Fréttablaðið - 24.03.2012, Síða 40
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
FÓLK|
er í félagi við systkini mín að ganga frá
bókhaldi hans og búslóð. Það þarf að
tæma íbúðina þessa helgi. Faðir minn
var nokkuð hress en hann var orðinn
þreyttur og ræddi það stundum að tími
væri kominn á sig,“ segir Sigtryggur og
bætir við að gleðin sé í nánd.
„Við bíðum spennt eftir því að Una,
dóttir mín, springi út eins og rós en
hún á von á sér 20. apríl. Mér finnst
afar spennandi að verða afi. Ég er mikill
barnakarl og hlakka til þótt ég reyni
að vera rólegur,“ segir Sigtryggur en
ekki er vitað hvers kyns barnið er. „Hið
ófædda barn hefur gengið undir nafninu
gurkemeje eða túrmerik. Ég man ekki
af hverju en það var örugglega einhver
góð ástæða fyrir því. Kona mín og dóttir
voru eitthvað að gantast með þetta í
upphafi meðgöngunnar.“
GÓÐ BLANDA
Sigtryggur lofar góðum þætti í kvöld en
meðhjálparar hans eru Bagga lútarnir
Bragi Valdimarsson og Guðmundur
Kristinn Jónsson. „Við reynum að henda
í góða blöndu í þáttunum. Þetta er sam-
eiginlegt áhugamál okkar félaganna.
Við gerum sjö þætti núna en þá verður
hlé. Síðan vinnum við aðra þáttaröð í
sumar.“
Þar fyrir utan er nóg að gera hjá Sig-
tryggi hjá Útón, Útflutningsskrifstofu
íslenskrar tónlistar. Ferðalög eru hluti
starfsins en hann þarf að fylgjast vel með
erlendum tónlistarhátíðum. „Starfið felst
meðal annars í því að skapa sambönd
fyrir íslenska tónlistarmenn í útlöndum.
Ég er til dæmis að fara til London á mjög
skemmtilegt norrænt tónleikakvöld sem
heitir Ja Ja Ja. Síðan fer ég með djass-tón-
listarmönnum á djasshátíð í Bremen í
Þýskalandi í apríl. Það er stærsta djasshá-
tíð í Evrópu og mjög spennandi,“ segir
þessi fyrrum Sykurmoli og Bogomil Font.
Sigtryggur játar því þegar hann er spurður
hvort honum líki vel starfið. „Já, þetta er
gríðarlega skemmtilegt starf.“ ■ elin
BRUGÐIÐ Á LEIK
Sigtryggur missti föður
sinn í febrúar og þessi
helgi fer í að ganga frá
dánar búinu. Hér bregður
hann hins vegar á leik
með Eyrúnu, dóttur
sinni.
MYND/HAG
HELGIN
■ MYNDLISTARMAÐURINN
Curver Thoroddsen stendur að
baki fjölskylduskemmtun í Ný-
listasafninu.
Líf og fjör Fjölskylduskemmt-
un hefst í Nýlistasafninu í dag
og stendur í sex vikur. Safnið
mun taka á sig mynd leiksvæðis
sem ætlað er börnum og fjöl-
skyldum. Alls kyns leiktæki og
þrautir verða á svæðinu ásamt
heljarinnar hoppukastala.
Næstu helgar sjá skátafélög
um sölu á kandíflossi, pylsum og
blöðrum en einnig verður boðið
upp á ýmiss konar skemmti-
atriði fyrir yngstu kynslóðina.
Leiksvæðið verður auk þess
opið þriðjudaga til föstudaga
og er leikskólum, börnum, for-
eldrum og hvers kyns vinahóp-
um boðið að nýta sér aðstöð-
una. Í dag mun Pollapönk stíga
á svið klukkan 16 og Skoppa og
Skrítla klukkan 17
auk þess sem
boðið verður
upp á andlits-
málun og fleira
skemmtilegt.
Fjölskyldu-
skemmtunin
er verk mynd-
listarmannsins
Curver Thorodd-
sen en viðburður-
inn er unninn í
samvinnu við Skáta-
land.is, Reykjavík-
urborg og KSÍ. Skemmtunin
stendur til 29. apríl. Aðgangur-
inn er ókeypis og kostar ekkert
í leiktækin.
SEX VIKNA
FJÖLSKYLDU-
SKEMMTUN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
FALLEGUR
SUMARJAKKI
M/HETTU
Skoðið sýnishorn á laxdal.is
Verð 27.900 kr.
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16,
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Mind Xtra
fyrir konur eins og þig
Leggings 1990 kr.
Bómullar-blúndubolir 1990 kr.
Full búð
af nýjum vörum og frábærum
tilboðum
OPNUNARTILBOÐ
Sunnudaga á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
alla sunnudaga
klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur