Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 96
17. mars 2012 LAUGARDAGUR60
popp@frettabladid.is
? Ég rak augun í pistil þinn „Feikuð fullnæging“ frá 16.
desember 2010 og kannaðist við
kauða. Ég hef hitt hann oft, í mis-
munandi útgáfum, í mismunandi
svefnherbergjum. En jú, það
hefur aldrei feilað að nýr maður
segir við mig: „Já en, allar sem
ég hef verið með hingað til hafa
ekki átt í neinum erfið leikum
með þetta.“ Og þá bölva ég kyn-
systrum mínum fyrir að taka
þátt í þessari blekkingu og ýta
undir hana. Og ég hef reynt að
segja þessum blessuðu mönnum
að því miður sýni rannsóknir að
margar af þessum stelpum hafi
logið að þeim, og feikað það, því
meirihluti kvenna fær það ekki
bara hviss, búmm, bang. Ég á þó
einhverjar vinkonur sem eiga
agalega auðvelt með þetta og án
allrar „aðstoðar“ (fingra, tækja
o.þ.h.) og hef svo sem engar
ástæður til að rengja þær.
Ég hef að sjálfsögðu gúglað
efnið í spað og dottið niður á ein-
hver hlutföll um hitt og þetta, en
maður veit aldrei hvað er vísinda-
lega sannað. Þess vegna langaði
mig að spyrja þig í framhaldi af
þessum pistli frá því í desember
2010, hverjar eru niðurstöðurnar
sem liggja að baki þessu: „Sann-
leikurinn er að meirihluti kvenna
getur ekki fengið fullnægingu í
beinum samförum heldur þarf
aðra örvun. Margir kyn fræðingar
efast um tilvist fyrirbærisins leg-
gangafullnægingar og telja að
snípurinn sé eini staðurinn sem
geti framkallað fullnægingu.“
Hversu stór er þessi meirihluti?
Hvers vegna efast margir um til-
vist leggangafullnægingar?
SVAR Rannsóknir eru oft aðferða-
fræðilega ólíkar og það getur verið
erfitt að bera saman tölur en þær
rannsóknir sem ég vitna í segja
hlutfallið vera á bilinu 75% til 85%
kvenna sem geta ekki fengið full-
nægingu nema með örvun sníps.
Þekking okkar á snípnum er tak-
mörkuð en vitað er að hann teygir
anga sína inn í leggöng og niður
eftir börmum og því er örvunar-
svæði hans ekki bundið við hin
sýnilega hnapp þó þar virðist flesta
taugaenda að finna. Til að setja
það í samhengi við karlmenn þá
er snípur fósturfræðilega skyldur
kónginum á typpi. Sumar stellingar
í samförum geta örvað snípinn og
það leitt til fullnægingar. Full-
næging í leggöngum gæti því verið
óbein örvun á sníp þó þetta hafi
ekki verið rannsakað í þaula.
Einstaklingar eru ólíkir og eru
til konur sem geta hugsað sér til
líkamlegrar fullnægingar en fyrir
bróðurpart kvenna þá þarf beina
örvun sníps og það þarf ekki að
skammast sín fyrir það. Snípurinn
var hannaður sérstaklega fyrir
örvun og ánægju og því er gott að
leyfa honum að uppfylla tilætlað
hlutverk.
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Hvers vegna er efast um til-
vist leggangafullnægingar?
ÖRVUN Lesandi veltir fyrir sér hvers vegna margir efist um tilvist legganga-
fullnægingar. NORDICPHOTOS/GETTY
www.matarfikn.is
Esther Helga Guðmundsdóttir M.Sc. Síðumúli 6, 108 Rvk, sími 5683868
www.matarfikn.is
Meðferð vegna matarfíknar og átraskana!
Einstakt tækifæri til að vinna með reyndustu
meðferðaraðilum í heiminum í dag!
6 daga meðferðarnámskeið 23. - 28. mars 2012.
Meðferðaaðilar eru Phil Werdell MA, Mary Foushi BA, CENAPS
og Esther Helga Guðmundsdóttir MSc.
Staðsetning: Stokkalækur (við Hellu)
Dvalarmeðferðin er sniðin fyrir:
• Þá sem vilja stuðning til að byrja í fráhaldi
• Þá sem hafa áður verið í fráhaldi en hafa verið að ”hrasa“
• Þá sem eru í fráhaldi en vilja dýpka batann sinn
Nánari upplýsingar í síma 568 3868 eða á
matarfikn@matarfikn.is
www.matarfikn.is
Phil Werdell
MA
Mary Foushi
BA, CENAPS
NÝR KRIMMI EFTIR HÖFUND
KONUNNAR Í BÚRINU
Hver hremmir
bráðina?
„... grípandi, óhugnanleg
og atburðarásin hröð.“
Kristjana Guðbrandsdóttir / DV
„Vel skrifaður og spennandi
krimmi með óvæntri fléttu.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
ÞÝDD SKÁLDVERK 26.2.–10.3.12
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur
KÖNNUNARFAR TIL MARS Evrópska geimferðastofnunin [ESA]
hefur lagt áherslu á að sent verði könnunarfar til plánetunnar Mars árin 2016
og 2018. Óvissa var um verkefnið eftir að Bandaríkin hættu við að taka þátt í
verkefninu. Rússar hafa núna hlaupið í skarðið fyrir þá. lifsstill@frettabladid.is
60