Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 90
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR54 54
menning@frettabladid.is
Myndir Höskuldar Harra
Gylfasonar sem hann sýnir
á Mokka eru nefndar eftir
götuheitum sem eru ekki til
í raunveruleikanum.
„Ég hef alls engar fyrirfram mót-
aðar hugmyndir þegar ég byrja
á myndunum, heldur byggja þær
alfarið á spuna. Ég gríp blaðið
og byrja, stundum heppnast það
og stundum ekki, en þá reyni ég
að bjarga mér fyrir horn og fer í
aðrar áttir á nýjar slóðir. Þetta er
eins og að fara inn í frumskóg,“
segir myndlistarmaðurinn Hösk-
uldur Harri Gylfason sem opnað
hefur sýninguna Götur bæjarins á
kaffihúsinu Mokka við Skólavörðu-
stíg. Myndir Höskuldar Harra
eru unnar með blandaðri tækni
og notar hann meðal annars túss,
kaffi og tréliti við gerð þeirra.
Þetta er sjötta einkasýning
Höskuldar Harra, en hann útskrif-
aðist úr Myndlista- og handíða-
skóla Íslands árið 1987. Myndirn-
ar tólf á sölusýningunni á Mokka
heita allar eftir götum sem hljóma
eins og þær séu til en eru það ekki.
„Hingað til hafa myndirnar mínar
verið án titils, því sjálfum finnst
mér fremur tilgerðarlegt og eyði-
leggjandi að skrifa inn á myndirn-
ar og nefna þær. En fyrir suma er
það mikilvægt og því fór ég inn á
Já.is, gúgglaði götuheiti eins og
Torfhólar 176, Starland 64, Rauð-
hólabraut 83 og fleiri, og ef þau
voru ekki til þá notaði ég þau.“
Listamaðurinn hefur ekki áður
haldið sýningu á kaffihúsi en segir
verk sín smellpassa inn í hið sögu-
fræga Mokka. „Ég hef lengi verið
dapur yfir þróuninni hjá gallerí-
unum, þar sem vel er mætt á opn-
anir en svo koma sárafáir á sýn-
ingar næstu vikurnar á eftir. Þetta
hefur breyst mjög mikið til hins
verra á síðustu árum, jafnvel hjá
vel þekktum listamönnum. Mér
finnst frábært að sýna á Mokka.
Sumir listamenn vilja ekki sýna
á kaffihúsum, en það er bara ein-
hver bömmer í þeim,“ segir Hösk-
uldur Harri og bætir við að jafnt
og þétt rennerí af fólki á öllum
aldri á Mokka sé jákvætt, þar sem
margir meti og melti verkin og
hafi á þeim álit.
Höskuldur Harri starfar sem
grafískur hönnuður hjá Hvíta
húsinu, hannar listaverkabækur í
hjáverkum og kennir af og til við
Listaháskóla Íslands, en honum
bregður einnig reglulega fyrir í
sjónvarpsauglýsingum á skjáum
landsmanna. Hann hefur meðal
annars leikið í eftirminnilegum
auglýsingum fyrir SP-fjármögnun
og SS-pylsur. „Maður lætur plata
sig út í ýmislegt, en það er gaman
að þessu,“ segir Höskuldur Harri.
Sýning hans á Mokka stendur yfir
til 16. mars. kjartan@frettabladid.is
Rauðhólabraut og Starland
GÖTUR BÆJARINS Höskuldur Harri segist kunna betur við að sýna verk sín á Mokka
en í listagalleríum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópr-
ansöngkona og Helga Bryndís
Magnúsdóttir píanóleikari flytja
aríur og ljóð eftir Rossini, Grieg,
Liszt, Wagner, Strauss, Puccini og
Verdi á tónleikum í Salnum í dag,
laugardag, klukkan fimm.
Tónleikagestum er boðið í
ferðalag tóna og söngs þar sem
dramatísk sópranrödd Bylgju
Dísar og píanóleikur Helgu Bryn-
dísar bera þá á vit ævintýra er
jafnan eiga sér stað við vatn eða
á. Á einu síðdegi bera aríurnar og
ljóðin áheyrendur í Kappróður í
Feneyjum, slást í för með vatna-
lilju er berst með straumnum,
skyggnast í hugarheim pilts er
bíður unnustu sinnar við vatnið,
kynnast ást, gleði og sorg, hitta
konuna sem syngur við Rínarfljót
og svo mætti áfram telja.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir
útskrifaðist frá Söngskólanum
í Reykjavík haustið 2003 og frá
Royal Scottish Academy of Music
and Drama árið 2007. Meðal hlut-
verka Bylgju Dísar eru Flora í
uppsetningu Íslensku óperunnar
á La Traviata 2008 og hlutverk
Giovönnu í Rigoletto 2011. Árið
2010 vann Bylgja Dís 1. verðlaun í
The Barry Alexander Internation-
al Vocal Competition og söng við
það tilefni í Carnegie Hall.
Helga Bryndís Magnúsdóttir
útskrifaðist úr Tónlistarskólanum
í Reykjavík árið 1987 sem píanó-
kennari og einleikari. Hún stund-
aði framhaldsnám í Vínarborg og
Helsinki. Hún hefur verið virk
sem píanóleikari, bæði sem ein-
leikari og í kammertónlist, með
söngvurum, í CAPUT hópnum og
með Sinfóníuhljómsveitum.
Aríur og ljóð frá árbakkanum
BYLGJA DÍS OG HELGA BRYNDÍS Rossini, Grieg, Liszt, Wagner, Strauss, Puccini og
Verdi verða á dagsskránni í Salnum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BACH-TENÓR Í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU Benedikt Kristjánsson tenór og Jón Bjarnason
dómorganisti í Skálholti flytja aríur og resitatív úr kantötum og passíum og þekkt orgelverk eftir Johann
Sebastian Bach í Skálholtsdómkirkju í dag, laugardag, klukkan 15. Aðgangur er ókeypis.
Fyrr á þessu ári réð Borgarleik-
húsið sex ung leikskáld til að semja
stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt
er að uppsetningu hluta þeirra á
næsta ári. Nú auglýsir leikritun-
arsjóður Leikfélags Reykjavíkur
í þriðja sinn eftir umsóknum um
stöðu Leikskálds Borgarleikhúss-
ins. Stjórnarformaður Leikritun-
arsjóðs er frú Vigdís Finnboga-
dóttir. Markmið sjóðsins er að efla
nýsköpun og fjölbreytni í íslenskri
leikritun, auka vægi leikritunar í
samfélaginu og stuðla að því að
hún njóti virðingar í samfélagi
lista. Stjórn sjóðsins velur höfund
úr hópi umsækjenda sem býðst
eins árs samningur við Borgar-
leikhúsið. Skáldið fær aðstöðu í
leikhúsinu, vinnur þar á samnings-
tímanum og verður hluti af starfs-
liði Borgarleikhússins og nýtur
aðstoðar, leiðsagnar og stuðnings
leikhússtjóra og leiklistarráðu-
nauta. Unnið skal að ritun leik-
verks á tímabilinu með uppsetn-
ingu í huga, auk þess sem skáldið
kynnir sér leikhúsformið. Stefnt er
að því að leikverk, eitt eða fleiri,
sem unnin eru á samningstíma,
verði sviðsett í Borgarleikhúsinu.
Tvö leikskáld hafa þegar starfað
á vegum leikritunarsjóðsins með
prýðilegum árangri, Auður Jóns-
dóttir árið 2009 og Jón Gnarr árið
2010.
Leit að leikskáldi
Borgarleikhúss
AUÐUR JÓNSDÓTTIR RITHÖFUNDUR var Leikskáld Borgarleikhússins 2009. Nú
auglýsir leikhúsið eftir umsóknum um stöðuna fyrir yfirstandandi ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM