Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 110
17. mars 2012 LAUGARDAGUR74
PERSÓNAN
Hörður Snævar Jónsson
Aldur: 22 ára
Starf: Ritstjóri vefsíðunnar 433.is
Búseta: Kópavogur
Foreldrar: Alda Harðardóttir, fjár-
málastjóri og Jón Friðrik Snorrason
Stjörnumerki: Vatnsberi
Hörður er ritstjóri fótboltasíðunnar 433.is
sem fór í loftið í gær.
„Ég vildi opna búð sem fær viðskiptavininn til
að segja vá þegar hann labbar inn. Hingað til
hafa flestir sagt vá þegar þeir ganga inn um
dyrnar,“ segir Alfreð Chiarolanzio eigandi nýju
nammibúðarinnar Nammibarinn á Laugavegi.
Nammibarinn státar af alls 430 nammi-
boxum og telur Ólafur að hann bjóði upp á
mesta úrval sælgætis á Íslandi. „Ég held að
þetta sé stærsti nammibar á Íslandi og ég hef
fengið að heyra að við séum ekki með nógu
stóra poka til rúma allar tegundirnar,“ segir
Alfreð en hann hefur lengi langað að opna búð
sem býður einungis upp á sælgæti. „Ég hef
verið að vinna í nammibransanum lengi og
fannst vanta búð þar sem það er hreinlega upp-
lifun fyrir viðskiptavininn að versla.“
Nammibarinn er opinn frá 11 til miðnættis á
virkum dögum en til tvö á nóttunni um helgar
og hafa viðtökurnar verið framar vonum
síðan verslunin opnaði fyrir rúmri viku.
„ Íslendingar eru náttúrulega nammisjúkir og
það var frábær stemning hérna síðustu helgi.
Það eru ekki bara djammarar í miðbænum á
kvöldin um helgar,“ segir Alfreð sem ætlar
sér stóra hluti með Nammibarinn í framtíð-
inni. „Búðin á Laugavegi er bara sú fyrsta af
mörgum enda er greinilegt að það er markaður
fyrir svona búð.“
Nokkrar flökkusögur hafa verið á sveimi
um óhreinlæti nammiboxa í verslunum en
Alfreð vill meina að það séu allt ýkjur en hann
leggur hins vegar mikið upp úr hreinlæti í
búðinni. „Hver og einn fær sína eigin skeið
með pokanum sem viðskiptavinurinn skilar
til okkar þegar hann er búinn að versla. Við
hugsum mikið um hreinlæti.“ - áp
Íslendingar eru nammisjúkir
430 NAMMIBOX F37160312 Alfreð Chiarolanzio segir
viðtökur Nammibarsins hafa verið framar vonum enda
séu Íslendingar nammisjúkir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bæjarlind 16 - Kópavogur - Sími 553 7100 - www.linan.is
opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16
svefnpláss fyrir 2
140x200 cm
svefnpláss fyrir 2
140x200 cm
einfalt og fljótlegt að breyta í rúm
- extra þykk og góð springdýna
einfalt og fljótlegt að breyta í rúm
- góð springdýna
SUPREME
RECAST
deluxe
kr. 169.800
kr. 149.800
DAGUR & NÓTT
Nýr Dominos veitingastaður
opnar á Selfossi í dag og í til-
efni þess mun Patrick Doyle, for-
stjóri Dominos í heiminum, mæta
á staðinn og baka eina flatböku.
Doyle flýgur með einkaþotu til
landsins til þess eins að vera við-
staddur opnunina.
Doyle var í fyrra valinn For-
stjóri ársins, eða CEO of The
Year upp á enska vísu, af sjón-
varpsstöðinni CNBC. Hann
flýgur hingað til lands í dag til
þess að vera viðstaddur opnun
staðarins, klippa á borðann og
baka í leiðinni eina pitsu handa
heppnum viðskiptavini. Doyle
þessi er þekktur fyrir létta lund
og leikur forstjórinn til að mynda
sjálfur í mörgum auglýsingum
fyrirtækisins.
Birgir Örn Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Dominos á Íslandi,
segir starfsfólk Dominos spennt
fyrir að hitta Doyle en þetta er
í fyrsta sinn sem forstjórinn
heimsækir landið. „Hann ferðast
mikið á milli landa en hefur ekki
komið til Íslands áður og hafði
því mikinn áhuga á að heimsækja
landið. Við höfðum samband við
hann og þar sem hann er á ferða-
lagi um Evrópu var auðvelt fyrir
hann að koma við í leiðinni.“
Inntur eftir því hvort hann viti
hvers konar pitsu Doyle muni
baka svarar Birgir Örn neitandi.
„Það kemur í ljós síðar í dag.
Hann hefur starfað hjá fyrir-
tækinu mjög lengi og unnið sig
upp frá grunni þannig ég held að
honum verði hæg heimantökin,“
segir Birgir Örn að lokum.
Sérstök opnunardagskrá verður
á Dominos á Selfossi í dag á milli
klukkan 12.30 og 14.30.
sara@frettabladid.is
BIRGIR ÖRN BIRGISSON: KEMUR Í LJÓS HVAÐA PITSU HANN BAKAR
KEMUR Á EINKAÞOTU OG
BAKAR PITSU Á SELFOSSI
„Það eru ögn færri erlendir fjöl-
miðlar í ár en hafa verið síðustu ár
en það er mjög góðmennt,“ segir
Þórey Eva Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Fashion
Festival, um komu erlendra fjöl-
miðla á tískuhátíðina sem fer fram
dagana 30. og 31. mars.
Um 20 erlendir aðilar hafa stað-
fest komu sína á RFF til að berja
íslenska tísku augum. Ber það helst
að nefna blaðamenn frá þýska,
ítalska og breska Vogue, danska
Eurowoman og aðstandendur vef-
síðnanna Fashionista.com, Fashio-
netc.com og Stylecaster.com. Einnig
hefur innkaupafólk frá danska
hönnuðinum Henrik Vibskov sem
og frá bandarísku verslanakeðjunni
Bloomingdale‘s boðað komu sína.
„Markaðurinn er óneitanlega
stærri erlendis og því er mjög
mikil vægt að nota þessa helgi til
að mynda samband milli íslenskra
hönnuða og erlendu aðilanna.
Alþjóðleg markaðssetning er mikil-
væg og þessi helgi getur opnað
ýmsar dyr fyrir hönnuðina,“ segir
Þórey Eva en á laugardeginum 31.
mars verður haldið málþing undir
stjórn þýska hönnuðarins Bernhard
Willhelm. „Þar verður kjörið tæki-
færi fyrir íslenska hönnuði að vekja
athygli á vöru sinni, fá gagnrýni og
mynda tengslanet.“
Það styttist óðum í tísku veisluna
en markmiðið er að mið bærinn
fyllist af lífi þessa helgina. Sérstakir
tískudagar verða í verslunum mið-
bæjarins sem verða opnar til kl. 22
á laugardeginum vegna RFF. Sjálf-
ar tískusýningarnar eru 30. og 31.
mars í Hörpu og Gamla Bíó en þar
má sjá hönnuði á borð við Munda,
Kormák&Skjöld, Ellu, Milla Snorra-
son, Kalda og Kron by Kronkron
sýna nýjustu fatalínur sínar.
- áp
Vogue og Eurowoman á RFF
MIKILL ÁHUGI Alþjóðleg markaðsetning er mikilvæg fyrir íslenska tísku segir Þórey
Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri RFF, en um 20 erlendir aðilar hafa staðfest komu
sína á hátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BAKANDI FORSTJÓRI Patrick Doyle, forstjóri Dominos í heiminum, verður viðstaddur
opnun nýs staðar á Selfossi í dag. Hann mun taka til hendinni og baka eina pitsu.