Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 84
17. mars 2012 LAUGARDAGUR48
timamot@frettabladid.is
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
Ingólfs Ólafssonar
vélstjóra,
frá Grænumýri, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu, deild H-1.
Árný Valgerður Ingólfsdóttir Kolbeinn Guðmundsson
Sigríður Ingólfsdóttir
Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
María Sigríður
Hermannsdóttir
Smáratúni 20, Keflavík,
andaðist að kvöldi dags 10. mars á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Hlévangi í Keflavík. Útförin fer fram
frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 13.00.
Eydís B. Eyjólfsdóttir Hafsteinn Guðnason
Elínrós B. Eyjólfsdóttir Gunnlaugur Gunnlaugsson
Guðrún B. Eyjólfsdóttir
Þórarinn B. Eyjólfsson Ólöf Ásgeirsdóttir
Anna María Eyjólfsdóttir Ólafur Ingi Reynisson
Elsa Lilja Eyjólfsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Stefanía Björg
Björnsdóttir
frá Grófarseli í Jökulsárhlíð,
Víðivangi 5, Hafnarfirði,
lést þann 14. mars sl. á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Stefanía verður jarðsungin frá Garðakirkju
þriðjudaginn 20. mars kl. 13.00.
Agnes Svavarsdóttir
Björn Svavarsson Sigríður Kristjánsdóttir
Magnús B. Svavarsson Bryndís Aradóttir
Rakel Björg, Kristín og Magnhildur Birna
Kristján Ómar og Svava
Stefanía, Arna og Stefán Ómar
og langömmubörn.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og
langafi,
Sæmundur Þorsteinsson
Hamraborg 36, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
14. mars. Útförin auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls
okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Sigurðar Guðmundssonar
Dælengi 17, Selfossi.
Vinátta ykkar er okkur mikill styrkur.
Guðmundur Sigurðsson
Ingvi Rafn Sigurðsson Laufey Kjartansdóttir
Sesselja Sigurðardóttir Örn Grétarsson
Sigurður Þór Sigurðsson Kristín Gunnarsdóttir
Óðinn Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína Kristín
Jóhannesdóttir
frá Hraunhálsi,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 28. febrúar,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn
19. mars kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Anna Birna Ragnarsdóttir
Kristján G. Ragnarsson Anna María Antonsdóttir
Sveinbjörn Ó Ragnarsson M. Dögg Pledel Jónsdóttir
Jóhannes Eyberg Ragnarss. Guðlaug Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, kærleik og vináttu
við andlát og útför elsku mömmu
minnar og tengdamömmu,
Valdísar Guðrúnar
Þorkelsdóttur (Vallý)
Bollagörðum 57, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir yndislega umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún V. Haraldsdóttir Guðlaugur H. Jörundsson
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
„Ég varð hissa eins og alltaf þegar ég
dett svona í lukkupottinn. Á hinn bóg-
inn veit ég að þessi ákvörðun er tekin
af mikilli yfirvegun og það er kannski
það sem gerir þessa viðurkenningu að
svo miklum heiðri. Ætli það megi ekki
segja að þetta sé ánægjuleg staðfesting
á því sem ég hef gert,“ segir rithöfundur-
inn Einar Már Guðmundsson sem hlýt-
ur Norræn bókmenntaverðlaun sænsku
akademíunnar í ár fyrir framlag sitt til
bókmennta. Verðlaunin hafa verið veitt
árlega frá árinu 1986 og þykja einhver
mesti heiður sem norrænum rithöf-
undum getur hlotnast. Þau eru stund-
um nefnd „Litli Nóbelinn“, enda valin
af sömu akademíu og velur Nóbelsverð-
launin ár hvert.
Einar Már, sem veitir verðlaununum
viðtöku í Stokkhólmi þann 11. apríl næst-
komandi, hefur átt tryggan lesendahóp
á Norðurlöndunum nánast allan sinn
höfundaferil. „Ég lít alltaf á Ísland sem
heimavöllinn og svo er ég í stærra sam-
hengi Norðurlandabúi, Evrópubúi og
heimsborgari. En bækurnar mínar hafa
fengið góða útbreiðslu og mikla umfjöll-
un á Norðurlöndunum. Fyrsta ljóðabók-
in mín kom út hér á landi árið 1980 og
svo í Danmörku strax árið eftir,“ segir
Einar Már, en hann er þriðji Íslendingur-
inn sem hlýtur þessi virtu verðlaun. Thor
Vilhjálmsson hlaut þau árið 1992 og Guð-
bergur Bergsson árið 2004.
Einar Már telur líklegt að sænska aka-
demían hafi horft til þeirra mörgu sviða
ritlistarinnar sem hann hefur starfað á,
til að mynda skáldsagna, smásagna, ljóða
og kvikmyndahandrita. „Í síðustu tveim-
ur bókum, Hvítu bókinni og Bankastræti
núll, hef ég beitt skáldskapnum á þann
þjóðfélagsveruleika sem við okkur blasir.
Í raun er það svo að ég er alltaf að gera
eitthvað nýtt en líka alltaf það sama. Á
þessum rúmlega þrjátíu ára höfunda-
ferli hef ég verið að flytja lærdóm milli
bókmenntagreina. Það sem mér finnst
einna áhugaverðast við bókmenntasköp-
un í nútímanum er hversu mörkin milli
veruleika og skáldskapar eru ógreinileg.
Mér þykir dálítið frjótt að standa á þess-
um landamærum,“ segir Einar Már, sem
er með fleiri en eitt skáldverk í smíðum.
kjartan@frettabladid.is
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON: HLÝTUR NORRÆN BÓKMENNTAVERÐLAUN
ÁNÆGJULEG STAÐFESTING
VERÐLAUNAHAFI Einar Már segir mikinn heiður fólginn í því að hljóta hin norrænu bók-
menntaverðlaun sænsku akademíunnar. Staðfestingin á verðlaununum barst honum í pósti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALEXANDER MCQUEEN (1969-2010) tískufatahönnuður hefði orðið 43 ára í dag
„Ef þú spyrð hvaða konu sem er þá vilja þær vera hærri, grennri og þú veist,
vilja vera með mitti. Ég er ekki hér til að láta fólk líta út eins og kartöflupoka.“