Fréttablaðið - 25.02.2012, Side 76

Fréttablaðið - 25.02.2012, Side 76
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR40 O fbeldisalda sem hefur gengið yfir Malmö síðustu misseri hefur undanfarið náð áður óþekktum hæðum og tíðni alvarlegra árása og morða á sér ekki hliðstæðu í Svíþjóð á síðari árum. Átta morð tengd glæpaklíkum í borginni hafa verið framin á rétt rúmu ári, þar af þrjú í janúarmánuði einum saman, auk fjölda annarra brota og árása. Rætur vandans í Malmö liggja ansi djúpt og trúlega er langt þang- að til að fullnaðarsigur vinnst. Almenningur lætur þó ekki slá sig út af laginu heldur hagar sínu lífi með sama hætti en óþolið gagnvart vígaferlum glæpahópanna færist sífellt í aukana. Ískyggileg þróun Malmö er höfuðstaðurinn á Skáni, syðsta héraði Svíþjóðar og stendur við Eyrarsund, gegnt Kaupmanna- höfn. Malmö er þriðja fjölmenn- asta borg Svíþjóðar með rúmlega 300.000 íbúa, litlu færri en allt Ísland, en um þrjátíu prósent borg- arbúa eru innflytjendur. Síðustu ár hafa glæpaklíkur fest sig í sessi í borginni og í kjölfar- ið hefur skotvopnaeign stóraukist og ofbeldisglæpum hefur fjölgað mikið, sérstaklega í samanburði við aðrar stærri borgir í Svíþjóð. Sem dæmi má nefna að samkvæmt opin- berum tölum var tilkynnt um tvö- falt fleiri vopnaðar árásir í Malmö á síðustu fimm árum en árin fimm þar á undan. Á síðasta ári voru gerðar þrettán alvarlegar árásir, það er morð eða drápstilraunir með vopni, á hverja 100 þúsund íbúa í Malmö en landsmeðaltalið er tvær á hverja 100 þúsund íbúa. Munurinn er einnig greinilegur í samanburði við hinar stórborgirnar, þar sem „aðeins“ var um þriðjungsaukning á vopnuðum árásum í Gautaborg á milli þessara fimm ára tímabila og í Stokkhólmi fækkaði þeim. Þessu beintengt hefur ólögleg- um skotvopnum fjölgað geysilega á svæðinu og samkvæmt tölum frá lögreglunni á Skáni hafa um 200 skotvopn verið gerð upptæk á ári síðustu fjögur ár. Átta morð tengd glæpaklíkum Síðasta árið hefur ofbeldið í Malmö þó keyrt um þverbak. Frá 10. júlí hafa átta látið lífið í tengslum við meint uppgjör í undirheimum borg- arinnar. Þar af voru sex myrtir frá nóvember fram í janúar. Yngsta fórnarlambið er 15 ára piltur sem var skotinn á nýársnótt. Auk þess sprakk sprengja við hverfislögreglustöð í borginni 1. febrúar, en enginn meiddist. Til- ræðismennirnir komust undan í öllum þessum tilfellum. Uppgjör milli glæpahópa Erfitt er að segja til um nákvæm- lega hvað liggur að baki þessari aukningu, en í samtali við Svenska Dagbladet fyrir skemmstu sagði Daniel Vesterhav, sérfræðingur hjá glæpaforvarnaráði sænskra stjórn- valda, að útlit væri fyrir að ný kyn- slóð glæpamanna væri að ryðja sér til rúms í Malmö, sem og víðar um land. Þeir væru klíkusæknari en glæpamenn af „gamla skólanum“ og legðu meira upp úr stöðu og virð- ingu innan glæpaheimsins. Metnað- ur fyrir því að klífa upp metorða- stiga glæpahópa felur svo gjarna í sér skotvopnaeign og notkun þeirra. Vesterhav segir að skýringar á nýlegri hrinu ofbeldisverka megi rekja til þess að um uppgjör milli glæpahópa sé að ræða, eitt ódæð- ið leiði af öðru og fyrr en varði sé kominn af stað vítahringur ofbeld- is og hjaðningarvíga, sem ekki sér enn fyrir endann á. „Smávægilegt ósætti getur þess vegna undið upp á sig og orðið að stórmáli án þess að maður muni endilega um hvað var deilt til að byrja með,“ sagði Vesterhav. Ráðast þarf að rótunum Síðasta hrina ofbeldisverka í Malmö vakti mikla athygli og kall- aði á sterk viðbrögð. Lögreglan hefur stóraukið við- veru og sýnileika lögreglumanna á götum Malmö og sérsveit sænsku lögreglunnar gegn skipulagðri glæpastarfsemi, GOB, er með mik- inn viðbúnað í borginni. Það hefur þó ekki skilað miklu enn sem komið er, því að enginn hefur verið ákærður vegna morð- anna átta og ekkert málanna er upp- lýst. Alls óvíst er hvort hertar lög- gæsluaðgerðir séu best til þess fallnar að slá á glæpatíðnina. Meðal þeirra sem sem eru efins um að slíkt dugi til, eitt og sér, er Jerzy Sarnecki, prófessor í afbrotafræði við Háskólann í Stokkhólmi. Í grein í Svenska Dagbladet segir Sarnecki að þó að vissulega sé mik- ilvægt að mæta hækkandi glæpa- tíðni með samstilltu löggæslu- átaki, þurfi einnig að greina rætur vandans. Til þess þurfi að gæta að margvíslegum og djúpstæðum sam- félagslegum þáttum. Sarnecki segir það viðurkennda staðreynd að í hverfum þar sem fátækt er viðvarandi, líkt og víða er í Malmö, sé líklegra að ungt fólk sem fer halloka í lífinu þvælist út á refilstigu glæpa. Atvinnuleysi, veikar stofnanir í samfélaginu, takmarkaðir framtíðarmöguleikar og vantraust á yfirvöldum, sérstak- lega lögreglu, eru meðal þess sem er landlægt við slíkar aðstæður. „Ungt fólk (sérstaklega menn) úr þess háttar umhverfi leitar í auknum mæli í skipulagða glæpa- starfsemi þegar það áttar sig á því að erfitt sé með löglegum hætti að öðlast efnahagsleg gæði eða félags- lega stöðu í líkingu við lánsamari jafnaldra þeirra,“ segir Sarnecki og bætir við að slíkt ástand drífi áfram andfélagslega hegðun, til dæmis fíkniefnanotkun og afbrota- hneigð. Að hans mati er því vænlegast til árangurs til lengri tíma að upp- ræta fátæktina, atvinnuleysið og vonleysið sem einkennir nú mörg hverfi í Malmö, og raunar víðar í Svíþjóð. Mikilvægt sé að láta ekki staðar numið þó takist muni að slá á yfirstandandi glæpaöldu, held- ur halda áfram að vinna á rótum vandans. Einkenni og orsakir Þrátt fyrir ófremdarástandið sem ríkir í Malmö þessa dagana segjast íbúarnir reyna að lifa sínu lífi, enda séu átökin í borg- Samfélagsbölið birtist í ofbeldi Undanfarna mánuði hefur hrina morða og ofbeldisverka gengið yfir í sænsku borginni Malmö. Þorgils Jónsson kynnti sér ástand- ið og orsakirnar sem liggja þar að baki. Íslendingur búsettur í Malmö segir lífið ganga sinn vanagang þrátt fyrir allt. Skálmöld hefur ríkt í undirheimum Malmö að undanförnu þar sem hvert morðið hefur rekið annað. ■ 24. nóv: 31 árs klíkuleiðtogi skotinn til bana. ■ 20. des: Tveir grímuklæddir menn skjóta 55 ára gamlan iðnaðarmann til bana. ■ 26. des: 27 ára gamall maður skotinn til bana af grímuklæddum manni í verslun. ■ 1. janúar: 15 ára piltur skotinn í höfuð og brjóst í hinu alræmda Rosengården- hverfi. Deyr á sjúkrahúsi skömmu síðar. ■ 3. janúar: 48 ára gamall maður skotinn til bana á götu um hábjartan dag. ■ 31. janúar 48 ára gamall leigubílstjóri skotinn til bana. ■ SEX MORÐ Á SEX VIKUM ■ 2011: BLÓÐUGT ÁR Særðust eftir skotárásir.10 sprengjur voru sprengdar í borg- inni16 Tilkynningar um skothríð í borginni.23 Skotnir til bana.6 inni að mestu milli glæpahóp- anna. Þó er ljóst að fái ástandið að gerjast enn frekar er viðbúið að illa fari áður en langt um líður. Það er hægt að taka fast á málum og hefta starfsemi glæpahópanna og vinna gegn skotvopna flauminum en þar til unnið hefur verið á samfélags- böli vonleysis í fátækrahverfum Malmö verður aðeins um tíma- bundnar lausnir að ræða, sem beinast frekar að einkennum sjúkdómsins heldur en orsökum hans. (Heimildir: Expressen, Aftonbla- det og Svenska Dagbladet) MÓTMÆLA OFBELDI Ættingjar 15 ára pilts sem lést eftir skotárás á nýársnótt komu saman í miðborg Malmö til að mótmæla framferði glæpagengjanna, en fjöldi manna liggur í valnum eftir vargöld síðustu mánaða. NORDICPHOTOS/AFP Hundruð Íslendinga eru búsett í Malmö og næsta nágrenni. Þeirra á meðal er Smári Jökull Jónsson, sem hefur búið í Malmö í tæp þrjú ár ásamt fjölskyldu sinni. Þau búa í nágrenni miðborgarinnar, en Smári segir glæpaölduna lítil áhrif hafa haft á þeirra daglega líf. „Þessir atburðir eru mestmegnis tengd- ir skipulagðri glæpastarfsemi og gerast innan þeirra hópa. Þetta er því ekki að trufla hinn almenna borgara að ráði. Glæpagengin hafa verið stórt vandamál í Malmö, en þessar árásir undanfarið bein- ast að öðrum klíkum frekar en almenn- ingi.“ Smári segir þó að atburðir liðinna mán- aða setji svip sinn á borgarlífið. „Það hefur auðvitað verið mikil umræða um þessi mál og maður kemst ekki hjá því að heyra af því. Síðustu vikur hefur lög- reglan verið að bæta í starfsemi sína og er orðin mikið sýnilegri. Þessi verstu tilfelli eru að mestu bundin við ákveðin hverfi þar sem glæpagengin eru. Það eru hverfi eins og Rosengård þar sem er mikið af innflytj- endum og íbúar standa ef til vill ekki svo vel, hvorki fjárhagslega né félagslega. Við verðum þó ekkert vör við neitt slíkt í okkar hverfi þó að við séum niðri í miðbæ og hér búi margir innflytjendur.“ ■ SJÓNARHORN ÍSLENDINGS Í MALMÖ Glæpaaldan hefur lítil áhrif á daglegt líf almennings í Malmö Smári Jökull Jónsson, íbúi í Malmö Álftanes, Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes, Vogar. Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver kona sem veitir, eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir það starf. Franska Rivieran, Cannes og Mónakó 2. - 9. júní Aðventuferð til München 8. - 11. desember Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00 á virkum dögum frá 27. febrúar til 7. mars: Svanhvít Jónsdóttir 565 3708 Ína Jónsdóttir 421 2876 Guðrún Eyvindsdóttir 422 7174 Valdís Ólafsdóttir 566 6635 Sigrún Jörundsdóttir 565 6551 Orlofsnefndin Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.