Fréttablaðið - 10.03.2012, Qupperneq 46
10. mars 2012 LAUGARDAGUR4
Upplýsingatækni - spennandi tækifæri
Hugbúnaðarsérfræðingur
Starfið felst í hönnun, forritun og samþættingu kerfa. Leitað er að öflugum
fagmanni með a.m.k. fimm ára reynslu í faginu. Góð þekking á .NET, C# og SQL
er nauðsynleg. Topp starf í boði. Unnið er skv. Agile/Scrum aðferðafræðinni
Hugbúnaðarprófanir
Öflugt fyrirtæki leitar að sérfræðingi í hugbúnaðarprófunum. Í starfinu
felst meðal annars ábyrgð á framkvæmd prófana og samskiptum við
hugbúnaðarsérfræðinga. Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með
a.m.k. þriggja ára reynslu af prófunum eða þróun hugbúnaðar. Unnið er skv.
Agile/Scrum aðferðafræðinni.
Forritun og rekstur
Leiðandi og traust Þjónustufyrirtæki í ferðaiðnaði óskar eftir að ráða sérfræðing
í fjölbreytt starf á upplýsingatæknisvið. Starfið felst í forritun, rekstri, viðhaldi
og samþættingu upplýsingakerfa, sérhæfðri notendaaðstoð og samskiptum við
ytri þjónustuaðila. Reynsla af rekstri upplýsingakerfa auk forritunarkunnáttu er
nauðsynleg. Lausnirnar eru t.d. byggðar á SharePoint, Nintex, WebMethods
SQL/Oracle og Windows Exchance. Nákvæmni, samviskusemi, þjónustulipurð,
góð enskukunnátta og geta til að vinna undir álagi eru nauðsynlegir eiginleikar.
Maritech – tæknimaður
Maritech óskar að ráða tæknimann/sérfræðing í fjölbreytt starf sem felst m.a. í
uppsetningum á hugbúnaðarlausnum Maritech, tengingum þeirra við önnur kerfi,
gagnagrunna o.fl. Leitað er að þjónustuliprum einstaklingi með menntun á sviði
upplýsingatækni eða viðskipta. Mjög góð þekking á sviði á upplýsingatækni er
nauðsynleg sem og starfsreynsla af sambærilegu starfi.
.NET Hugbúnaðarþróun
Öflugt og leiðandi fyrirtæki leitar að .NET sérfræðingi með marktæka starfsreynslu
í faginu. Fyrir réttan einstakling er í boði lykilhlutverk í forritunarteymi fyrirtækisins.
Unnið er skv. Agile/Scrum aðferðafræðinni.
Upplýsingatækni - ný tækifæri
Óskum eftir að komast í samband við háskólamenntaða hugbúnaðarsérfræðinga
sem leita nýrra tækifæra á sviði hugbúnaðargerðar eða annarra starfa á sviði
upplýsingatækni. Viðskiptavinir okkar í upplýsingatækni eru fjölmörg fyrirtæki af
ýmsum stærðum í ólíkum atvinnugreinum. Í boði eru fjölbreytt störf og margvísleg
tækifæri. Hafðu samband við ráðgjafa Intellecta og kannaðu málið.
Upplýsingar um störfin veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511 1225.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn með ferilskrá óskast
fyllt út á www.intellecta.is fyrir 19. mars nk. ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna
auglýsir eftir umsóknum um lánatryggingar
Svanni veitir ábyrgðartryggingar til kvenna með góðar
viðskiptahugmyndir en sjóðurinn er í samstarfi við
Landsbankann um lánafyrirgreiðslu.
Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu
konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um
tryggingu. Gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/
nýnæmi að einhverju marki og að verkefnið leiði til aukinnar
atvinnusköpunar kvenna.
Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:
Stofnkostnaðar •
Markaðskostnaðar•
Vöruþróunar •
Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu •
á vöru/þjónustu
Ábyrgð skal ekki vera undir 1 milljónum króna og að jafnaði skal
ábyrgð ekki fara yfir 5 milljónir króna.
Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs má finna á
heimasíðu verkefnisins www.svanni.is og er umsóknarfrestur til
og með 16.apríl.
Athugið að opið er fyrir umsóknir allt árið um kring en úthlutun
fer fram að vori og hausti.
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins
í síma 582-4914 eða í netfangið svanni@svanni.is
1
2
-0
6
2
0
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Flugvallarstjóri á Akureyri
Isavia leitar að flugvallarstjóra til að sjá um daglegan rekstur
flugvallar og flugstöðvar á Akureyri og vera leiðandi í breytingum
og uppbyggingu þjónustunnar.
Menntun og hæfni
Leitað er að starfsmanni sem hefur framúrskarandi samskiptahæfileika, örugga og þægilega
framkomu. Viðkomandi þarf að vera skipulagður, töluglöggur og eiga auðvelt með að vinna
undir álagi.
Umsóknir
424 4114
haukur.hauksson@isavia.is
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
www.isavia.is/atvinna 23. mars
Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna.
Rafeindavirki
Rafeindavirki óskast til starfa við fjölbreytt verkefni í
rafeindastarfsemi. Starfsmaður þarf að vera nákvæmur
í vinnubrögðum og geta unnið sjálfstætt að verkefnum
og stjórnun þeirra.
Örtækni er vinnustaður þar sem fatlaðir og ófatlaðir
starfsmenn vinna að fjölbreyttum verkefnum í raf-
magns- og rafeindaiðnaði.
Í boði er góð vinnuaðstaða í nýju húsnæði að Hátúni
10c.
Áhugasamir sendi tölvupóst á hartmann@ortaekni.is
eða thorsteinn@vobi.is
Örtækni - Hátúni 10c -105 Reykjavík - www.ortaekni.is
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudagsmorgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur