Fréttablaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 30
Álfurinn byggði upp
unglinga deildina
02 maí 2012
í blaðinu...
6
13
10
FJÖLSKYLDULÆGNI
Það eru 42,78% líkur á að sonur
foreldris sem farið hefur á Vog
lendi sjálfur í sjúklingahópnum en
hjá dætrum eru líkurnar 22,08%.
DAGLEIÐIN LANGA
Í byrjun júní verður Þjóðleikhúsið
með styrktarsýningar á
Dagleiðinni löngu. Allur ágóðinn
rennur til samtakanna.
SKEMMD EPLI
SÁÁ og Bíó paradís standa fyrir
kvikmyndahátíð í maí og sýna
verðlaumyndir sem allar eiga
það sameiginlegt að tengjast
sjúkdóminum.
SÁÁ SAFNAR FYRIR STARFSEMI BARNA OG FJÖLSKYLDUDEILDAR:
n á Álfinum tileinkuð starfsemi barna- og fjölskyldudeildarÍ ár er sala
ármunir sem safnast munu verða notið til að byggja upp úrSÁÁ. Þeir fj -
styrkja fjölskyldur sem eru í vanda vegna áfengis- og vímuræði til að -
efna.
ttu voru birtar niðurstöður rannsókna á ættartengslum sjúkFyrir stu -
öfðu lagst inn á Vog frá upphafi. Rannsóknin sýndi gríðarlegalinga sem h
fjölskyldulægni áfengis- og vímuefnasýki. Það er því eðlilegt að SÁÁ að-
lagi starfsemi sína að þessum niðurstöðum. Uppbygging barna- og fjöl-
skyldudeildar er mikilsvert skref í þá átt.
Það hefur lengi verið vitað að áfengis- og vímuefnasýki leikur sumar
ættir einkar illa. Það hefur líka lengi verið vitað að því fylgir mikið álag
að alast upp í alkóhólískri fjölskyldu og það hefur mikil og langvarandi
áhrif á heilsu barnanna. Þá hefur það líka lengi verið ljóst að þegar einn
fjölskyldumeðlimur verður áfengis- eða vímuefnasjúkur þá dregur það
niður lífsgæði annarra í fjölskyldunni og hefur áhrif á heilsu þeirra. Nýjar
rannsóknir hafa síðan staðfest þessi áhrif áfengis- og vímuefnasýki á fjöl-
skyldur.
Það er hlutverk barna- og fjölskyldudeildar að móta úrræði til að
styrkja fjölskyldur sem hafa laskast vegna áfengis- og vímuefnaneyslu —
og ekki síst börnin, sem eiga ekki að þjást vegna veikinda foreldra sinna.
Það er trú SÁÁ að starf barna- og fjölskyldudeildar eigi eftir að verða
ein af meginstoðum þjónustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúkinga í
framtíðinni.
SÁÁ óskar eftir stuðningi almennings við þetta verkefni. Hingað til
hefur sala á Álfinum staðið undir uppbyggingu fjölskyldu-, unglinga- og
barnameðferðar SÁÁ. Það er von okkar að þessi stuðningur haldi áfram
og samtökunum takist með honum að efla enn frekar þjónustu sína við
börn og fjölskyldur í vanda.
GUNNAR SMÁRI EGILSSON SKRIFAR
LEIÐARI
ÚTGEFANDI:
SÁÁ - Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík.
Sími: 530 7600
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Gunnar Smári Egilsson.
RITSTJÓRI:
Mikael Torfason.
LJÓSMYNDARAR:
Gunnar Gunnarsson.
DREIFING:
Fréttablaðið.
Álfurinn er mikilsverðasti þátturinn
í fjáröflun SÁÁ. Frá því að sala á hon-
um hófst árið 1990 hafa hreinar tekjur
samtakanna vegna hans verið um 430
milljónir króna. Þessir fjármunir hafa
staðið til dæmis undir uppbyggingu
unglingadeildarinnar að Vogi, starf-
semi fjölskyldumeðferðarinnar og
gert SÁÁ fært að þróa úrræði fyrir börn
alkóhólista, ungmenni og fjölskyldur.
SÁÁ rekur spítalann Vog, með-
ferðina á Vík og Staðarfelli og göngu-
deildarþjónustu í Efstaleiti og á Akur-
eyri með þjónustusamningum við
Sjúkratryggingar Íslands. Þessir samn-
ingar standa þó aðeins undir hluta af
rekstrinum. Mismunurinn er greiddur
af tekjum samtakanna frá Íslandsspili,
félagsgjöldum og öðrum fjáröflunum
— og þar er
álfasalan
mikilvæg-
ust.
Bygging ung-
mennadeildar
Án álfasölunnar hefði
SÁÁ ekki getað mót-
að starfsemi sína að
breyttum þörfum sjúk-
lingahópsins. Samningarnir við ríkið
miðast í raun við stöðuna eins og hún
var fyrir einum eða tveimur áratug-
um. Eigin tekjur samtakanna eru því
lykillinn að því að SÁÁ hefur tekist að
byggja upp fjölþætta og góða meðferð
fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Þetta sést glöggt þegar litið er yfir
söguna. Í fyrstu var boð-
ið upp á aðeins eina
tegund með-
ferðar. Þeg-
ar í ljós kom
að hún dugði
ekki öllum var
bætt við meðferð
fyrir endurkomu-
fólk, svokölluð vík-
ingameðferð. Frá því
að álfasalan hófst 1990 hefur verið
stofnað til sérstakrar kvennameðferð-
ar og um síðustu aldamót var byggð
ungmennadeild við Vog og sérstök
unglingameðferð mótuð. Það hefði
ekki verið mögulegt nema vegna góðs
stuðnings almennings í gegnum álfa-
söluna.
Uppbygging barna-
og fjölskyldudeildar
Að undanförnu hefur komið í ljós að
félagsleg staða ungs fólks sem kemur
úr meðferð hjá SÁÁ er mun lakari en
var á fyrr á árum. Til að mæta þessu
þarf stórátak. Þá hefur líka komið í ljós
í nýlegum rannsóknum SÁÁ hversu
mikil fjölskyldulægni er í áfengis- og
vímuefnasýki. Þetta kallar á breytt
vinnubrögð og mun meiri áherslu á
starf með fjölskyldum og stuðningi við
unga foreldra.
Þetta verða meginverkefni Álfsins
á næstunni; að byggja upp sérstaka
barna- og fjölskyldudeild sem styðja
mun við endurreisn fjölskyldna sem
eru í vanda vegna áfengis- og vímu-
efnasýki.
ÁLFASALA SÁÁ; mikilsverðasta fjáröflunin síðan 1990:
EILD Í VON
Meginverkefniálfsins er nú að byggja upp sérstaka
barna- og fjölskyldudeild sem styðja mun við endurreisn
fjölskyldna sem eru í vanda vegna áfengis- og vímuefnasýki.
MYND: GUNNAR GUNNARSSON