Fréttablaðið - 10.03.2012, Page 91

Fréttablaðið - 10.03.2012, Page 91
LAUGARDAGUR 10. mars 2012 59 Britney Spears er í þann mund að skrifa undir samning um að vera dómari í sjónvarpsþáttunum X-Factor. Talið er að hún fái í sinn hlut tíu milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða króna, fyrir næstu þáttaröð. Stutt er síðan maðurinn á bak við þættina, Simon Cowell, hrósaði hinni þrítugu söngkonu í útvarpsþætti. „Það að hún sé enn umtalaðasta, ekki bara poppstjarnan, heldur manneskjan í heiminum í dag þýðir að hún býr yfir einstökum hæfileikum,“ sagði hann og hélt áfram: „Hún er þrautseig. Það að hún hafi komist í gegnum alls konar hluti og er enn sjóðheit með vinsælar plötur sýnir að hún er afar sérstök.“ Áhorfið á fyrstu þáttaröðina af X- Factor var undir væntingum í fyrra og var áhorfið meira á keppinaut- inn American Idol. Búið er að reka dómarana Paulu Abdul og Nicole Sherzinger. Cowell hefur ekkert viljað segja hvaða dómarar taka við af þeim en hefur staðfest að þeir verða báðir kvenkyns. Spears er ein af mörgum sem hafa verið orðaðar við dómarastólinn. Janet Jack- son var ein þeirra en talið er að hún hafi ekki getað tekið að sér starfið vegna væntan- legrar tónleikaferðar. Leikarahjónin fyrrverandi Billy Bob Thornton og Angelina Jolie ákváðu að skilja vegna þess að Thornton vildi ekki eignast börn með Jolie. Þetta segir fyrrver- andi eiginkona hans, Melissa deBin-Parish. Hún var gift Thornton á árunum 1978 til 1980 og segir að lítill áhugi hans á börnum hafi fært þau í sundur. „Ég veit að hann vildi ekki hafa börn í kring- um sig á þeim tíma. Skoðið bara hvað gerð- ist. Hún ætt- leiddi Maddox og hann hvarf á braut,“ sagði hún. Thornton og Jolie hittust árið 1999 og gift- ust eftir tveggja mánaða sam- band. Þremur mánuðum eftir að Jolie ættleiddi Maddox skildu þau. Engin börn með Jolie ENGIN BÖRN Billy Bob Thornton er sagður ekki hafa viljað eignast börn með Jolie. Tvíburasysturnar Ashley og Mary-Kate Olsen viðurkenna í nýju viðtali við Elle UK að þær fái gjarnan sömu hugmyndina á sama tíma. Systurnar slógu í gegn á barns- aldri fyrir leik sinn í sjónvarps- þáttunum Full House en hafa nú alfarið snúið sér að fatahönnun og öðrum rekstri. Þær segjast mjög nánar, svo nánar að stund- um virðast þær deila sama huga. „Við löðumst að ólíkum hlutum en erum þó alltaf sammála. Ég er ekki viss um að við áttum okkur á hversu samstilltar við í raun erum. Þetta er næstum eins og einn heili sem deilist á tvær manneskjur,“ sagði Ashley við blaðamann Elle. Hugsa eins SAMSTILLTAR Ashley og Mary-Kate Olsen eru mjög samrýndar og hugsa eins. NORDICPHOTOS/GETTY Leikkonan Kyra Sedgwick hefur verið gift leikaranum Kevin Bacon í 23 ár en segist enn fá fiðring í hvert sinn sem hún sér eiginmann sinn. „Kjarninn í sambandinu hefur ekki breyst mikið öll þessi ár. Þegar hann gengur inn í herbergi fæ ég enn fiðring og hugsa: „Mikið er hann myndarlegur.“ Þið getið spurt hvern sem er, ég held að til- finningar mínar í hans garð séu nokkuð augljósar. Ég er enn að kynnast honum og tilhugsunin um að eldast með honum finnst mér bæði spennandi og ógnvænleg,“ sagði leikkonan í nýlegu blaðavið- tali. Fær fiðrildi í magann ÁSTFANGIN Kyra Sedgwick fær fiðring í hvert sinn sem hún sér eiginmann sinn, Kevin Bacon. NORDICPHOTOS/GETTY Britney Spears á leið í X-Factor Á LEIÐ Í X-FACTOR? Britney Spears er sögð ætla að taka að sér dómarahlut- verkið í X-Factor.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.