Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 24

Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 24
24. mars 2012 LAUGARDAGUR24 Svo er líka smá nekt í verkinu og tveir þýskir fjárhundar, en hundur- inn úr Galdrakarl- inum í Oz fékk ekki hlutverk. Okkur hefði þótt það of skrýtið að nasistafor- inginn væri með sama hund og Dóra. F yrsta skiptið sem ég kom fram opinberlega sem skemmtikraftur var í MH. Sjálfur var ég í MS en Óli frændi minn var í skemmtinefnd MH og hafði heyrt mig spila nokkur frum- samin, einlæg og dálítið bjánaleg lög í fjölskylduboði. Hann vildi fá mig og Sigurjón bróður minn til að skemmta í busavígslu skólans og við samþykkt- um það, en þegar við komum á stað- inn var ókyrrð og ólæti í salnum og hvorki staður né stund fyrir tónleika. Páll Óskar, sem var í kjól, kynnti okkur á svið sem frændur hans Óla. Það var verið að níðast á busunum, þetta var ömurlegt og enginn að hlusta, nema nokkrir á fremsta bekk sem púuðu á okkur. Þeirra á meðal var Benedikt Erlingsson,“ rifjar Halldór Gylfason upp sín fyrstu kynni af manninum sem leikstýrir honum þessa dagana í verk- inu Hótel Volkswagen eftir Jón Gnarr, sem verður frumsýnt í Borgarleikhús- inu í kvöld. Halldór tekur þó fram að hann erfi þetta atvik ekki við Bene- dikt, þótt vissulega hafi honum sárn- að á sínum tíma. Halldór, sem síðan hefur gert það gott sem meðlimur í hljómsveitinni Geirfuglunum, hefur raunar verið með annan fótinn í tónlist frá gagnfræða- skólaaldri og byrjaði snemma að semja lög. „Meðal þeirra fyrstu var lag sem ég samdi um Dallas-þættina þegar ég var nítján ára. Ég var svakalegur Dallas-nörd og er enn þeirrar skoð- unar að ekkert sjónvarpsefni komist með tærnar þar sem Ewing-fjölskyldan hefur hælana. Ég hef séð alla þættina, frá upphafi til enda, og í þeim er hrein og tær persónusköpun, oft og tíðum afbragðsgóður leikur og ef rýnt er í þá er um að ræða djúpt og flott stöff í lík- ingu við gríska harmleiki eða Shake- speare. Ég ræddi þættina í þaula við vini mína og fjölskyldu á sínum tíma og samdi þetta lag þar sem segir meðal annars: „JR á skjáinn, ég á ekki leng- ur neitt hobbí. Ég hræðist ei mann- inn með ljáinn og hugur minn bein- ist að Bobby“. Þegar eitthvað hefur svona djúpstæð áhrif á mann verður kveðskapurinn sannur,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið beðinn um að taka Dallas-lagið í partíi fyrir nokkrum árum og það hafi staðist tím- ans tönn. Leikur aðalsborinn aumingja Hótel Volkswagen er afrakstur starfs Jóns Gnarr sem hússkálds Borgar- leikhússins árið 2010, en verkið er að hluta byggt á samnefndu útvarpsleik- riti sem frumflutt var í útvarpsþátt- unum Heimsendi sem borgarstjórinn núverandi og Sigurjón Kjartansson sáu um á Rás 2 fyrir nærri tveimur áratugum. Hlustaðir þú á útvarpsleikritið á sínum tíma? „Já, ég man mjög vel eftir þáttunum þeirra Jóns og Sigurjóns á Rás 2 og fannst þeir rosalega skemmtilegir. Þá var ég í leiklistarskólanum og ég man að mér þótti grínið þeirra svo nýtt, ferskt og spennandi að mig dreymdi um að fá að spreyta mig á einhverju sem þeir félagarnir kæmu nálægt í framtíðinni. Ég leik Adrian Higgins, breskan séntilmann og aristókrat sem klæðist fínum fötum og borðar fínan mat, hreyfir sig lítið og vinnur ekk- ert. Í rauninni er hann aðalsborinn aumingi. Adrian er giftur Paul Jenk- ins, en hann er karlmaður sem þykist vera kona og allir samþykkja það og leiða hjá sér. Adrian og Paul eru sífellt að reyna að eignast barn, sem gengur illa. Það er hluti af sjálfsblekkingunni sem er allsráðandi á Hótel Volkswa- gen. Svenni, sá sem rekur hótelið, upplifir sig sem ægilegt gáfumenni og djúpþenkjandi gúrú en hefur alla sína grunnu þekkingu úr blaðafyrir- sögnum. Þetta er bilað fólk sem reynir að viðhalda ríkjandi ástandi. Sá eini sem engu lýgur og er heill í sínu er nasistaforinginn.“ Er þetta súrrealískt verk? Ádeila jafnvel? „Það er undiralda í verkinu. Það fjallar um sjálfsblekkinguna sem er alls staðar og gegnir því hlutverki að halda öllum góðum. Ég veit ekki hvort það er súrrealískt en það er skrýtið og ótrúlega sniðugt og fyndið. Það er tæpt á geðveiki, samkynhneigð, subbuskap og ýmsu fleira skemmti- legu. Svo er líka smá nekt í verkinu og tveir þýskir fjárhundar, en hund- urinn úr Galdrakarlinum í Oz fékk ekki hlutverk. Okkur hefði þótt það of skrýtið að nasistaforinginn væri með sama hund og Dóra.“ En hvar er Hótel Volkswagen? „Tja, hvar er Hálsaskógur? Hvar eru Kardemommubærinn og Hvergiland? Þetta er ævintýraland. Kannski vilja KÖTTARI Halldór Gylfason hefur um ævina meðal annars ætlað sér að verða íþróttamaður og tollvörður, en á að baki farsælan feril sem leikari og tónlistarmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG einhverjir meina að Hótel Volkswagen sé Ísland.“ Ætlaði að verða tollvörður Halldór, sem er fæddur árið 1970, útskrifaðist úr Leiklistarskólanum árið 1997 og hefur verið fastráðinn leik- ari í Borgarleikhúsinu frá 1998, auk þess að koma fram í fjölda sjónvarps- þátta og kvikmynda. Lengi framan af ævinni stefndi hann á frama í íþrótt- um, æfði meðal annars fótbolta, hand- bolta, hestaíþróttir og sund með ágæt- is árangri að eigin sögn, en hætti öllu slíku stússi um átján ára aldurinn. Hvernig breyttust áherslurnar? „Ég fékk bakteríuna og vildi komast á svið. Ég rétt komst inn í Leiklistar- skólann í annarri tilraun vegna þess að einn strákur, Selfyssingur um þrí- tugt, hætti við. Í millitíðinni vann ég á geðdeildum og velti fyrir mér að fara til útlanda að læra leiklist, en það var dýrt og ég var lélegur í ensku. Á tíma- bili var ég að hugsa um að gerast toll- vörður. Hugsaði með mér að það væri þægilegt djobb og gott að geta stungið á sig einni og einni bokku og skinkubréfi. En ef ég hefði gerst tollari hefði ég ekki verið svo heppinn að fá að takast á við öll þessi stórskemmtilegu verkefni sem ég hef unnið að.“ Árin í Borgarleikhúsinu eru orðin fjórtán talsins. Þú kannt vel við þig þar? „Já, alveg frábærlega. Ég hef verið mjög heppinn með verkefni, því þau hafa verið virkilega fjölbreytt. Ég er mikill liðsheildar-leikari. Mitt mark- mið er ávallt að búa til góða sýningu með góðum hópi, frekar en að moka undir einhvern einn sem er aðal, gerir allt og fær allt hrósið. Ég er meira fyrir hópvinnuna og gildir þá einu hvaða hlutverki ég gegni í þeim hópi. Þetta er bara eins og með þýska landsliðið í knattspyrnu. Þeir eru svo agaðir og massífir og þar er alvöru liðsheild á ferðinni. Þeir eiga kannski fáar stjörn- ur en eru samt ótrúlega góðir vegna þess að liðsheildin virkar. Það er upp- skriftin að góðum árangri. Berum Þjóðverjana svo saman við Englend- inga, þar sem allt snýst um eina eða tvær stjörnur og svo geta þeir aldrei neitt.“ Gerirðu þá ráð fyrir að fylgjast vel með EM í knattspyrnu í sumar? „Já, að sjálfsögðu og ég styð Þjóð- verja til góðra verka. Annars er ég ein- mitt að byrja að huga að sumrinu þessa dagana og geri ráð fyrir að veiða dálítið og fara með Höllu Skúladóttur konunni minni og börnunum Gylfa og Lovísu til útlanda. Til Spánar, jafnvel.“ Köttarar komnir með bumbur Talandi um fótbolta. Þú ert uppalinn í Þróttarahverfinu og harður stuðnings- maður liðsins. Fyrir um tíu til fimm- tán árum vöktu Köttarar, stuðnings- mannahópur félagsins, mikla athygli fyrir skemmtilega og fjöruga umgjörð um leiki liðsins þar sem þú varst áber- andi. Minna hefur borið á slíku hin síð- ari ár. Hvað veldur? „Þetta var rosalega skemmtilegt þarna í kringum 1997, en Köttararnir sem stóðu mest í þessu þá eru hreinlega orðnir gamlir og komnir með fjölskyld- ur og bumbur. Þá er erfiðara að rífa upp stemningu á fótboltavelli og manni finnst eiginlega að slíkt eigi að vera í höndum yngri manna. Það hefur ekki tekist nægilega vel að færa keflið niður á við, þótt stemningin í Þrótti hafi á köflum verið góð síðustu ár. Verkefnið var alltaf að Þróttarar væru ekki endi- lega bestir en að við værum flottastir og skemmtilegastir, og við þurfum að endurnýja þessa hugsun innan félags- ins. Sjálfur mæti ég enn þá á alla leiki sem ég get.“ Hverjar eru væntingarnar fyrir sum- arið í 1. deildinni? „Við erum með ungt og sprækt lið núna og ég held að félagið sé að fara skynsama leið með að reyna að halda í stráka sem eru uppaldir í liðinu. Fram- tíðin ætti því að bera björt, en það velt- ur mikið á því hvort hægt sé að gera þessum ungu og efnilegu strákum grein fyrir því að árangur liðsins sé í þeirra höndum, að þeir hafi möguleika á að búa sjálfir til eitthvað nýtt og stórt með því að halda hópnum saman í stað þess að tveir eða þrír hverfi alltaf á braut til annarra liða þar sem braut- in hefur verið rudd fyrir þá. Það er hrikalegt að sjá átján eða nítján ára efnilega stráka fara til stærri liða til þess eins að sitja á bekknum. Að sjá svona frægðarfangara fara til þess- ara siðblindu hákarla, KR, FH og Vals, sem nenna ekki sjálfir að ala upp góða yngri flokka heldur leggja alla áherslu á að borga einhverjum útbrunnum leik- mönnum svimandi upphæðir og sækja svo unga og efnilega stráka í önnur lið. Þessi félög láta aðra vinna skítverkin fyrir sig. Ég fyrirlít KR, FH og Val!“ Þjóðverjar eru til fyrirmyndar Halldór Gylfason fer með hlutverk breska séntilmannsins Adrian Higgins í Hótel Volkswagen, nýju verki eftir Jón Gnarr sem frum- sýnt er í Borgarleikhúsinu í kvöld. Hann sagði Kjartani Guðmunds- syni frá sjálfsblekkingu, skinkubréfum og sumarfrísplani.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.