Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 72
KYNNING − AUGLÝSINGFermingargjafir LAUGARDAGUR 17. MARS 20126
Snædís Logadóttir fermist í Háteigskirkju 15. apríl hjá séra Helgu
Soffíu Konráðsdóttur. Undirbúningur er á fullum krafti.
Snædís segir að fermingin sé fyrir hádegi og veislan klukk-
an tvö. „Hún verður í matsal Fjölbrautaskólans við Ármúla. Við
ætlum að bjóða um 130 manns en nokkrir eru búsettir erlend-
is svo það verða einhver afföll. Ég hef ekki ákveðið hvort ein-
hver skemmtiatriði verða en við ætlum að bjóða upp á létta rétti.
Mamma ætlar að gera kjúklingaspjót og frænka mín býr til sushi.
Það verða margir sem hjálpast að við að gera þessa veislu,“ segir
Snædís.
Foreldrar hennar eru Bryndís Valsdóttir og Logi Ólafsson. Þau
eru bæði knattspyrnufólk og svo er einnig með Snædísi. Hún spil-
ar fótbolta með Val og óskar sér helst ferðar í fótboltaskóla í Man-
chester á Englandi í fermingargjöf. „Við erum nokkrar vinkon-
ur sem langar að fara saman í þennan skóla. Þar fyrir utan lang-
ar mig í föt og skartgripi,“ segir Snædís sem er ekki búin að finna
fermingarkjólinn. „Mig langar í ljósbleikan kjól í millisídd. Síðan
fer ég í klippingu og hárgreiðslu.“
Snædís er í Réttarholtsskóla þannig að hún fermist ekki með
bekkjarsystkinum. Vinkonur hennar úr boltanum fermast hins
vegar í Háteigskirkju eins og hún. Snædís stundar auk þess fim-
leika svo það er nóg að gera. Með fimleikunum styrkir hún líkam-
ann en hún stefnir á að verða atvinnumaður í knattspyrnu. „Ég
er oftast miðja eða í vörn,“ segir Snædís sem er farin að hlakka til
stóra dagsins í apríl.
Langar í fótboltaskóla
á Englandi
Snædís Logadóttir spilar knattspyrnu með Val og ætlar að fermast í Háteigskirkju.
MYND/ANTON
Ég fermdist árið 2000. Kjóllinn var ekta ferm-ingarkjól l, skósíður
blúndukjóll með hlýrum og
svo var ég í gollu yfir axlirn-
ar. Allt hvítt og ég valdi fötin
sjálf í Centro, sem var aðal
tískubúðin á Akureyri,“ segir
Edda Hermannsdóttir, spyr-
ill í Gettu betur þegar hún er
spurð út í fermingarkjólinn.
„Svo man ég að ég klippti
mig rétt fyrir ferminguna. Ég
hafði lengi verið með mjög
sítt hár en vildi ekki vera eins
og allar hinar með slöngu-
lokka og klippti það því stutt.
Þetta var dramatísk og rót-
tæk aðgerð,“ segir hún og
hlær. Hún segir uppátækið
þó ekki hafi valdið miklum
usla og mamma hafi verið
sátt. „Já, já, það var ekk-
ert verið að leggja mikið
upp úr formlegum reglum
í kringum þetta. Ferming-
ardagurinn minn var mjög
skemmtilegur. Veislan var
haldin í Sveinbjarnargerði
en þar er mjög fallegt í kring, öll
fjölskyldan og vinir mættu og við
borðuðum saman langt fram eftir
kvöldi. Ég fékk rúm í fermingar-
gjöf frá mömmu og pabba og mig
minnir að við höfum allar vinkon-
urnar fengið rúm í fermingargjöf.“
Aðspurð hvort hún geti horft á
fermingarmyndirnar án þess að
fara hjá sér segir hún það lítið mál.
„Þær eru bara skemmtilega
halló, þetta hefði getað verið verra,
ef slöngulokkarnir hefðu
bæst við hvíta dressið.“
Edda á tvö börn, fjögurra
ára dóttur og eins árs dreng.
Það er því ekki alveg komið að
því að hún þurfi að ferma sjálf.
„Nei, ég hef enn þá tíma til að
undirbúa mig,“ segir hún hlæj-
andi. „Dóttir mín er reyndar strax
orðin svo ákveðin með kjólaval að
ég get farð að stressa mig fyrir það.
Ég á reyndar kjólinn minn enn þá,
hún kannski fær hann bara.“
Enga slöngulokka
Edda Hermannsdóttir spyrill í Gettu betur átti ljúfan fermingardag fyrir norðan og
getur kinnroðalaust flett í gegnum fermingarmyndaalbúmið tólf árum síðar.
Edda Hermannsdóttir spyrill í Gettu
betur klippti hárið stutt rétt fyrir
ferminguna. MYND/ANTON
„Ég fermdist árið 1997 í Árbæjar-
kirkju. Í fermingarfræðslunni var
haldið Biblíumaraþon í kirkjunni
þar sem Biblían var lesin í sólar-
hring. Ég las um miðja nótt og man
vel eftir svipnum á prestinum þegar
hann kom að mér að rappa Wu-Tang
texta í predikunarstólnum en ekki
að lesa guðspjöll,“ segir Ágúst Bent
Sigbertsson tónlistarmaður, þegar
hann er beðinn að rifja upp ferm-
inguna sína.
Þegar hann er spurður hvort
fermingardagurinn hafi verið
skemmtilegur segir hann: „Allt-
af gaman að halda partí. Veislan
var haldin heima og ég deildi henni
með jafngamalli stjúpsystur minni.
Ég fékk peninga frá mömmu og
græjur til að framkalla ljósmyndir
frá pabba,“ rifjar hann upp en segir
að því miður eigi hann ekki mikið eftir af fermingargjöfunum í dag.
„Nei, tíminn hefur læst klónum í þetta allt saman. Skömmin situr ein
eftir,“ segir hann og viðurkennir að hafa ekki spáð mikið í fermingar-
föt eða annað tengt fermingunni þar sem hann hafi ekki látið fermast af
heilum hug. „Þetta var náttúrulega allt bara „scam“ til að fá gjafir, þann-
ig að ég spáði lítið í lúkkið. Yndisleg móðir mín klæddi mig þó fallega.
„Slick“ jakkaföt og bindi, eins og sönnum svikahrappi
sæmir,“ segir hann og glottir. „Þegar menn selja æru
sína fyrir Numark-mixer þá skiptir litlu máli hvort
hárið er greitt aftur eða skipt í píku. Ég neitaði að
fara í fermingarmyndatöku en þegar ég sé myndir
úr veislunni þá sé ég eftir þessu. Ég vissi
alveg að Guð væri ekki til, en lék með,
því mig langaði svo í DJ-græjur.“
Sannur svikahrappur
Var klæddur í „slick“ jakkaföt og bindi,
„eins og sönnum svikahrappi sæmir“,
segir Bent um fermingarfötin.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Ágúst Bent Sigbertsson tónlistar-
maður rappaði Wu- Tang í predik-
unarstólnum.
„Þetta hefði getað verið verra, ef slöngulokk-arnir hefðu bæst við hvíta dressið,“ segir Edda. Hún fermdist árið 2000 og segist vel geta horft á fermingarmyndirnar án þess að fara hjá sér.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Ógleymanlegar
FERMINGARGJAFIR
GLITRANDI MINNINGAR
Gefðu fallega fermingargjöf sem geymir allar
hennar bestu minningarnar.
PANDORA SMÁRALIND · PANDORA.NET
Allar Pandora kúlur og viðhengi er hægt að
setja á armbönd og hálskeðjur.