Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 62
17. mars 2012 LAUGARDAGUR16
Erum að leita að skemmtilegu,
jákvæðu og sjálfstæðu fólki
Stöður sem við erum að ráða í
Kokkur auk aðstoðarfólks í eldhús
Vaktstjóra yfir þjónustu, helst lærðum þjón.
Áhugasamir hafi sambandi með því að senda inn
umsókn á snapsbistro@snapsbistro.is
Starfsfólk óskast
Veitingastaðurinn Rub23 Reykjavík óskar
eftir starfsfólki í eftirfarandi stöður:
• Matreiðslumenn
• Starfsmenn í eldhús með áhuga á sushi
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum
starfs kröftum, reynsla er kostur.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn með
ferilskrá á reykjavik@rub23.is
Auglýst er eftir 3 ráðgjöfum fyrir Þekkingarmiðstöð Sjálfs-
bjargar sem er nýtt verkefni á vegum Sjálfsbjargar lands-
sambands fatlaðra og Sjálfsbjargarheimilisins.
Miðstöðinni er ætlað að efla hreyfihamlað fólk með upplýsinga-
gjöf varðandi t.d. aðgengi, gagnlegar lausnir í hversdagslífinu og
réttindi. Aðstandendur, einstaklingar með tímabundna hreyfisk-
erðingu sem og aðrir geta einnig nýtt sér Þekkingarmiðstöðina.
Fræðslustarfsemi í formi námskeiða og jafningjafræðslu verður
mikilvægur þáttur í starfseminni ásamt öflugri heimasíðu.
Ráðgjafar miðstöðvarinnar sinna upplýsingagjöf, ýmist í síma
eða með viðtölum. Einnig eru þeir tengiliðir við samstarfsaðila.
Við leitum eftir einstaklingum með háskólamenntun sem
nýtist í eftirfarandi störfum:
- Ráðgjafi/staðgengill forstöðumanns. Leitað er eftir iðjuþjálfa
eða starfsmanni með aðra sambærilega menntun.
- Ráðgjafi/umsjónarmaður heimasíðu Þekkingarmiðstöðvar
innar. Viðkomandi þarf að búa yfir haldgóðri reynslu í heima
síðu- og tölvumálum.
- Ráðgjafi/umsjónarmaður fræðslumála. Leitað er eftir kennara
eða einstaklingi með aðra sambærilega menntun.
Aðrar hæfniskröfur sem gerðar eru til umsækjenda:
• Áhugi og þekking á málefnum hreyfihamlaðs fólks
• Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
• Hæfileiki til að tjá sig í mæltu og rituðu máli
• Góð almenn tölvufærni
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og geta til að vinna í hópi.
Hreyfihamlaðir einstaklingar eru hvattir til að sækja um. Gert
er ráð fyrir 80-100% starfshlutfalli, en annað hlutfall kemur til
greina.
Miðstöðin mun opna í júní 2012, því er æskilegt að umsækjen-
dur geti hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir forstöðu-
maður Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar í síma 895 0593.
Tölvupóstur: gudbjorg@sjalfsbjorg.is. Nánari upplýsingar um
Þekkingarmiðstöðina er að finna á sjalfsbjorg.is.
Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2012.
Umsóknum skal skilað í tölvupósti á framangreint póstfang,
ásamt með ferilsskrá og greinargerð er lýsir hvers vegna um-
sækjandi sækir um starfið og hví hann telur sig til þess fallinn
að gegna því.
Ráðgjafar Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar
“Make your mark.
Improve lives.”
Roche, Switzerland
Starfskraftur á Sequence Capture rannsóknarstofu
Starfið felur í sér framleiðslu, gæðapróf og framleiðsluþróun í Sequence Capture deild.
Tilvonandi starfsmaður mun vinna við alla þætti framleiðslunnar í samræmi við verklýsingar, m.a.
DNA framleiðslu, samsetningu lokaafurðar og almennan stuðning við afgreiðslu pantana.
Við leitum að nákvæmum og áhugasömum einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt
sem og í hóp. Í boði er áhugavert starf hjá alþjóðlegu fyrirtæki.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf í líffræði, lífeindafræði eða skyldum greinum
• Starfsreynsla af rannsóknarstofu er æskileg
• Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Góð enskukunnátta og tölvufærni
Áhugasamir sendi umsókn og starfsferilsskrá (CV) á netfangið: reykjavik.jobs@roche.com
Nánari upplýsingar veita
Freyja Eiríksdóttir, freyja.eiriksdottir@roche.com (s: 414-2147)
Elsa Þórey Eysteinsdóttir, elsa_thorey.eysteinsdottir@roche.com (s: 414-2116)
Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk.
Söludeild Hreyfingar er að leita að hörku-
duglegum, heilbrigðum og lífsglöðum sölumanni.
Á meðal verkefna er að annast tilboðsgerð
og frágang sölusamninga auk þess að annast
viðhald viðskiptatengsla og öflun nýrra
viðskiptavina. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf strax. Við leitum að einstaklingi sem
uppfyllir eftirfarandi hæfniskröfur:
• Hefur reynslu af sölustörfum
• Er samviskusamur og metnaðarfullur
• Býr yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni í
mannlegum samskiptum
• Hefur frumkvæði og á gott með að vinna í teymi
• Háskólamenntun er kostur
• Er reyklaus
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá
með mynd og upplýsingar um meðmælendur á
netfangið hreyfing@hreyfing.is fyrir 23. mars.
SÖLUMAÐUR
WOW talar
pólsku!
Hvað með
þig?
WOW air leitar logandi ljósi að starfs-
manni í hálft starf í þjónustuver sitt.
Viðkomandi þarf að hafa einskæran
áhuga á flugi, símsvörun og upplýsinga-
gjöf auk þess að tala reiprennandi
pólsku, íslensku og ensku. Já, pólsku.
Reynsla af starfi í ferðaþjónustu er
æskileg, auk þess sem ævintýraþrá,
ferðahugur, glaðlyndi og skipulags-
hæfileikar eru allt kostir sem við
erum að leita að.
Erum við nokkuð að tala um þig?
Sendu umsókn á
egtalapolsku@wowair.is
fyrir 15. mars, 2012.