Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 104

Fréttablaðið - 25.02.2012, Síða 104
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR68 sínu. Hún átti mjög gott tímabil í Svíþjóð og varð markahæsti leik- maður sænsku úrvalsdeildarinn- ar. „Ég hefði getað komið í nóvem- ber [eftir að tímabilinu lauk í Sví- þjóð] en ég tel að það hafi verið rétt að koma eftir að hlé var gert á deildinni um mitt tímabilið. Það er samt heilmikið eftir af tíma- bilinu og vonandi fullt af leikjum í Meistaradeild Evrópu. Það eru rosalega spennandi tímar fram undan,“ segir hún en Turbine Potsdam mætir sterku liði WFC Rossiyanka frá Rússlandi í fjórð- ungsúrslitum Meistaradeildar- innar. „Fótboltinn hér í Þýskalandi er öðruvísi en í Svíþjóð. Hér er meira lagt upp úr hröðu spili og fáum snertingum. Það hentar mér mjög vel og ég held að ég falli vel að skipulagi liðsins.“ Farið í 20 röntgenmyndatökur Margrét Lára hefur nú í þrjú ár verið að berjast við þrálát meiðsli aftan í hægra læri sem erfiðlega gengur að ráða bót á. Meiðslin eru algeng hjá fótboltamönnum en í hennar tilviki virðast þau nánast krónísk. Hvort hún stenst álagið að spila í bestu deild heims og Meist- aradeild Evrópu í þokkabót verður mikil prófraun fyrir hana. „Ég hef örugglega farið í 20 röntgenmyndatökur. Það eina sem sést er að ég er með slit í baki. Þar er uppspretta meiðslanna og vilja læknarnir meina að þetta leiði niður í lærið. Meiðslin gera það að verkum að það er erfitt fyrir mig að hlaupa og sparka. Það eru jú nokkuð stór partur af því að spila fótbolta,“ segir hún og hlær. Hún hefur greinilega myndað þykkan skráp gagnvart þessu ástandi. Meiðslin fylgja mér mögulega út ferilinn „Ég er búin að sætta mig við að þetta gæti mögulega fylgt mér til loka ferilsins. Það var einfaldlega ákvörðun sem ég þurfti að taka. Vissulega sorglegt þegar maður er bara 25 ára gamall en ég byrj- aði að æfa fimm ára gömul og æfði einnig handbolta til sextán ára aldurs. Um tíma var ég í þremur flokkum í fótbolta og tveimur í handbolta samtímis – svo í yngri landsliðum í báðum greinum. Ég er 25 ára í lífaldri en kannski 32 ára gömul íþróttakona. Það er líka hægt að horfa á það þannig.“ Hún segist vera í góðum hönd- um í Potsdam og að henni hafi liðið vel síðustu tvær vikurnar. „Fram að því var ég mjög slæm. En ég hef verið í mjög markvissri og góðri endurhæfingu og æft stíft í sex vikur. Vonandi er það að bera árangur. En ég veit að þetta hef ég áður sagt á síðustu þremur árum og alltaf hefur komið bakslag. En meiðslin eru einfaldlega þess eðlis. Það er ekki hægt að senda mig í aðgerð og gefa mér sex eða níu mánuði til að jafna mig. Þetta er endalaus tilraunastarfsemi,“ segir hún. „En mér líður vel og tel að ef ég kemst í gegnum marsmánuð verði mér allir vegir færir.“ Ég er mikil barnakona Utan knattspyrnunnar er Margrét Lára dugleg við að halda sér við efnið. Hún nemur sálfræði í fjar- námi frá Íslandi og er þar í fullu námi þessa önnina. Sem stendur er fótboltinn í fyrsta sæti en það má heyra á henni að hún er einnig byrj- uð að huga að lífi án boltans. „Auðvitað langar mann að vera eilífur í fótboltanum en ég veit að það er ekki hægt. Eins og er vil ég klára tímabilið í Þýskalandi og gera það eins vel og ég get. Svo eru líka spennandi tímar fram undan með landsliðinu og ég horfi líka mikið til þeirra verkefna.“ Hún hefur verið í sambandi með Einari Erni Guðmundssyni, leikmanni Vals í N1-deild karla í handbolta, í tæp fimm ár og eins og svo mörg ung pör horfa þau til þess að stofna fjölskyldu. „Það er víst hlutverk okkar kvenna í líf- inu að fjölga mannkyninu og er ég mikil barnakona. Við eigum bæði stórar fjölskyldur og ég get ekki sett sjálfa mig í fyrsta sæti endalaust,“ segir hún og brosir. „En það er vel hægt að spila fót- bolta langt fram yfir þrítugt – þó svo að maður þyrfti að taka sér stöku barneignarfrí inn á milli. Mömmurnar virðast koma sterk- ari leikmenn til baka ef eitthvað er.“ En sem stendur á fótboltinn hug hennar allan. „Ég er að spila í frábæru liði og ég ætla að halda áfram að spila í fremstu röð á næstu árum. Þegar ég er á fullu í boltanum og laus við meiðslin nýt ég þess í botn og finnst ekk- ert skemmtilegra. Mig langar að vera í þessu eins lengi og ég get.“ M argrét Lára Viðarsdóttir er komin aftur í þýska fótbolt- ann, þar sem besta kvenna- knattspyrnan í heimi hefur verið síðasta áratuginn. Þar er hún á mála hjá Turbine Potsdam, einu besta félagsliði landsins og þar með heimsins alls. Potsdam liggur rétt utan borg- armarka hinnar annríku höf- uðborgar Þýskalands, Berlín. Fréttablaðið hitti Margréti Láru í vinalegum miðbæ þessa 250 þúsund manna borgar og ræddi við hana um átök næstu vikna og mánaða þar sem hún mun keppa í allra fremstu röð, framtíðaráætl- anir hennar og þriggja ára bar- áttu við meiðsli sem jafnvel sér ekki fyrir endann á. Jákvæð og bjartsýn í þetta sinn „Í raun er þetta nákvæmlega eins og ég átti von á,“ segir Margrét Lára við blaðamann yfir kaffi- bolla þess síðarnefnda. Hún lét vatnssopann duga að þessu sinni enda æfing hjá Turbine að við- talinu loknu. Viðtalið var tekið í síðustu viku, áður en hún lék sinn fyrsta leik með liðinu. Þá gerði Potsdam óvænt jafntefli við Hamburg og spilaði Margrét Lára síðustu 30 mínúturnar. Liðið á næst leik á morgun og mætir þá Leverkusen á heimavelli. Turbine Potsdam hefur orðið Þýskalandsmeistari í þrjú ár í röð og í fimm skipti alls. Aðeins Frankfurt hefur unnið deildina oftar frá stofnun hennar. Pots- dam hefur tvívegis borið sigur úr býtum í Meistaradeild Evrópu, síðast árið 2010 en tapaði fyrir Lyon í úrslitaleiknum í fyrra. Sem fyrr segir er Margrét Lára að reyna fyrir sér í annað sinn í Þýskalandi. Nítján ára gömul, árið 2006, samdi hún við Duisburg en dvölin þar reyndist henni erfið og ákvað hún að snúa aftur heim á leið. „Í þetta sinn var ég búin að undirbúa mig vel. Ég fór út með jákvætt hugarfar og bjartsýni. Ég ætlaði ekki að láta koma mér neitt á óvart. Ég veit að það er erfitt að vera einn í Þýskalandi. Hér skilur mann enginn og ég skil engan – allavega til að byrja með. Við erum í Austur-Þýskalandi og þjálfarinn, sem er af gamla skólanum, talar ekki stakt orð í ensku,“ segir hún. „Ég vissi að ég yrði mikið ein. En ég er að spila í besta liði í Evrópu og hingað er ég komin til að vinna eitthvað stórt. Það er það sem drífur mig áfram á hverjum degi. Ef mér leiðist á daginn – þá loka ég einfaldlega á það og reyni frekar að njóta þess að vera hér fram á vor og sjá svo til. Það var erfitt á sínum tíma að fara svo ung frá fjölskyldu og vinum en í dag er ég allt önnur manneskja og tek lífið á aðeins léttari nótum.“ Samningur Margrétar Láru er til átján mánaða en með uppsagn- arákvæði sem báðir aðilar geta nýtt sér að loknu tímabilinu. Þýski boltinn hentar mér vel Eftir að Margrét Lára samdi við Potsdam líkti hún því við að Gylfi Þór Sigurðsson myndi semja við Manchester United. „Þetta er hrikalega gott lið,“ segir hún um Turbine Potsdam. „Þjálfarinn er grjótharður en mér líkar mjög vel við allt saman. Við erum á miðju tímabili en það er búið að vera langt vetrarfrí og því líður mér eins og að nýtt tímabil sé að hefjast.“ Liðið er í efsta sæti deildar- innar með fimm stiga forystu á næsta lið, Duisburg. Margrét Lára lék síðast með Kristian- stad í Svíþjóð sem var þjálfað af Elísabetu Gunnarsdóttur en þær kynntust fyrst þegar Margrét Lára lék með ÍBV, uppeldisfélagi Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@frettabladid.is Hingað er ég komin til að vinna titla Margrét Lára Viðarsdóttir er nýbyrjuð að spila með þýska liðinu Turbine Potsdam, einu besta félagsliði heims í kvennaknattspyrnunni. Í ítarlegu viðtali segir hún frá áætlunum sínum, bæði innan sem utan fótboltavallarins og langvarandi baráttu hennar við meiðslin. Það er víst hlutverk okkar kvenna í lífinu að fjölga mannkyn- inu og er ég mikil barnakona. Við eigum bæði stórar fjöl- skyldur og ég get ekki sett sjálfa mig í fyrsta sæti endalaust. LÍÐUR VEL Í ÞÝSKALANDI Margrét Lára Viðarsdóttir tyllir sér á viðarbekk við æfingavöll Turbine Potsdam. Þar ætlar hún að spila knattspyrnu næstu mánuðina og lengur ef vel gengur. Turbine Potsdam er eitt allra sterkasta félagslið heims og varla hægt að komast hærra í knattspyrnuheiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN Sjálfsagt vita ekki margir að Margrét Lára Viðarsdóttir þótti á sínum tíma ein allra efnilegasta handboltakona landsins. Hún lék sem örvhent skytta með yngri flokkum ÍBV og var um tíma valin í yngri landsliðin í bæði handbolta og fótbolta. „Ég var sextán ára þegar ég hætti í hand- bolta og var það mjög erfið ákvörðun. Það var mikill barátta á milli þjálfaranna minna,“ segir Margrét Lára en eins og hún víkur að í við- talinu hér við hliðar var hún um tíma í þremur flokkum í fótbolta og tveimur í handbolta á sama tíma. „Það var lagt hart að mér í báðum greinum að halda áfram. Það gekk meira að segja svo langt að einhvern tímann þegar félagið fékk boð um að senda mig á æfingu með einu yngri landsliðanna í handbolta þá komst það í hendur fótboltaþjálfaranna og þaðan beint í ruslið,“ segir hún og hlær. Elísabet Gunnarsdóttir (á mynd) kom til ÍBV á þessum tíma til að þjálfa og hafði hún áhyggjur af þessu mikla æfingaálagi sem var á Margréti Láru. „Hún sagði mér að ef ég færi á handboltaæfingu gæti ég ekki komið á fótboltaæfingu sama dag til hennar. Ég gat ekki hugsað mér að missa út fótboltaæfingu og því var þetta niðurstaðan,“ segir hún. Kærasti Margrétar Láru, Einar Örn Guð- mundsson, spilar handbolta með Val í N1-deild karla og fylgist Margrét Lára því mjög vel með. „Ég fer oft á leiki og mér finnst handbolti skemmtileg íþrótt. Ég hef oft hugsað til þess á æfingum á gervigrasi um hávetur af hverju ég valdi ekki handboltann,“ segir hún og hlær. „En hvort sem ég hefði valið þá veit ég að ég hefði lagt mikinn metnað í íþróttina. Ég trúi því að ég hefði líka náð langt í handboltanum.“ Margrét Lára fylgdist vel með þátttöku handboltalandsliðsins á HM í Brasilíu í desember síðastliðnum. „Þær náðu frábærum árangri og mér finnst að það hefði mátt hylla þær meira. Ég dáist að þeim og þær sýndu að það er allt hægt. Þær geta verið fyrirmyndir okkar í fótbolta- landsliðinu.“ Þurfti að velja á milli fótbolta og handbolta sextán ára gömul
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.