Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.03.2012, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 24.03.2012, Qupperneq 84
24. mars 2012 LAUGARDAGUR48 48 menning@frettabladid.is SERENÖÐUR OG MANSÖNGVAR ÁGÚST ÓLAFSSON, BARÍTÓN ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ HÁDEGISTÓNLEIKAR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR NORÐURLJÓSUM, HÖRPU ÞRIÐJUDAGINN 27. MARS KL. 12.15 WWW.OPERA.IS TÆLINGARSÖNGVAR AÐGANGUR ÓKEYPIS HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfða 20 Reykjavík sími 585 7200 OPIÐ Virka daga 10-18 laugardaga 12-18 sunnudaga lokað 0% VEXTIR Húsgagnahöllin býður nú upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða BASTION Sófaborð B:70 L:130 H:50. Kr. 59.990 TIFFANY Svefnsófi B:98 L:145 H:80. Kr. 119.990 fullt verð 149.990. NÚNA 20% AFSLÁTTUR ÁSKAHÁTÍÐ BASTION Borðstofuborð B:90 L:180 H:75. Kr. 99.990 MERIT borðstofustóll 20% AFSLÁTTUR, fæst í gráu áklæði kr. 19.990 fullt verð 24.990. „Starfi hönnuðarins má lýsa þann- ig að hann fer í eldflaug til tungls- ins. Þegar þangað er komið fer hann að leika sér, fær alls konar brjálaðar hugmyndir og hug- myndaflugið fær lausan tauminn. Svo þarf hann að fara til baka til að framleiða, setja vöruna í sölu- ferli og finna út verðið á henni. En mig langaði til að stoppa hann á tunglinu.“ Svona lýsir Steinunn Sigurðar- dóttir fatahönnuður hugmyndinni að baki sýningunni Fingramál, sem nú stendur yfir í Hönnunar- safni Íslands, en þar er Steinunn sýningarstjóri. „Í valinu á hönnuð- um valdi ég þá sem höfðu unnið í prjóni eða vefnaði, hvort sem það voru listamenn, eins og Hrafn- hildur Arnardóttir, eða vöruhönn- uðir, eins og Volki. Ég vissi að þau myndu þekkja hvað þráðurinn gerir og hvað hann getur gert fyrir þá. Auk Hrafnhildar og Volka eiga Mundi, Bára Hólmgeirsdótt- ir, Bergþóra Guðnadóttir og Erna Einarsdóttir verk á sýningunni. Steinunn segir það mikið frelsi fyrir fatahönnuði að fá að sinna sköpun sinni án þess að þurfa að hugsa um að úr eigi að verða vara. „Það er mjög mikilvægt fyrir hönnuði að fá að vinna svona af og til því það setur hugsunina í allt annað form. Með þessu móti fáum við að sjá betur inn í hugmynda- heim hönnuðanna,“ segir hún. „Verkin sem þau sýna hafa leynst inni í skúmaskotum þeirra.“ Allir listamennirnur fengu lita- spjald til að vinna með, sem öll voru í ljósum litum. „Það sést best í ljósum litum hvernig garnið virk- ar, hvernig þræðirnir og saumarn- ir liggja og hvernig skuggarnir falla,“ útskýrir Steinunn. Hún er yfir sig hrifin af útkom- unni og segir alla listamennina hafa staðist ögrun hennar, sem sýningin hafi vissulega verið. Fingramál er framlag Hönnun- arsafnins á HönnunarMars 2012 og stendur til 20. maí næstkom- andi. holmfridur@frettabladid.is Numið staðar á tunglinu VERK BÁRU HÓLMGEIRSDÓTTUR „Hugar- heimur Báru er viðamikill og ljóðrænn og skemmtilegur að horfa á. Ég vil sjá meira eftir hana,“ segir Steinunn Sigurðardóttir um verk Báru Hólmgeirs- dóttur. TRÖLLKONA Erna Einarsdóttir ímyndaði sér einhvers konar tröllkonu eða veru sem var búin að vera lengi í náttúrunni og dregur hluti á eftir sér við sköpun síns verks. VERK BERGÞÓRU GUÐNADÓTTUR „Bergþóra sýnir hvað hún er ofsalega fíngerð í sinni hönnun og hugarheimi með þessu verki,“ segir Steinunn Sigurðardóttir um verk Bergþóru Guðnadóttur. LYKKJA FRÁ VOLKA „Lykkjan er upphafið að vinnu okkar með þráð, hvort sem það er ull, reipi eða stálvír. Lykkjan er jafnfjölbreytileg eins og efnin sem mynda hana,“ segir í lýsingu á verkinu. Þeir sem misstu af leiksýning- unni Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur geta bætt sér það upp í kvöld. Þá verður auka- sýning á verkinu sem frumsýnt var í janúar í fyrra. Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda og fékk hún tvær til- nefningar til Grímunnar á síð- asta ári. Vegna anna þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi. Verkið er ærsla- full, tragí- kómísk ráðgáta sem ger- ist í ein- angruðu bæjar- félagi sem á sér ógn- vænlegt leyndarmál. Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólík- um erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás. Með hlutverk kvennanna fara Aðalbjörg Árnadóttir og Marí- anna Clara Lúthersdóttir en leik- stjóri er Harpa Árnadóttir. Súldarsker sýnt í kvöld SÉRSTAKT VEFUPPBOÐ á keramik eftir Guðmund frá Miðdal hefst í dag á síðunni upp- bod.is og og stendur til 11. apríl 2012. Á þessu uppboði eru keramikmunir sem aldrei áður hafa sést á uppboði hjá Gallerí Fold eins og Maríuerlupar, Folald og Viti auk fjölmargra annarra muna. SÚLDARSKER Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir í hlut- verkum sínum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.