Fréttablaðið - 10.03.2012, Qupperneq 24
10. mars 2012 LAUGARDAGUR24
N
ei,“ svarar Björg-
vin Björgvinsson
ákveðinn þegar
hann er spurður að
því hvort hann eigi
sér nokkur önnur
áhugamál en fótbolta. Það eru orð
að sönnu því frá unga aldri hefur líf
hans snúist um knattspyrnu, framan
af í gegnum áhuga og áhorf á leiki,
en síðasta áratuginn hefur hann
einnig gegnt stöðu aðstoðarmanns
Willums Þórs Þórssonar knatt-
spyrnuþjálfara.
Á þessum tíu árum hafa Björg-
vin og Willum starfað saman hjá
fjórum félögum: KR, Val, Keflavík
og Leikni. Í dag þjálfa þeir Breið-
holtsliðið síðastnefnda sem leikur í
1. deild í í sumar og Björgvin segir
markmiðið fyrir mót skýrt. „Þegar
Willum skrifaði undir samning við
Leikni sagði hann að markmiðið
væri að koma Leikni upp í Úrvals-
deildina og það ætlum við að gera,
með öllum tiltækum ráðum. Spenn-
ingurinn eykst eftir því sem mótið
nálgast og það er góð stemning í
hópnum,“ segir aðstoðarþjálfarinn
sem fagnaði 34 ára afmæli sínu á
þriðjudaginn. „Ég fékk köku og það
voru hamborgarar í matinn í tilefni
dagsins. Hamborgarar eru þó ekki
í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér
enda borða ég nánast allt. Nema súr-
mat, hann er alls ekki góður,“ segir
Björgvin og hlær, en hann hefur
verið í hjólastól nánast frá fæð-
ingu, býr á sambýlinu Bleikargróf
og starfar hjá Bjarkarási milli þess
sem hann sækir æfingar og horfir
á fótbolta.
Grjótharður Púllari
Björgvin fæddist í Keflavík en flutt-
ist í Kópavoginn um þriggja ára
aldur. Hann fékk snemma áhuga
á fótbolta og rifjar upp að sigur-
leikur Liverpool gegn Newcastle
hafi kveikt neistann. „Liverpool
vann stórsigur og þá vaknaði knatt-
spyrnuáhuginn fyrir alvöru. Ég hef
verið grjótharður Liverpool-maður
æ síðan og herbergið mitt er troð-
fullt af Liverpool-dóti. Ég fer líka
í pílagrímsferðir á heimavöll liðs-
ins, Anfield, á tveggja til þriggja
ára fresti og hef alls séð fimm leiki
þar, þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt
tap. Þá fer ég alltaf í skoðunarferðir
um leikvanginn og heimsæki Liver-
pool-verslanirnar sem mér þykir
mjög gaman,“ útskýrir Björgvin,
en fyrirliðinn Steven Gerrard er í
mestu uppáhaldi hjá honum af leik-
mönnum Liverpool. „Ég held líka
mikið upp á danska varnarmann-
inn Daniel Agger, sérstaklega vegna
þess að þegar íslenska landsliðið lék
við Danmörku fyrir nokkrum árum
gaf Agger mér treyjuna sem hann
spilaði í eftir leikinn. Treyjan hang-
ir uppi á vegg hjá mér.“
Segi mína skoðun á málunum
Samstarf Björgvins og Willums
Þórs hófst fyrir tíu árum þegar
Björgvin vandi komur sínar á leiki
KR-liðsins í Vesturbænum, en Will-
um var þá þjálfari liðsins.
„Ætli ég hafi ekki byrjað að fara á
KR-völlinn vegna þess að ég var orð-
inn hungraður í titla,“ segir Björg-
vin og hlær. „Willum fór að spjalla
við mig og spurði hvort ég væri til
í að aðstoða hann við þjálfunina og
við höfum unnið saman síðan. Þetta
hefur verið afar skemmtilegur tími.
Ég hjálpa honum við að stýra æfing-
unum og gef ráð þegar það á við. Svo
mæti ég auðvitað á alla leiki og læt
heyra vel í mér á línunni. Willum
hvetur mig alltaf til að segja mína
skoðun á málunum og mér leiðist
það ekki,“ bætir hann við, en Willum
sækir Björgvin og þeir keyra saman
á bíl þess síðarnefnda, sem er sér-
hannaður fyrir hjólastól, á allar
æfingar. „Það fer mikill tími í þetta,
sérstaklega þegar við vorum hjá
Keflavík og keyrðum Reykjanes-
brautina fram og til baka á hverjum
degi, en þeim tíma var vel varið.“
Ekki aftur snúið
Björgvin segir mikið og gott vin-
áttusamband hafa myndast milli
sín og Willums á þessum árum sem
þeir hafa starfað saman, en viður-
kennir jafnframt að báðir eigi þeir
til að vera nokkuð ákveðnir. „Við
pössum vel saman og samstarfið
gengur eins og í sögu. Við erum ekki
alltaf sammála um allt, en greiðum
fljótt úr öllum ágreiningsefnum.
Ég hef líka kynnst öllum þeim leik-
mönnum sem við höfum unnið með
mjög vel og þeir eru rosalega flott-
ir strákar,“ segir Björgvin og til-
tekur Andra Stein Birgisson, sem
lék undir stjórn Willums og Björg-
vins hjá Keflavík og nú hjá Leikni,
og fyrrum Valsmennina Pálma
Rafn Pálmason og Birki Má Sæv-
arsson, sem báðir eru atvinnumenn
í Skandinavíu, sem leikmenn sem
hann hefur sérlega mikið álit á af
þeim sem hann hefur unnið með.
Aðspurður segist Björgvin harð-
ákveðinn í að halda áfram að vinna
með Willum eins lengi og hugs-
ast getur. „Það er ekki aftur snúið
þegar maður byrjar á þessu,“ segir
hann að lokum.
Willum hvetur mig alltaf til að
segja mína skoðun á málunum og
mér leiðist það ekki.
Lætur heyra í sér á línunni
Björgvin Björgvinsson hefur verið aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar knattspyrnuþjálfara í
áratug og hjá fjórum félögum, en þeir starfa nú saman hjá Leikni í Breiðholti. Kjartan Guðmundsson
ræddi við Björgvin, sem er forfallinn fótboltaáhugamaður, um starfið og tímann sem er vel varið.
HARÐUR PÚLLARI Heimili Björgvins á sambýlinu Bleikargróf er skreytt munum
tengdum eftirlætis enska liðinu, Liverpool, í hólf og gólf. Í baksýn sést danska
landsliðstreyja Daniels Agger sem varnarmaður Liverpool færði Björgvini að gjöf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
„Fyrst og fremst hefur Bjöggi
gríðarlegan áhuga og ástríðu fyrir
knattspyrnu. Slíkt smitar út frá sér og
er svo mikilvægt í öllum íþróttum,
sama hvort um ræðir þjálfara, leik-
menn, stjórnarmenn eða áhorf-
endur. Hann er líka grjótharður og er
mættur út á völl í tíu stiga gaddi. En
Bjöggi hefur líka góða sýn á leikinn.
Hann hefur farið á þjálfaranámskeið
hjá KSÍ, gefur góð ráð í sambandi við
æfingar og hefur áunnið sér virðingu
leikmanna í gegnum þetta allt. Það
er mikill stuðningur af honum,“ segir
Willum Þór Þórsson knattspyrnu-
þjálfari og samstarfsmaður Björgvins.
Willum sækir Björgvin á allar
æfingar og segir góða vináttu hafa
þróast milli þeirra. „Það er smá
aukasnúningur að sækja Bjögga en
ekkert til að tala um, enda er hann
virkilegur skemmtilegur, mikill húm-
oristi og lífgar upp á þessar ferðir á
æfingar, til dæmis þegar við vorum
hjá Keflavík og keyrðum suður með
sjó. Svo er Bjöggi líka afar traustur
og tryggur sínu fólki. Þótt við séum
Leiknismenn í dag fer hann einu
sinni í viku í Valsheimilið og fylgist
vel með KR-ingum og Keflvíkingum.
Hann stendur með sínum.“
Willum er Chelsea-maður en
Björgvin stuðningsmaður Liverpool.
Aðspurður segir Willum Björgvin eitt
sinn hafa verið fremur viðkvæman
fyrir neikvæðum skotum á Liverpool
en það hafi breyst með tímanum.
„Við hlæjum að þessum ríg í enska
boltanum, enda er nóg fyrir okkur að
taka ábyrgð á liðinu okkar. Undan-
farin ár hef ég, sem Chelsea-maður,
verið í þeirri aðstöðu að geta skotið
harkalega á Liverpool en nú er hann
farinn að geta bombað harkalega á
móti. Þetta er bara skemmtilegt.“
Hann segir samstarfið ganga
mjög vel. „Það er oft talað um að
ég geti verið hvass og farið mikinn
á línunni í leikjum, en ég held að
það sé misskilningur því Bjöggi ber
ábyrgðina á mestu af þessu. Ef ég
kalla eitthvað inn á völlinn, til dæmis
áhersluatriði sem þarf að minna á,
tónar Bjöggi það margfalt. Ég held
að Bjöggi sé orðinn miklu meira
vandamál fyrir dómara heldur en ég
nokkurn tíma,“ segir Willum og hlær.
BJÖRGVIN ER
HÁVÆRARI EN ÉG
AÐSTOÐARÞJÁLFARI Willum Þór og Björgvin
hafa farið saman á flestar æfingar hjá KR,
Val, Keflavík og Leikni síðasta áratuginn.
Willum segir mikilvægt að hafa Björgvin
með sér á línunni, enda gefi hann góð ráð
og áhugi hans smiti út frá sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG