Fréttablaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 2
17. mars 2012 LAUGARDAGUR2
HEILBRIGÐISMÁL Velferðarráðu-
neytið býður nú öllum konum
sem hafa fengið PIP-brjósta-
fyllingar síðan árið 1992 að koma
í ómskoðun. Ástæðan er sú að
frönsk yfirvöld gáfu út í vikunni
að ekki sé hægt að útiloka að PIP-
fyllingarnar sem framleiddar voru
fyrir árið 2001 séu gallaðar. Fram-
leiðsla á púðunum hófst árið 1992.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
velferðarráðuneytinu.
Ljóst er að sá fjöldi kvenna, sem
yfirvöld hafa gefið út að séu með
fyllingarnar, geti nú farið hækk-
andi, en upphaflega var konum
sem fengu púðana í sig á tíma-
bilinu 2001 til 2011 boðið að koma í
skoðun. Þær eru um 440 talsins. - sv
Nýjar upplýsingar um PIP:
Enn fleiri gætu
verið gallaðir
SPURNING DAGSINS
4.900 kr.
Verð 8.800 kr.
Afsláttur
3.900 kr. 44%
2.990 kr.
Verð 5.990 kr.
Afsláttur
3.000 kr. 50%
Fjögurra rétta vetrarveisla á aðeins 4.900 kr. Freyðivín,
humarsúpa, carpaccio, lamba-prime og súkkulaðikaka!
30x40 cm strigaprentun og blindrammi á 2.990 kr. (kostar
5.990 kr.). Persónuleg strigaprentun er gjöf sem gleður!
GILDIR Í
24 TÍMA
1 ÁRS AFMÆLISVIKA
VIÐ ENDURTÖKUM ÖLL VINSÆLUSTU TILBOÐIN
Jóhann, er golfíþróttin komin
út um víðan völl í Grímsnesi?
„Já, enda legg ég til að nafni sveitar-
félagsins verði breytt í Grímsness-
og Golfvallarhrepp.“
Jóhann Friðbjörnsson er formaður Golf-
klúbbsins Kiðjabergs sem kært hefur
Grímsness- og Grafningshrepp fyrir að
ætla að byggja nýjan golfvöll á Minni-Borg.
LÖGREGLUMÁL Lögregla telur
frumvarp Ögmundar Jónassonar
innan ríkisráðherra um forvirkar
rannsóknarheimildir ganga allt
of skammt og bæti litlu sem engu
við þær heimildir sem hún hefur
nú þegar. Yfirmenn hennar hafa
lýst þessu sjónarmiði í samtölum
við ráðherra og allsherjarnefnd
Alþingis, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
Frumvarpið var lagt fram í
vikunni og samkvæmt því bætist
við nýtt ákvæði í lög um með-
ferð sakamála sem kveður á um
að lögreglu sé heimilt að hefja
rannsókn ef grunur vaknar um
að menn ætli sér að fremja brot
sem varðar fjögurra ára fangelsi
og að brotið sé liður í skipulagðri
glæpastarfsemi.
Til þessa hefur einungis verið
heimilt að hefja rannsókn á broti
sem enn hefur ekki verið framið
að því gefnu að það varði við átta
ára fangelsisvist.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu, vill ekki
tjá sig um málið að svo stöddu.
„Við þurfum að skoða þetta frum-
varp og munum síðan væntanlega
gera allsherjarnefnd grein fyrir
okkar afstöðu til þess áður en
við látum eitthvað uppi formlega
á öðrum vettvangi. Við þurfum
að vega það og meta hvað, ef eitt-
hvað, er sett til viðbótar í okkar
vopnabúr með þessu ákvæði,“
segir Stefán.
„Miðað við það sem ég hef
heyrt um þetta frumvarp innan
úr okkar röðum er ljóst að það
gengur alls ekki nógu langt,“
segir Snorri Magnússon, for-
maður Landssambands lögreglu-
manna, en tekur þó fram að hann
hafi ekki kynnt sér efni þess
sjálfur.
„Það sem lögreglan hefur verið
að kalla eftir, og Landssamband
lögreglumanna styður heils hugar,
eru sams konar heimildir og lög-
regluliðið í löndunum í kringum
okkur hefur, aðallega á hinum
Norðurlöndunum,“ segir Snorri.
„Þær eru nokkuð víðtækari. Þar
þurfa málin ekki ekki að vera
komin á það stig að tiltekið brot
sé yfirvofandi. Þar getur lög-
regla, á fullkomlega löglegan
hátt, fylgst með ákveðnum hópum
í samfélaginu án þess að þeir séu
endilega að fara að fremja brot í
dag eða á morgun og safnað um
þá upplýsingum sem síðan geta
leitt til opinberra mála,“ útskýrir
hann.
Þetta sé hins vegar allt undir
ströngu eftirliti opinberra aðila
og þingnefnda. stigur@frettabladid.is
Lögreglan gagnrýnir
frumvarp Ögmundar
Frumvarp Ögmundar Jónassonar um forvirkar rannsóknarheimildir gengur allt
of skammt, að mati lögreglu. Formaður Landssambands lögreglumanna segir
að einungis sé kallað eftir sams konar heimildum og tíðkist í nágrannalöndum.
SKIPULÖGÐ GLÆPASAMTÖK Vítisenglar eru skilgreindir sem skipulögð glæpasamtök
og lögreglan hefur miklar áhyggjur af uppgangi þeirra hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STEFÁN
EIRÍKSSON
SNORRI
MAGNÚSSON
SVÍÞJÓÐ Jörgen Lindskog, foringi
vélhjólasamtakanna Outlaws í
bænum Ronneby í Suður-Svíþjóð,
fannst látinn fyrr í vikunni.
Augljóst var af verksum-
merkjum að um morð var að ræða
og telur lögregla flest benda til
þess að morðið tengist skipu-
lagðri glæpastarfsemi, annað
hvort átökum milli glæpagengja
eða innan Outlaws.
Lindskog, sem var 49 ára gamall
og fjögurra barna faðir, átti að
mæta fyrir rétt í Karlskrona á
þriðjudag, ákærður fyrir hótanir
og ofbeldisverk. Hann hefur áður
hlotið dóma en
þó ekki vegna
ofbeldismála.
Lindskog
m æt t i h i n s
ve g a r ek k i
f y r i r r é t t -
inn, en fannst
svo látinn sex
tímum síðar
undir bifreið á
þjóðvegi í skóg-
lendi skammt utan við Ronneby.
Tvö skotsár voru á hnakka hans,
en hann hafði verið látinn í nokk-
urn tíma þegar vegfarendur urðu
hans varir og hringdu á lögreglu.
Aftonbladet í Svíþjóð segir
í umfjöllun sinni um málið að
Lindskog hafi verið augljóslega
taugatrekktur af ein hverjum
ókunnum sökum. Heimildir
blaðsins herma að ummerki á
vettvangi hafi bent til þess að um
aftöku hafi verið að ræða.
Lögregla útilokar ekki að
morðið tengist illdeilum Outlaws
við annan klúbb, Red and White
Crew að nafni, sem er stuðnings-
klúbbur Hells Angels í Svíþjóð,
en einnig hafa verið átök innan
Outlaws upp á síðkastið. - þj
Mannskæð átök milli skipulagðra glæpahópa í Svíþjóð:
Sænskur glæpaforingi myrtur
JÖRGEN LINDSKOG
DÓMSMÁL Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnar formaður Kaupþings, lýsti yfir sakleysi
sínu í dómssal í gær við fyrirtöku í Al Thani-
málinu svokallaða. Hinir þrír sakborningarnir;
Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson
og Ólafur Ólafsson, sem allir eru í hópi stjórnenda
og eigenda Kaupþings, mættu ekki fyrir dóminn.
„Ég lýsi mig saklausan af þeim ávirðingum sem
á mig eru bornar,“ sagði Sigurður í kvöldfréttum
Stöðvar 2 í gær, þar sem hann yfirgaf réttarsal.
Sigurður er ákærður ásamt Hreiðari Má fyrir
umboðssvik og markaðsmisnotkun í tengslum við
meint sýndarviðskipti Mohamed Bin Khalifa Al
Thani, bróður emírsins frá Katar, á fimm pró-
senta hlut í Kaupþingi rétt fyrir hrun.
Málið var fyrst tekið fyrir hinn sjöunda þessa
mánaðar, en þá mætti enginn sakborninganna
fyrir dóminn og var málinu því frestað.
Brotin geta varðað allt að sex ára fangelsi
og allt að níu ára fangelsi verði þeir sakfelldir
og dómari ákveði að bæta við refsingu allt að
helming hennar, en heimild er fyrir slíku í
hegningar lögum.
Málinu verður fram haldið 29. mars næst-
komandi. Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að lög-
menn þremenninganna, sem ekki mættu í gær,
hygðust mæta þá. - þj
Fyrirtaka í málinu gegn Kaupþingsmönnum vegna Al Thani-kaupanna:
Sigurður sagðist vera saklaus
SVÍÞJÓÐ Stokkhólmsborg hefur
frá árinu 2005 kallað sig „The
Capital of Scandinavia“, það er
að segja höfuðborg Skandinavíu.
Þetta slagorð fór í taugarnar á
fulltrúum annarra höfuðborga
Norðurlanda á fjárfestinga- og
fasteignamessu 200 stærstu borga
Evrópu í Cannes á dögunum, að
því er greint er frá á vef Svenska
Dagbladet.
Norðmenn eru sagðir hafa
verið sérstaklega pirraðir. Einn
fulltrúa þeirra, Erling Fossen,
sagði þetta dæmigert sænskt
mikilmennskubrjálæði.
Svíar benda á að Stokkhólmur
sé stærsta borg Norðurlanda. - ibs
Slagorð veldur titringi:
Norðmenn eru
fúlir út í Svía
LÖGREGLUMÁL Karlmaður var
fluttur með sjúkrabíl á slysadeild
eftir fólskulega líkamsárás fyrir
utan veitingahús við Smiðjustíg
um klukkan eitt í fyrrinótt.
Maðurinn var með áverka í
andliti eftir að árásarmaðurinn
sló hann niður og kenndi eymsla
í kviðarholi en árásarmaðurinn
sparkaði ítrekað í hann liggjandi.
Þolandinn veit ekki hver
árásar maðurinn er og hafði sá
forðað sér áður en lögregla kom
á vettvang. Árásin virðist hafa
verið tilefnislaus, því hvorugur
átti eitthvað sökótt við hinn.
Líkamsárás á Smiðjustíg:
Sparkað ítrekað
í liggjandi mann
STOKKHÓLMUR Norðmenn eru ósáttir
við nafngiftina „Höfuðborg Skandinavíu“.
NEITAR SÖK Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður
Kaupþings, lýsti yfir sakleysi sínu þegar mál gegn honum og
þremur öðrum Kaupþingsmönnum var tekið fyrir í gær.
MYND/STÖÐ 2
NÁTTÚRUFAR Um miðjan þennan
mánuð náðist 250 tegunda markið
á pödduvef Náttúrufræðistofn-
unar. Vefnum var hleypt af stokk-
unum 14. ágúst 2009, en þá voru
kynntar til sögunnar 80 tegundir.
„Stefnan var sett á það í upphafi
að bæta tveim nýjum tegundum
á vefinn í viku hverri. Það hefur
gengið þokkalega eftir ef undan-
skilin eru hlé vegna sumarleyfa og
flutninga aðseturs Náttúrufræði-
stofnunar frá Reykjavík til Garða-
bæjar haustið 2010,“ segir á vef
Náttúrufræðistofnunar. - óká
Stöðug fjölgun á pödduvef:
Hafa náð 250
tegunda marki
RAUÐHUMLA Um rauðhumlur er fjallað
á pödduvefnum. Þær nefnast líka
ryðhumlur. MYND/ERLING ÓLAFSSON
LÖGREGLUMÁL Lagt var hald á sex
hundruð grömm af kannabis í
húsleit lögreglu á Selfossi á mið-
vikudag. Grunur lék á um ræktun
og gaf fíkniefnahundurinn Buster
vísbendingu um að í húsinu væru
fíkniefni. Húsráðandi, sem hand-
tekinn var á vinnustað sínum,
viðurkenndi að hafa stundað
ræktun síðustu mánuði. Hann
hafði verið í fjárhagskröggum og
ætlaði að selja efnin.
Lögregla áætlar að virði
efnanna nemi rúmum tveimur
milljónum króna. - óká
Handtekinn á vinnustað:
600 grömm af
kannabis tekin
Sig
dó