Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 70

Fréttablaðið - 24.03.2012, Page 70
KYNNING − AUGLÝSINGBrúðkaup LAUGARDAGUR 24. MARS 20128 BLETTIR Í DÚKUM Súkkulaðiklessur er best að láta þorna og skafa svo burt. Eftir á þarf svo að bleyta upp í blettinum og bera í hann uppþvottalög eða lífræna sápu. Dúkurinn er svo látinn í plastpoka, bundið fyrir og hann látinn bíða í nokkra klukkutíma. Þá er skolað úr blettinum og dúkurinn þveginn í vél á venjulegan máta. Rauðvínsbletti skal þurrka vel upp með klút eða pappír. Þá má strá vel af salti yfir blettinn en saltið dregur vökvann upp. Ef hvítvín er við höndina er hægt að hella því strax yfir og þurrka svo upp með svampi. Eins virkar vel á rauðvínsbletti að bera uppþvottalög á blettinn og setja í poka. Dúkurinn er síðan þveginn í vél eftir að þessi ráð hafa verið reynd. Sjá Leiðbeiningastöð heimilanna. Salt dregur upp vökvann sem helltist niður. LÖGIN Í BRÚÐKAUPINU Það getur verið höfuðverkur að velja réttu lögin fyrir brúðkaupið. Brúðurin velur yfirleitt lag handa brúðgumanum til að flytja í kirkjunni og svo öfugt. Einnig þarf að velja heppileg lög í veisluna en þá eru valin fjörug danslög. Íslensk lög með texta um ástina hafa verið vinsæl í brúðkaupum. Má þar nefna Ást við fyrstu sýn eftir Magnús Þór Sigmundsson og Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson. Þá hefur sálmurinn Amazing Grace verið afar vinsæll í íslenskum brúðkaupum. Samkvæmt könnun á erlendum brúðarvef hefur lagið Just A Kiss fengið góða dóma sem brúðarlag en flytjandi er Lady Antebellum. Á síðasta ári virðist lagið I Do með Colbie Caillat vera langvinsælast og fékk fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Næst á eftir því kom What Makes You Beautiful með One Direction, A Thousand Years með Christina Perri, Are You Gonna Kiss Me or Not með Thomson Square og I Can‘t Wait með Runner Runner. Sitt sýnist hverjum þegar kemur að lagavali í brúðkaupinu en auðvelt er að finna lagalista á netinu fyrir þá sem eru óákveðnir. GIFTA SIG Á ÖLLUM ALDRI Karlar á Íslandi eru flestir á aldrinum 30-34 ára þegar þeir kvænast. Á árinu 2010 voru þeir 387 samkvæmt vef Hagstofunnar. Algengasti giftingaraldur kvenna er hins vegar 25-29 ára. Á árinu 2010 giftu sig 426 konur á þeim aldri. Konur virðast almennt yngri þegar þær ganga í hjónaband heldur en karlar. Árið 2010 voru 173 konur á aldrinum 20-24 sem giftu sig á móti 74 körlum á sama aldri. Fólk gengur í hjónaband á öllum aldri. Á árinu 2010 gengu 30 konur í hjónaband sem komnar voru yfir sextugt á móti 66 körlum. Ellefu stúlkur á aldrinum 15-19 ára gengu í hjónaband árið 2010 á móti þremur piltum á þeim aldri. Hjónavígslur á þessu ári voru 1547, þar af 1201 í kirkju en 346 borgaralegar. DALSHRAUN 8RB RÚM 220 HAFNARFIRÐI SÍMI 555 0397WWW.RBRUM.IS Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum stærðum og gerðum, allt eftir þínum óskum. Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin. Við ráðleggjum fólki að hafa tvær dýnur í öllum hjónarúmum, tengja dýnurnar saman með rennilásum. Mismunandi stífleika er hægt að velja um allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr. Hafið samband við sölumenn okkar fyrir frekari upplýsingar. Alþjóðleg viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur í framleiðslu í rúmum og springdýnum. OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ 8 - 18 OG Á LAUGARDÖGUM FRÁ 10 - 14 ÍSLENSK HÖNNUN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.