Fréttablaðið - 10.03.2012, Síða 6

Fréttablaðið - 10.03.2012, Síða 6
10. mars 2012 LAUGARDAGUR6 Verð frá Við ætlum að elta góða veðrið í allt sumar og bjóðum flug á frábæru verði til Barcelona á Spáni, Bologna á Ítalíu og Basel í Sviss. Hafðu sólarolíuna til taks og bókaðu sól og sumaryl á www.icelandexpress.is Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum Settu upp sólgleraugun fyrir sumarið! 25.900 kr. Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is HópadeildIcelandExpressFáðu tilboð fyrir hópinn þinn! IÐNAÐUR Ólöglegt er að flytja inn sorp og spilliefni frá Bandaríkjun- um, að mati Árna Finnssonar, for- manns Náttúruverndarsamtaka Íslands. Í bréfi sem Árni hefur sent þingmönnum kemur fram að ákvæði Basel-samningsins komi í veg fyrir slíkan innflutning. Bréfið sendi Árni í kjölfar þess að Fréttablaðið greindi frá því að bandaríska sorpeyðingarfyrirtæk- ið Triumvirate Environmental hefði lagt fram kauptilboð í sorpeyðingar- stöðina Kölku á Suðurnesjum. Kaup- tilboðið lagði Triumvirate fram með það fyrir augum að flytja úrgang frá Norður-Ameríku til Íslands og brenna í sorpeyðingarstöðinni, sem er í Helguvík. Basel-samningurinn svokallaði er alþjóðasamningur sem hefur það að markmiði að draga úr flutn- ingi spilliefna á milli landa. Þá er honum sérstaklega ætlað að koma í veg fyrir að spilliefni frá ríkum löndum séu losuð í fátækum löndum. Í bréfi Árni er vísað til tveggja greina í samningum. Samkvæmt þeirri fyrri er aðildarríki að samn- ingum ekki leyfilegt að flytja inn sorp frá ríki sem hefur ekki aðild að honum en Bandaríkin hafa ekki staðfest samninginn. Greinin gildir nema Ísland og Bandaríkin geri með sér sér- stakan tvíhliða samning sem þó má ekki ganga s k e m u r e n ákvæði Basel- samningsins gera. Segir Árni að slíkur samningur hafi ekki verið gerður og því sé fyrirhugaður inn- flutningur óheimill samkvæmt lögum. - mþl Segir fyrirætlanir bandaríska sorpeyðingarfyrirtækisins Triumvirate ólögmætar: Ólögmætt að flytja inn sorp ÁRNI FINNSSON FÓLK „Ég er búin að eiga hunda síðan 1983 og þetta er held ég það allra skemmtilegasta sem ég hef kynnst í sambandi við hunda,“ segir Brynja Tomer, sem átti hugmyndina að því að hundar bættust í hóp heimsóknarvina Rauða krossins, sem heimsækja ýmsa samfélagshópa í hverri viku. Brynja hafði verið á ráðstefnu í Svíþjóð árið 2005 þar sem umfjöllunarefnið var hvernig hundar gætu bætt lífsgæði manna. Hundarnir heimsækja nú einkaheimili, hjúkrunarheimili, spítala og sambýli meðal annars ásamt eigendum sínum. Hundarnir þurfa að standast próf hjá Brynju til að fá að heim- sækja fólk. „Þetta er ofboðslega gefandi, það sem er svo gaman við þetta er að allir njóta góðs af. Þeir sem fá hundana í heimsókn hafa yfirleitt gaman að því að umgangast dýr.“ Fríða Björnsdóttir á þrjá hunda og fékk nýlega leyfi fyrir þá alla. Hún hefur farið í nokkur skipti með hundinn Möndlu á Hrafnistu í Kópavogi og hefur haft gaman af því. - þeb Hundavinir hjá Rauða krossinum heimsækja fólk í hverri viku og vekja lukku: Ofboðslega gefandi fyrir alla ÁNÆGJA Á HRAFNISTU Lára Herbjörnsdóttir kann greinilega vel við Möndlu, sem Fríða Björnsdóttir hefur komið með í heimsókn á Hrafnistu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur ICESAVE Tilskipun um innistæðu- tryggingar var rétt innleidd hér á landi og engin mismunun átti sér stað innan innistæðutrygg- ingakerfisins milli íslenskra og erlendra innistæðueigenda. Þetta kemur fram í greinargerð vegna málsvarnar íslenskra stjórnvalda í Icesave-málinu sem send var til EFTA-dómstólsins í fyrradag og gefin var út í gær. Stjórnvöld vísa því kröfu Eftir- litsstofnunnar EFTA (ESA) alfarið á bug, eins og segir í tilkynningu og krefjast þess að dómstóllinn hafni kröfu ESA. ESA telur að íslenska ríkið hafi brotið gegn fyrrnefndri til- skipun með því að íslenska inni- stæðutryggingakerfið hafi hyglað innistæðueigendum í íslenskum bönkum með því að færa þær inni- stæður inn í nýja banka án þess að tryggja greiðslur til innistæðueig- enda Icesave-reikninga í Bretlandi og Hollandi. Hvað varðar brot á innistæðu- tryggingartilskipuninni segir í málsvörninni að ekki hafi verið brotið gegn henni, enda sé hvergi kveðið á um að íslenska ríkinu hafi borið að leggja tryggingarsjóðnum til fjármuni ef eignir hans dygðu ekki til. Ekkert slíkt trygginga- kerfi geti staðist allsherjar banka- hrun og hvergi sé til þess ætlast. Þá hafi innistæðueigendur í Hol- landi og Bretlandi fengið greitt úr tryggingarsjóðum sinna ríkja og þeir sjóðir fái greiðslur úr búi Landsbankans. Allir innistæðu- eigendur, hvort sem er í innlend- um eða erlendum útibúum gömlu bankanna, hafi fengið forgangsrétt við skipti úr búum bankanna. Því sé tryggt að enginn muni skaðast og enginn innistæðueigandi sé því lakar settur en annar. Stjórnvöld vísa kröfu ESA alfarið á bug Í málsvörn íslenskra stjórnvalda vegna Icesave-málsins er því haldið fram að tilskipun um innistæðutryggingar hafi verið rétt innleidd og engin mismunun hafi átt sér stað varðandi meðferð íslenskra og erlendra innistæðueigenda. EFTA-DÓMSTÓLLINN Íslensk stjórnvöld krefjast þess í málsvörn sinni að dómstóll- inn hafni kröfu ESA í Icesave málinu. MYND/YAPH „Ekkert innstæðutryggingakerfi stenst allsherjar bankahrun og ljóst er af lögskýringargögnum og ýmsum úttektum að ekki er til þess ætlast. Við hrun bankakerfis þarf að grípa til annarra aðgerða. Það var gert á Íslandi með því að setja neyðarlögin og stofnsetja á grundvelli þeirra nýja banka. Allir innstæðueigendur í innlendum sem erlendum útibúum fengu forgangsrétt við skipti á búum gömlu bankanna. Með því hefur verið tryggt að enginn innstæðueigandi varð lakar settur.“ Úr málsvörn stjórnvalda í Icesave-málinu Enginn innistæðueigandi lakar settur Ef dómstóllinn mun fallast á að brotið hafi verið gegn tilskipun- inni byggja íslensk stjórnvöld á því að um óviðráðanlegar aðstæð- ur hafi verið að ræða og því skuli skylda ríksins falla niður. Trygg- ingafjárhæðin sem um ræðir nemi 650 milljörðum króna, sem jafn- gildi skatttekjum íslenska ríkis- ins í hálft annað ár og þess háttar fjármunir hafi ekki staðið Íslandi til boða á þeim tíma sem um ræðir. Hvað varðar mismunun milli innistæðueigenda segir í máls- vörn stjórnvalda að kröfur ESA séu á misskilningi byggðar. Hvorki íslenska innistæðutryggingakerf- ið né íslenska ríkið hafi greitt íslenskum innistæðueigendum. Eignir Landsbankans greiði kröf- ur bæði innlendra og erlendra innistæðueigenda. Mismunandi aðferðir við endurskipulagningu bankakerfisins hafi verið „full- komlega réttlætanlegar“ og það sé viðurkennt af ESA og Hæstarétti. ESA fær frest til að bregðast við þessari greinagerð stjórnvalda og leggja fram sín andsvör, sem stjórnvöld hyggjast svara áður en málflutningur hefst á síðari hluta ársins. Tim Ward fer fyrir máls- vörn íslenskra stjórnvalda. thorgils@frettabladid.is VIÐSKIPTI Væntanleg starfslok for- stjóra Norðurorku voru kynnt starfsmönnum fyrirtækisins á fundi í gærmorgun. Fram kemur í tilkynningu stjórnar Norðurorku að fráfar- andi forstjóri, Ágúst Torfi Hauks- son, hafi sagt upp starfi sínu. „Ágúst mun að eigin ósk hverfa til annarra starfa,“ segir þar. Í annarri tilkynningu frá Jarð- borunum kom svo fram að Ágúst Torfi hefði verið ráðinn þar sem forstjóri og hefji störf á næstunni. - óká Skiptir um forstjórastól: Frá Norðurorku til Jarðboranna Hefur þú áhyggjur af umsvifum glæpagengja á Íslandi? Já 61,2% Nei 38,8% SPURNING DAGSINS Í DAG: Fylgist þú með fréttum af Landsdómi? Segðu þína skoðun inni á Vísi.is KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.