Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 4
17. mars 2012 LAUGARDAGUR4
VIÐSKIPTI Landsbankinn færði
eignir sínar niður um 38 milljarða
króna vegna endurreiknings á
gengislánum eftir dóm Hæsta-
réttar frá í síðasta mánuði.
Þetta kemur fram í ársreikningi
bankans sem gefinn var út í gær.
Í tilkynningu frá bankanum
er tekið fram að í þessum
útreikningi, sem sé í samræmi
við óskir Fjármálaeftirlitsins,
felist engin afstaða til þess hversu
víðtækt fordæmisgildi um ræddur
dómur hefur. Steinþór Pálsson
bankastjóri segir í tilkynningunni
að nýfallnir dómar hafi ekki verið
nægjanlega skýrir og hafi því
„valdið óvissu um hvernig fara á
með ólögmæt lán og haga endur-
útreikningi þeirra“.
Steinþór segir bankann sýna
ýtrustu varúð í mati á áhrifum
dómsins. „Ljóst er að fleiri dómar
þurfa að falla áður en myndin
skýrist.“
Þess vegna, að því er kemur
fram í tilkynningunni, gæti þessi
upphæð komið til með að breytast
eftir því sem mál þróast.
Fram kom í ársreikningi Arion
banka sem gefinn var út á fimmtu-
dag að þar hafi 13,8 milljarðar
verið afskrifaðir, en Íslandsbanki
hefur ekki enn skilað ársreikningi.
Meðal annars sem fram kemur
í ársreikningnum er að hagnaður
bankans á síðasta ári nam 16,9
milljörðum og arðsemi eiginfjárs
bankans eftir skatta á síðasta ári
var 8,8%.
Heildareignir Landsbankans um
síðustu áramót voru 1.135 milljarðar
króna og höfðu þá vaxið um 55
milljarða á árinu 2011. Íslenska
ríkið á rúmlega 80 prósenta hlut
í bankanum og hefur verðmæti
hlutarins aukist um 33 milljarða
umfram fjármagnskostnað. - þj
Ársreikningur samstæðu Landsbankans sýnir 16,9 milljarða króna hagnað á síðasta ári:
38 milljarðar afskrifaðir vegna gengisdóms
MILLJARÐA NIÐURFÆRSLA Lands-
bankinn færði eignir sínar niður um 38
milljarða vegna gengislánadóms Hæsta-
réttar í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
AKUREYRI Leikfélag Akureyrar
hefur leitað til Magnúsar
Geirs Þórðarsonar, leikhús-
stjóra Borgar-
leikhússins, í
viðleitni við að
sameina tíma-
bundið sam-
vinnu milli LA,
Borgarleik-
hússins og
Menningar-
félagsins Hofs.
Þetta kemur
fram í yfirlýs-
ingu frá Akureyrarstofu.
„Þannig gæti félagið ráðist
í umfangsmiklar sparnaðar-
aðgerðir þegar í stað sem felast
m.a. í því að nýta sam eiginlega
þann mannauð sem LA og
Menningar húsið Hof hafa yfir
að ráða og minnka þannig yfir-
byggingu LA tímabundið,“ segir í
tilkynningunni. - sv
LA mögulega sameinað öðru:
Leitað suður
eftir samstarfi
MAGNÚS GEIR
ÞÓRÐARSON
SVÍÞJÓÐ Gríðarlega erfiðar að-
stæður eru til leitar á því svæði
sem talið er að norsk herflugvél
hafi farist á fimmtudag.
Vélin hvarf af ratsjá yfir norður-
hluta Svíþjóðar en fimm manna
áhöfn var um borð í vélinni. Í
gærkvöldi bárust fréttir af því að
fundist hefði brak sem gæti verið
úr vélinni í fjallshlíðum en þó var
ekki hægt að fullyrða um hvort að
það væri úr vélinni.
Leitarsvæðið er afar erfitt yfir-
ferðar, en norsk fjallabjörgunar-
sveit hefur boðið fram aðstoð sína.
- þj
Herflugvél horfin af ratsjá:
Brak úr vélinni
kannski fundið
GENGIÐ 16.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,468
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,14 127,74
199,94 200,92
165,92 166,84
22,312 22,442
21,944 22,074
18,667 18,777
1,5176 1,5264
194,57 195,73
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VIÐSKIPTI Orkuveita Reykjavíkur
(OR) tapaði 556 milljónum króna
á árinu 2011 samanborið við 13,7
milljarða hagnað á árinu 2010. Við-
snúningurinn skýrist að stærstu
leyti af veikingu krónunnar á
árinu sem hefur hækkað virði
erlendra skulda fyrirtækisins.
Áætlanir stjórnar OR um tiltekt
í rekstri fyrirtækisins hafa hins
vegar staðist og gott betur en
rekstrarhagnaður fyrirtækisins
rúmlega tvöfaldaðist á milli ára.
Rekstrartekjur hækkuðu þannig
úr 27,9 milljörðum í 33,6 milljarða
á meðan rekstrarkostnaður
lækkaði úr 14,0 milljörðum í 12,4
milljarða.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í ársreikningi OR fyrir
árið 2011 sem birtur var í gær.
Sem fyrr ber að skoða rekstur OR
með hliðsjón af þungri skuldastöðu
fyrirtækisins en í mars á síðasta
ári var kynnt aðgerðaáætlun sem
miðar því að tryggja rekstrar-
grundvöll fyrirtækisins. Þar á
meðal samþykktu sveitarfélögin
sem eiga fyrirtækið að veita því
12 milljarða króna víkjandi lán.
Áætlun OR nefnist „Planið“ og
nær til ársins 2016. Í henni hefur
fyrirtækið sett sér markmið um
hagræðingu í rekstri á hverju
ári til og með 2016. Stefnir það
að því að ná fram sparnaði sem
nemur rétt rúmum 50 milljörðum
króna á tímabilinu umfram fyrri
áætlanir, meðal annars með sölu
eigna, frestun fjárfestinga og
hagræðingu í rekstri.
Mun fyrirtækið framvegis birta
skýrslu um hvernig miðar að ná
Rekstrarniðurstaða
OR batnaði til muna
Orkuveita Reykjavíkur birti í gær ársreikning fyrir 2011. Rekstrartekjur fyrir-
tækisins hækkuðu um 20% og rekstrarkostnaður lækkaði um rúm 11%. Gríðar háar
skuldir sliga enn fyrirtækið en sparnaðaráætlun stjórnar hefur staðist til þessa.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR OR tókst á árinu 2011 að ná markmiðum sínum um
verulega bætt sjóðflæði. Þungir gjalddagar bíða fyrirtækisins á næstu misserum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
settum markmiðum samhliða
birtingu ársfjórðungsuppgjöra.
Slík skýrsla var birt í annað sinn
í gær.
Kemur þar fram að markmið
OR um að bæta sjóðflæði fyrir-
tækisins um 11,5 milljarða á
árinu 2011 náðist en alls var það
bætt um 12,7 milljarða þrátt fyrir
óhagstæða þróun ytri breyta. Var
raunárangur í flestum tilfellum
talsvert betri en stefnt var að
en sérstaka athygli vekur þó að
rekstrarkostnaður var lækkaður
um tæpar 750 milljónir sem er
langt umfram markmið stjórnar
sem hljóðaði upp á 300 milljónir.
Í tengslum við lækkun rekstrar-
kostnaðar hefur starfsfólki verið
fækkað nokkuð hjá OR eða um
alls 68 á árinu. Þá hefur starfs-
mönnum fækkað um 154 frá því
þegar mest var árið 2008.
magnusl@frettabladid.is
Alls voru vaxtaberandi skuldir OR rétt rúmir 230 milljarðar í lok árs 2011
og höfðu hækkað um fimm milljarða milli ára. Eigið fé OR var til hliðsjónar
tæpir 62 milljarðar króna og hækkaði um tæpa 9 milljarða.
OR stendur frammi fyrir stórum gjalddögum á næstu árum en samanlagt
nema afborganir hátt í 100 milljörðum til og með árinu 2016. Þar af eru
14,3 milljarðar á gjalddaga á þessu ári og 29,3 milljarðar á því næsta.
Stórir gjalddagar lána á næstu árum
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
19°
20°
9°
16°
16°
8°
10°
22°
10°
18°
12°
18°
14°
12°
8°
11°
1
Á MORGUN
Vaxandi SA-átt, víða all-
hvasst annað kvöld.
MÁNUDAGUR
8-13 m/s.
-3
-3
-5
-5
-4
-3
-2
-8
0
0
5
5
6
6
8
6
5
6
7
8
4
-5
-4
-4
0
-2
3
5
5
5
2
FALLEGUR DAGUR
Við skulum njóta
veðursins í dag
og á morgun en
síðdegis á morgun
kemur lægð með
stífri suðaust-
anátt með úrkomu
um sunnan- og
vestanvert landið.
Snjókoma í fyrstu
og síðan slydda
eða rigning en það
hlýnar heldur til
mánudags.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli
íslenskra skipa í nýliðnum febrúar-
mánuði nam alls 312.221 tonni
sem er umtalsvert meira en í
febrúar í fyrra þar sem aflinn
var 210.005 tonn. Þetta kemur
fram á vef Hagstofu Íslands. Þessi
aukning felst að langmestu leyti í
tæplega 270.000 tonna loðnuafla
í febrúar samanborið við 173.000
tonn í febrúar 2011. Aflaverðmæti
á föstu verði var 28,7% meira í
síðasta mánuði en í febrúar 2011.
Það sem af er árinu hefur aflinn
aukist um 33,6% miðað við sama
tímabil 2011. - þj
Fiskafli í febrúarmánuði:
Aflaverðmæti
jókst um 28%
LOÐNA Stóraukinn loðnuveiði í febrúar
í ár hækkar heildaraflann um 100.000
tonn milli ára og verðmæti um 28%.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
ORKUMÁL Tryggt verður að eign-
arhald á mannvirkjum fyrir-
hugaðrar Hverahlíðarvirkjunar,
sem og rekstri þeirra, muni falla
til Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
eftir ákveðinn tíma ef samningar
nást um samstarf við lífeyris-
sjóði og Norðurál um byggingu
virkjunarinnar.
Þetta kom fram í tillögu sem
Haraldur Flosi Tryggvason
stjórnarformaður lagði fram á
stjórnarfundi í gær. Þar er líka
tekið fram að ekkert framsal
verði á eignarrétti á auðlindum.
Afgreiðslu tillögunnar var
frestað til næsta fundar.
- þj
Áætluð virkjun í Hverahlíð:
Mannvirkin
fari aftur til OR