.
Aukning var auk þess töluverð í
innanlandsflugi og þá sérstak-
lega til og frá Norður-Noregi.
Nú standa yfir breytingar á
flugstöðinni á Gardermoen,
veitingastöðum og verslunum
er að fjölga til muna. Breyting-
arnar eru þegar farnar að koma
í ljós en þær munu halda áfram
fram á næsta ár. Þeir sem ferðast
frá Ósló geta nú farið á sushi-
bar og fengið sér japanskt áður
en haldið er í flug eða á franskt
brasserí. Þá eru nýir vínbarir
að opna í flugstöðinni svo og
Starbucks-kaffihús.
Tónlist getur farið með hlustendur aftur
í tímann og á vit ljúfsárra minninga úr
ferðalögum fortíðar. Eftirfarandi listi
inniheldur tíu bestu ferðalög allra tíma
að mati ferðaskríbenta víða um heim.
1. Born to Be Wild
með Steppenwolf
(1968)
Kraftmikið og
taktfast rokk um
bensínið í botn á
þjóðvegum lands-
ins.
2. Born to Run með Bruce Springsteen
(1975) Ástaróður til stúlkunnar Wendy, en um
leið þrá til að gefa skít í hundfúlan heimabæ.
3. On the Road Again með Willie Nelson
(1980) Einlægur og hressandi slagari um
ferðabakteríuna.
4. Tangled up in Blue með Bob Dylan (1975)
Lag um endalok ástarsambands þar sem farið
er fram og aftur í tíma ástarsögunnar.
5. Homeward Bound með Simon og
Garfunkel (1966) Angurvær ballaða um
heimþrá og söknuð eftir ástinni.
6. Vacation með The Go-Go‘s (1982) Hress-
andi stúlknasöngur um léttúðuga sumarást í
kalifornískri sól og fjöri.
7. Paper Planes með M.I.A. (2008) Kaldhæð-
inn söngur kvensu sem fæst við þreytandi
staðalmyndir, fordóma og alhæfingar sem
ýmsir hafa gagnvart innflytjendum.
8. The Passenger með Iggy Pop (1977)
Pönkslagari um ökuferð um nöturlega slóð
sem liggur í gegnum dimma afkima ókunn-
ugs borgarlandslags.
9. 24 Hours from Tulsa með Gene Pitney
(1963) Lag um kauða sem hringir heim til að
segja heitkonu sinni að hann komi ekki aftur.
10. Leaving on a Jet Plane með Peter, Paul
og Mary (1967) Fallegt ástarlag eftir John
Denver um ferðalang sem kveður sína heitt-
elskuðu með brostið hjarta.
TÍU BESTU FERÐALÖGIN
PIPA
R/TBW
A
• SÍA
• 102927
Bjóðum það besta í evrópskri húsgagnahönnun
og glæsilegt úrval gjafavöru.
M-SÓFINN íslensk framleiðsla
sniðin að þínum þörfum.
Opið alla virka daga frá 11–18 og laugardaga 11–16.