Fréttablaðið - 10.03.2012, Side 17

Fréttablaðið - 10.03.2012, Side 17
LAUGARDAGUR 10. mars 2012 17 Ólafur Ragnar Grímsson hefur nú ákveðið að gefa kost á sér til forseta fimmta kjörtímabilið. Til þess hefur hann fullan rétt og þarf ekki að rökstyðja með neinu nema því að hann langi til að vinna áfram í þeim anda sem hann hefur gert. En rökstuðningur Ólafs sætir tíðindum. Hann er eftirfarandi: 1) ...vísað er til vaxandi óvissu um stjórnskipan landsins og stöðu forseta í stjórnarskrá, 2) … umróts á vettvangi þjóðmála og flokkakerfis, 3) … sem og átaka um fullveldi Íslands. 4) … Þá er einnig áréttað mikil- vægi þess að standa vörð um málstað þjóðarinnar á alþjóða- vettvangi. „Vaxandi óvissa varðandi stjórn- skipan og stöðu forseta”? Ef vísað er til þeirrar skapandi og frjóu umræðu sem nú á sér stað um stjórn- arskrá og stöðu forseta, sem birtist í umræðum þjóðfundar, tillögum stjórnlagaráðs, almennri umræðu og á hinu háa Alþingi þá ætti forseti að fagna þeirri „vegferð“. Hvetja til framsækni, þátttöku og nýsköpunar til að skapa Nýja Ísland. „Óvissan“ er kjarni í lýðræðislegu ferli. Hvað er hættulegt við að endur- skoða stjórnarskrána eftir lýðræð- islegum leiðum og hvað kallar sér- staklega á endurkjör núverandi forseta í því samhengi? Í sömu hendingu er vísað í umrót á vettvangi „þjóðmála og flokka- kerfis“. Umrótið verður varla meira en það sem kallast Hrun og varð fyrir þremur árum. Og umrót í flokkakerfi höfum við upplifað áður án þess að forsetaembættið ætti þar hlut að máli. Þegar Ólaf- ur Ragnar Grímsson var formaður Alþýðubandalagsins studdi hann ekki eigin flokk heldur Nýjan vett- vang í borgarstjórnarkosningum. Áður hafði hann sannarlega sjálf- ur tekið þátt í „umróti“ í ýmsum flokkum. Kvennalistinn kom og fór án atbeina forseta Íslands. Samfylk- ingin var stofnuð án aðkomu forseta, upp úr umróti þriggja flokka. Borg- araflokkur Alberts, Bandalag Vil- mundar, Frjálslyndi flokkurinn… Hvað kallar á sitjandi forseta til að valda reiti í umróti flokkakerfis- ins einmitt núna? Átök um fullveldi Mestum tíðindum sætir fullyrðing Ólafs Ragnars að nú standi átök um fullveldi landsins. Fróðlegt væri að sjá nánari skýringar á því. Taki maður þessa yfirlýsingu alvarlega er hún ekkert annað en stórtíðindi. Forseta Íslands ber skylda til að rök- styðja með skýrum hætti slíka yfir- lýsingu, annað sæmir ekki. Ef nú standa sérstök átök um sjálft full- veldi landsins ber að upplýsa um alla þætti þeirrar hættu og hvern- ig forseti hyggst bregðast við henni nái hann endurkjöri. Sé átt við aðild- arviðræður að Evrópusambandinu hefur aldrei staðið annað til en að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram að þeim loknum án þess að forseti komi þar sérstaklega að málum. Lítil fyrirhöfn Þegar slík stórmál eru nefnd sér- staklega (fullveldi Íslands, vaxandi óvissa um stjórnskipan landsins) kann ýmsum að þykja úr vöndu að ráða. En Ólafur Ragnar virðist telja fullveldið og stjórnskipan landsins og sjálfan málstað þjóðarinnar vera skammtímaverkefni sem hann geti leyst á tveimur árum: „Það er ein- læg ósk mín að þjóðin muni sýna því skilning þegar stöðugleiki hefur skapast í stjórnskipan landsins og stjórnarfari og staða okkar í samfé- lagi þjóðanna hefur skýrst, ákveði ég að hverfa til annarra verkefna áður en kjörtímabilið er á enda.“ Allt þetta á einu eða tveimur árum? Og þarf þá ekki eftir það að „… standa vörð um málstað Íslands Áskorun til forseta Íslands Forsetaembættið Stefán Jón Hafstein starfsmaður Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands í Malaví á alþjóðavettvangi?“ Ég skora á for- seta að gera skýra grein fyrir öllum þessum atriðum. Ástæðan fyrir því að ég skoraði ekki á forseta að halda áfram Ólafur Ragnar hefur ýmislegt gert vel í embætti. Ég samgladdist honum þegar hann sagði í áramóta- ávarpi sínu að hann væri hættur og hygðist finna kröftum sínum nýjan vettvang laus úr embættishlekkjum. Því nú er krafa tímans að við veljum forseta Nýja Íslands. Forsetakosn- ingarnar í sumar eru fyrsta tæki- færi þjóðarinnar eftir Hrun að segja skýrt og milliliðalaust að nú verði endurreisn, siðbót, bætt lýðræði, raunverulegar breytingar á kerfinu sem leiddi lýðveldið unga fram af brún hengiflugs haustið 2008. Við þurfum að segja skilið við sögu og arfleifð sem Ólafur Ragnar Grímsson er hluti af. Vegna þess að… Í fyrsta lagi varð honum illilega á með áköfum stuðningi sínum við útrásargengið og söluræður hans víða í útlöndum um íslensku þjóð- ina voru ekki samboðnar henni eða virðingu embættisins. Þótt finna megi því stað að forsetinn hafi beð- ist afsökunar með einum eða öðrum hætti, stendur óhaggað það sem hann sagði sjálfur, að embættið var misnotað meðan hann var á vakt og hann sýndi dómgreindarskort gagnvart auðmönnum. Þetta grefur undan trausti. Í öðru lagi hefur Ólafi Ragnari mistekist að gera raunverulega yfirbót þegar tækifæri gafst. Hann hafnaði algjörlega gagnrýni á fram- göngu sína í Rannsóknarskýrslu Alþingis og féllst ekki á nauðsyn þess að forsetaembættinu yrðu sett- ar siðareglur. Hann átti að taka for- ystu þegar ákall um siðbót í samfé- laginu heyrðist úr öllum áttum, en brást. Þetta grefur undan siðbót. Í þriðja lagi vinnur forseti ógagn þegar hann skapar óþarfan ótta og spilar á strengi „óvissu“. Þetta gref- ur undan tiltrú og vongleði. Hvernig forseta viljum við? Það jafngildir uppgjöf að kjósa for- seta Gamla Íslands enn á ný eftir sextán ára setu á þeim valdastóli. Þjóðin þarf sárlega á nýjum forseta að halda sem getur orðið samein- andi afl en ekki sundrungartákn. Á næstu misserum reynir á þjóð- ina, stjórnmálin og stjórnkerfið að bæta lýðræði og vinnubrögð við stjórn landsins. Það þarf að endur- vinna traust, setja leikreglur sem halda, bæta umræðumenningu, sýna heilindi; taka vonglöð skref til betri hátta og segja skilið við spill- ingu, gerræði og fúsk. Þá skiptir máli að forseti landsins sé með í för. Allar nánari upplýsingar á www.vita.is/golflif 4.-11. apríl Páskaferð - laust! 11.-18. apríl Örfá sæti laus 18.-25 apríl 4 sæti laus á Valle del Este 25. apríl-2. maí Örfá sæti laus 2.-9. maí Laus sæti á Valle del Este 2 frábærir golfstaðir suður af Alicante Mar Menor og Valle del Este VITA er lífið VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is Golfferðir vor 2012 Verðdæmi: Valle del Este 7 nætur, 11.-18. apríl Verð frá 179.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar *Á mann í tvíbýli (almennt verð 189.900 kr.) Innifalið: Flug, gisting, akstur milli hótels og flugvallar, fullt fæði, ótakmarkað golf með golfbíl. Draumaeyjan Madeira Lúxus golfferð 10.-20. apríl – 6 sæti laus Verð frá 279.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar *Á mann í tvíbýli (almennt verð 289.900 kr.) Islantilla og El Rompido í einni ferð 14 nætur, 8.-22. maí, vika á hvorum stað Verð frá 279.800 kr.* og 15.000 Vildarpunktarr *Á mann í tvíbýli (almennt verð 289.800 kr.) Innifalið: Flug, gisting í 14 nætur, ótakmarkað golf á golfbíl, hálft fæði og fararstjórn. Írland – páskaferð 5.-9. apríl 4 nætur og 5 golfhringir á Portmarnock Köben „Golf and the City“ Stórkostlegur nýr golfvöllur. Þriggja nátta helgarferðir frá 26. apríl til 25. maí Verð frá 139.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar *Á mann í tvíbýli (almennt verð 149.900 kr.) Verð frá 137.400 kr.* og 15.000 Vildarpunktar *Á mann í tvíbýli (almennt verð 147.400 kr.) ÍS LE N SK A S IA .IS V IT 5 87 94 0 3/ 12 Allar ferðir eru í beinu flugi með Icelandair. Ný ferð! Síðustu sætin! Sló í gegn í fyrra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.