Fréttablaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 38
10 maí 2012
10
Á
ST
Æ
ÐU
R F
YR
IR Þ
VÍ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KAUPA ÁLFIN
N6 Dagana 24.-29. maí næstkomandi stendur Bíó Paradís að KVIKMYNDAHÁTÍÐ í samvinnu við SÁÁ.
Dagskráin verður nánar kynnt á vef samtakanna, www.saa.is, og hægt verður að nálgast miða á Midi.is.
Skemmd epli í Bíó Paradís
-kvikmyndahátíð í samvinnu við SÁÁ í Bíó Paradís 24.-29. maí 2012
Þema kvikmyndahátíðarinnar „Skemmd epli“ sem fram fer í Bíó Paradís dagana 24.-29. maí,
er fólk í barátttu við bresti sína á einn eða annan hátt. Sýndar verða fjórar nýjar og nýlegar
kvikmyndir sem vakið hafa mikla athygli á undanförnum misserum. Þrjár koma frá Norður-
löndunum en opnunarmyndin og sú allra nýjasta, kemur frá Bretlandi.
Opnunarmynd hátíðarinnar:
TYRANNOSAUR
Bretland, 2011.
Leikstjóri:
Paddy Considine.
Aðalhlutverk:
Peter Mullan, Olivia Colman.
Þessi magnaða og afar áhrifamikla mynd segir af ekklinum Jósefsem er atvinnulaus og þjakaður af of-
beldishneigð og reiði sem er að leggja líf
hans í rúst. Hann þráir ekkert heitar en að
breyta lífi sínu en sér ekki hvernig. Jósef
kynnist Hönnu sem starfar í búð sem rek-
in er á vegum hjálparsamtaka í hverfinu.
Með þeim takast góð kynni og Jósef byrjar
að eygja von um að geta breytt lífi sínu
til betri vegar. Hanna virðist heilbrigð og
kærleiksrík kona sem iðkar trú sína og vill
öllum vel en hún býr yfir þrúgandi leynd-
armáli sem gæti orðið til að draga Jósef
aftur til fyrri hátta.
Tyrannosaur er fyrsta mynd hins
kunna breska leikara Paddy Considine
(Last Resort, 24hr Party People, In Amer-
ica) og hefur hlotið hátt á þriðja tug verð-
launa víða um heim, þar á meðal á Sund-
ance hátíðinni, BAFTA verðlaununum, og
British Independent Film Awards. Með
aðalhlutverkin fara Peter Mullan og Olivia
Colman, sem bæði hafa verið marglofuð
og verðlaunuð fyrir frammistöðu sína í
myndinni.
Frumsýning á Íslandi:
APPLAUSE
Danmörk, 2009.
Leikstjóri:
Martin Pieter Zandvlieta.
Aðalhlutverk:
Paprika Steen, Michael Falch.
Ósköpin öll hafa gengið á í lífi hinnar virtu leikkonu Thea Barfoed, meðal annars skiln-
aður og forræðismissir yfir börnunum.
Thea þráir að segja skilið við fortíðina,
ná tökum í lífi sínu og fá drengina sína til
sín aftur. Hún notar persónutöfra sína og
útsmogna kænsku til að sannfæra fyrr-
verandi mann sinn um að hún sé tilbúin
að takast á við móðurhlutverkið, en því
miður hefur hún ekki náð að sannfæra
sjálfa sig. Djöflarnir innra herja fast á
Theu sem glímir bæði við krefjandi starf
og fortíðardrauga. Bæði hún og fjöl-
skylda hennar vita sem er að hún er
prímadonna sem kann betur að standa á
sviðinu og láta ljós sitt skína en glíma við
hversdagslega tilveru.
Hin frábæra leikkona Paprikka Steen
fer með aðalhlutverkið í þessari ágengu
og margverðlaunuðu mynd. Í myndinni
eru meðal annars notaðir bútar úr upp-
setningu á leikritinu Who‘s Afraid of Virg-
inia Woolf sem Steen lék aðalhlutverkið í
fyrir fáeinum árum við geysigóðar undir-
tektir.
Leikstjóri Festen:
SUBMARINO
Danmörk, 2010.
Leikstjóri:
Tomas Vinterberg.
Aðalhlutverk:
Jakob Cedergren, Peter Plaugborg.
Submarinoer saga tveggja aðskildradrengja, sem bera merki dapurlegr-ar æsku. Þeir voru aðskildir á unga
aldri þegar sorglegur atburður sundraði
fjölskyldunni. Þegar myndin gerist er líf
Nick gegnsýrt af áfengisneyslu og ofbeldi,
en bróðir hans er einstæður faðir sem
reynist erfitt að veita syni sínum betra líf
af því að hann er fíkill. Leiðir þeirra skar-
ast og það kemur til óumflýjanlegs upp-
gjörs.
Í Submarino snýr Thomas Vinterberg
aftur til þeirrar einföldu kvikmyndagerð-
ar sem einkenndi fyrstu verk hans eins
og Veisluna (Festen) sem hann varð fræg-
ur fyrir. Leikstjórinn var heillaður af því
sterka raunsæi sem kemur fram í skáld-
sögu Jonas T. Bengtsson um sektarkennd
foreldra og sökkti sér í reynsluheim aðal-
persónanna tveggja, Nick (Jakob Ceder-
gren) sem er félagslega einangraður, og
bróður hans (Peter Plaugborg), sem er
fíkniefnaneytandi og faðir lítils drengs
sem heitir Martin.
Submarinohlaut Kvikmyndaverð-
laun Norðurlandaráðs 2010 og auk þess
fjölda verðlauna á kvikmyndaverðlaunum
Dönsku kvikmyndaakademíunnar (Ro-
bert Awards) sem og verðlaun danskra
gagnrýnenda (Bodil Awards). Hún var
sýnd í Bíó Paradís haustið 2010 við afar
fínar undirtektir.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs:
SVINALÅNGORNA
Svíþjóð, 2010.
Leikstjóri:
Pernilla August.
Aðalhlutverk:
Noomi Rapace, Ola Rapace.
Morgun einn rétt fyrir jól færLeena (34) símtal frá sjúkra-húsi í bænum sem hún ólst upp
í. Henni er sagt að móðir hennar sé að
deyja. Fréttirnar verða til þess að unga
konan fer til að hitta móður sína í fyrsta
sinn frá því hún varð fullorðin. Leena
hefur barist til að losna við sorgina vegna
glataðrar, myrkrar æsku sinnar. Hún
neyðist nú til að takast á við fortíðina til
að halda lífinu áfram.
Svínastían er fyrsta myndin sem
sænska verðlaunaleikkonan Pernilla Aug-
ust leikstýrir. Myndin er byggð á metsölu-
bókinni „Svinalängorna“ eftir Susanna
Alakoski. Myndin var heimsfrumsýnd á
gagnrýnendaviku í Feneyjum 2010 þar
sem hún hlaut Audience-Critics Week
verðlaunin og UNESCO-Hope verðlaunin.
Myndin hefur síðan hlotið mörg önnur eft-
irsótt verðlaun eins og NDR Best Feature
Film í Lübeck and þrenn Guldbagge verð-
laun fyrir bestu leikstjórn, bestu leikkonu
í aukahlutverki (Outi Mäenpää frá Finn-
landi) og bestu klippingu (Åsa Mossberg).
Um 650.000 manns sáu myndina í Skand-
ínavíu (nær 400.000 í Svíþjóð) og var hún
ein metsölumynda Nordisk Film í Skand-
ínavíu eftir Millenium-þríleikinn. Myndin
hlaut jafnframt Kvikmyndaverðlaun Norð-
urlandaráðs 2011 og var sýnd í Bíó Paradís
það haust við gríðarlegar vinsældir.