Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 82
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Elsku móðir okkar,
Jakobína Jóhannesdóttir
Akralandi 1, áður Jaðri, Saurbæ,
lést á líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn
12. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug, sérstakar þakkir fær starfsfólk Heimahlynn-
ingar LSH og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Gunnar Kristinsson
Hanna Lóa Kristinsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Þorvaldar
Guðmundssonar
frá Bóndhól.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði.
Guðfinna Þorvaldsdóttir Elías Pálsson
Guðmundur Hafþór Þorvaldsson Helga Margrét Gígja
Vilhjálmur Birgir Þorvaldsson Elínborg Ögmundsdóttir
Sigríður Ragna Þorvaldsdóttir Ólafur Árnason
Sumarliði Þorvaldsson Sigríður R. Helgadóttir
Þorvaldur Hannes Þorvaldsson
Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir Steinar Garðarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þakka auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts eiginmanns míns,
Hauks Arnars Bogasonar.
Guðlaug Jónsdóttir
Þökkum samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Þórdísar Tryggvadóttur
myndlistarkonu
sem lést föstudaginn 10. febrúar 2012.
Sigríður Egilsdóttir Ólafur Jóhann Ólafsson
Helga Egilsdóttir
Björgúlfur Egilsson Lísa Pálsdóttir
Tryggvi Egilsson Elín Magnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Þökkum af alhug auðsýnda samúð,
kærleika og stuðning við andlát ástkærs
mannsins míns, pabba okkar, tengda-
pabba og afa,
Sæmundar Þ. Sigurðssonar
(Sæma)
Heiðarbæ 1.
Guð blessi ykkur öll.
Snæfríður (Snæa)
Stella og Svenni
Marsibil og Silli
Siggi og Hildur
og afabörnin.
Þorsteinn Eggertsson er svo unglegur
í röddinni þegar hann svarar í símann
að smástund kviknar efi um að þetta sé
hið sjötuga afmælisbarn. Því er hann
fyrst spurður hvort honum finnist ekki
skrítið hvað aldurstölurnar hækka.
„Jú, jú, en það er bara gaman,“ svarar
hann léttur í bragði. „Ég stefni að því
að bæta átta og níu við líka áður en yfir
lýkur. En spegillinn sýnir að maður er
orðinn svolítið grár.“
Þorsteinn er Suðurnesjamaður í
húð og hár, fæddist í Keflavík, flutti
þriggja ára með fjölskyldu sinni í
Garðinn og eftir tólf ár þar aftur til
Keflavíkur. Nú er hann hins vegar
kominn til höfuðborgarinnar. Inntur
eftir ástæðunni svarar hann: „Kefla-
vík er fremur skjóllítill staður fyrir
vindum og veðri. Ég sá alltaf borg-
ina hinum megin við flóann í hill-
ingum þegar ljósin kviknuðu þar á
haustkvöldum. Þangað stefndi ég og
þar ætlaði ég að gera góða hluti. Nú
er ég sestur að í Skipholtinu. Ég hef
reyndar búið úti um allar jarðir. Ég
fór í myndlistarnám í Kaupmanna-
höfn, síðan hef ég búið í Berlín, Dublin
og hér og þar. Held að það sé ansi gott
veganesti fyrir hvern sem er að vera
einhvern smá tíma erlendis til að meta
enn betur það sem okkur er boðið upp
á hér.“
Afmælisveisla er á döfinni hjá
Þorsteini. Hann segir konuna sína,
Jóhönnu Fjólu Ólafsdóttur lektor vera
á fullu að undirbúa hana. „Ég ætla
að halda upp á afmælið hérna hinum
megin við götuna, í færeyska sjó-
mannaheimilinu. Færeyjar er einn af
þeim skemmtilegu stöðum sem ég hef
komið til. Færeyingar eru afslappað og
yndislegt fólk. Það er ekki stressið þar
eins og víða hér.“
Þorsteinn hefur fengist við ýmsa
listsköpun um ævina. Hann hefur
skrifað, teiknað, málað og sungið,
kennt myndlist og samið og sett upp
söngleiki. Einnig sinnt blaðamennsku.
Þekktastur er hann þó líklega fyrir
dægurlagatexta sína sem hafa verið
gefnir út á plötum í hundraðavís. Hann
átti nokkra texta í nýafstaðinni söngva-
keppni sjónvarpsins og einn þeirra rat-
aði í undanúrslit. Þegar textarnir eru
pantaðir er yfirleitt búið að semja lögin
að hans sögn. „Ég yrki mest um ham-
ingjuna og leitina að henni,“ segir hann
og upp í hugann koma textar eins og
Ástarsæla, Ég elska alla og Lífsgleði.
„Sá kveðskapur sem fellur algerlega
inn í samtímann eldist oft verr en sá
sem fjallar um sígilt efni,“ segir hann.
„Textar um vídeó eru til dæmis orðn-
ir þokkalega gamaldags,“ tekur hann
sem dæmi. Hann kveðst engan eftir-
lætistexta eiga eftir sjálfan sig. „Það
fer bara eftir dögum og skapi,“ segir
hann. „Þetta er allt komið í sama pott-
inn.“
Þorsteinn kveðst afskaplega ánægð-
ur með lífið. „Ég er kominn á besta
stað í bænum, á yndislega konu og frá-
bær börn og barnabörn,“ segir hann
glaðlega og lætur það ekki angra sig
þó sumt af yngra fólkinu sé í öðrum
löndum. „Dóttir mín býr í Englandi,
stjúpsonur minn í Kaupmannahöfn og
stjúpdóttir í Póllandi en tvö eru heima.
Meirihlutinn er semsagt erlendis en
það gefur okkur hjónum tilefni til að
ferðast. Svo er tæknin orðin þannig að
auðvelt er að tala við fólkið sitt í gegn-
um tölvuna og sjá framan í það. Maður
setur bara Skype í samband.“
gun@frettabladid.is
ÞORSTEINN EGGERTSSON RITHÖFUNDUR: ER SJÖTUGUR Í DAG
Yrkir mest um hamingjuna
og hina sígildu leit að henni
ÞORSTEINN EGGERTSSON RITHÖFUNDUR Á engan eftirlætistexta eftir sjálfan sig. „Það fer bara
eftir dögum og skapi. Þetta er allt komið í sama pottinn.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ella er komin“ var fyrirsögn í Tímanum
26. febrúar árið 1966 og vísaði til þess
að daginn áður steig stórsöngkonan
Ella Fitzgerald í fyrsta sinn fæti sínum
á Ísland. Það var um kvöld og í kulda á
Reykjavíkurflugvelli norpuðu blaðaljós-
myndarar og fréttamenn og biðu eftir
að stjarnan birtist. Ella var frægasta
djasssöngkona þessa tíma og neðst í
landgangi flugvélarinnar stóð Guðjón B.
Baldvinsson verkalýðsforingi og færði
henni blóm. Það var sonur hans, Baldur
Guðjónsson sem stóð fyrir komu djass-
dívunnar til landsins en hann var þá við
nám í Svíþjóð.
Ella hélt ferna tónleika en þeir voru
illa sóttir og salur Háskólabíós varla
hálfsetinn sum kvöldin. Ástæðan trúlega
hátt verð á aðgöngumiðunum sem
kostuðu meira en vikulaun verkamanns.
Enda var frúin ekki par ánægð þegar
hún fór og kvaddi með þeim orðum að
til Íslands kæmi hún aldrei aftur. Við
það stóð hún.
ÞETTA GERÐIST: 25. FEBRÚAR 1966
Ella Fitzgerald kom til Íslands
TENNESSEE WILLIAMS leikskáld lést þennan dag árið 1983.
„Við erum öll tilraunadýr á rannsóknarstofu guðs.
Mannkynið er bara hluti af tilrauninni.“