Fréttablaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 8
9. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR8
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
I
C
E
5
84
52
0
2/
12
Í tilefni af 75 ára afmæli okkar efnir Icelandair, í samstarfi við Steinunni Sigurðardóttur
fatahönnuð, til sýningar í haust. Til sýnis verða gamlir og nýir einkennisbúningar
Flugfélags Íslands, Loftleiða, Flugleiða og Icelandair og ýmsir aðrir hlutir sem tengjast
sögu farþegaflugs og þjónustunni um borð allt frá árinu 1937.
Átt þú ekki eitthvað áhugavert frá fluginu?
Við vildum svo gjarnan fá lánaðar gamlar flugfreyjudragtir, flugmannsjakka
og sitthvað annað sem setti svip á flugið hér áður fyrr.
Við leitum til ykkar sem fluguð með okkur
Við tökum á móti klæðnaði og smáhlutum sem tengjast fluginu á Icelandair
Hótel Reykjavík Marina á föstudaginn kemur, 11. maí, kl. 17:00–19:00.
Okkur þætti afar vænt um að fá að sjá þig á föstudaginn og rifja upp gamla góða tíma.
Upplýsingar:
Rannveig Eir Einarsdóttir I rae@icelandair.is
Anna Margrét Jónsdóttir I annamj@icelandair.is
VIÐ FLJÚGUM AFTUR Í TÍMANN
Viltu lána okkur minningabrot?
AKUREYRI Denver í Colorado í
Bandaríkjunum og Akureyri verða
formlegir vinabæir í náinni fram-
tíð. Borgarstjóri Denver, Michael
B. Hancock, kemur til Akureyrar
í dag ásamt sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi, Luis E. Arreaga, og
fólki úr ferðaþjónustunni í Denver.
Borgarstjórinn undirritar í dag
viljayfirlýsingu í Menningarhúsinu
Hofi um að komið verði á formlegu
vinabæjarsambandi á milli Den-
ver og Akureyrar með áherslu á
samvinnu á sviði menningarmála,
menntunar og viðskipta. - sv
Akureyri fær heimsókn í dag:
Denver verður
nýr vinabær
1. Hvað eiga mörg félög eftir að
skila ársreikningi vegna ársins 2010?
2. Hvert var farið með forsætis-
ráðherra Kína í staðinn fyrir að
skoða Kerið?
3. Hvað ætlar Reykjavíkurborg að
eyða miklu í nýja og umhverfis-
vænni bíla?
SVÖR
DÓMSMÁL Tveir menn hafa verið
ákærðir fyrir að hafa í sameiningu
valdið árekstri þriggja ökutækja
í Þingeyjarsveit í ágúst í fyrra.
Annar er hálfáttræður maður sem
höfuðkúpubrotnaði í slysinu.
Sýslumaðurinn á Akureyri ákær-
ir rútubílstjóra um sextugt í málinu
fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og
umferðarlagabrot, en samkvæmt
ákærunni tók hann fram úr hæg-
fara traktor án þess að gæta að því
að fyrir aftan rútuna var annar
bíll sem hafði þegar hafið fram-
úrakstur. Rútan rakst utan í þann
bíl, beygði snögglega aftur til baka
og ók á eftirvagn dráttarvélarinnar,
sem kastaðist út af veginum.
Dráttarvélinni ók sá sem einn-
ig er ákærður, maður fæddur árið
1937. Hann höfuðkúpubrotnaði í
veltunni, hlaut smávægilegar innan-
kúpublæðingar, loft inn undir höf-
uðkúpu, tvö brotin rifbein og stórt,
blæðandi sár á höfuðið.
Hann er ákærður fyrir umferð-
arlagabrot, enda var traktorinn
óskráður og ótryggður, eftirvagninn
ljóslaus og auk þess ók hann á tutt-
ugu kílómetra hraða, sem sýslumað-
ur telur hafa tafið umferð að óþörfu
og valdið hættu. - sh
Rútubílstjóri og ökumaður dráttarvélar ákærðir fyrir að valda árekstri:
Ók traktor á tuttugu og olli slysi
TRAKTOR Óskráði og ótryggði traktorinn
valt út af veginum. Myndin er úr safni.
ÚKRAÍNA Júlía Timosjenkó, fyrr-
verandi forsætisráðherra Úkraínu,
er hætt í hungurverkfalli. Í dag
verður hún flutt úr fangelsi á
sjúkrahús, þar
sem hlúð verður
að henni.
Hungur-
verkfallið stóð
í þrjár vikur.
Hún greip til
þess til að mót-
mæla ofbeldi,
sem hún segist
hafa orðið fyrir
í fangelsinu.
Þar afplánar hún sjö ára dóm,
sem hún hlaut í haust fyrir að hafa
árið 2009 misnotað völd í embætti
sínu þegar hún gerði samning við
Rússland um gaskaup. Hún segir
ákærurnar og dóminn af póli-
tískum rótum runnin. - gb
Timosjenkó á sjúkrahús:
Segist hætt við
hungurverkfall
JÚLÍA TIMOSJENKÓ
1. Á fjórða þúsund, eða 3.541. 2. Til Hvera-
gerðis. 3. Þrjú hundruð milljónum króna.
ATVINNUMÁL Jurgen Thumann,
forseti Businesseurope – sam-
taka atvinnulífsins í Evrópu,
beindi þeirri ósk til José Manuel
Barroso, forseta framkvæmda-
stjórnar ESB, á ársfundi sam-
takanna í síðustu viku að mennta-
kerfið í Evrópu verði styrkt
þannig að það þjóni betur þörf-
um atvinnulífsins.
Fram kom í máli hans að verði
það ekki gert sé lítil von til þess
að efnahagslífið taki við sér og
atvinnuleysi minnki.
Þrátt fyrir að 25,5 milljónir
manna séu án atvinnu í Evrópu
hefur ekki tekist að manna fjögur
milljón störf, vegna þess að fólk
skortir hæfni eða menntun til að
sinna viðkomandi störfum. - shá
25,5 milljónir eru án atvinnu í Evrópulöndum:
Telja að styrkja þurfi
menntakerfi Evrópu
VILJA VINNU Atvinnuleysi 25 ára og yngri
á Spáni er vel yfir 40%. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Sveinn Arason ríkis-
endurskoðandi segir það ámælis-
vert að flokkar sem eigi fulltrúa á
Alþingi skuli ekki skila ársreikn-
ingum sínum á réttum tíma. Þetta
kemur fram í formála hans að árs-
skýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir
árið 2011.
„Ítrekað kemur fyrir að flokkar
og frambjóðendur skila ekki upp-
lýsingum til stofnunarinnar innan
settra tímafresta. Til dæmis höfðu
fjórir flokkar ekki skilað reikning-
um sínum vegna ársins 2010 fyrir
1. október 2011. Ég tel ámælisvert
að flokkar sem eiga fulltrúa á
Alþingi skuli ekki virða þau tíma-
mörk sem þingið hefur sjálft sett
þeim með lögum,“ segir í formál-
anum.
Samfylkingin, Sjálfstæðisflokk-
urinn, Framsóknarflokkurinn og
Besti flokkurinn skiluðu ársreikn-
ingum sínum fyrir árið 2010 eftir
að frestur til þess rann út. Að auki
skiluðu Samtök fullveldissinna og
Íslandshreyfingin sínum ársreikn-
ingum of seint.
Ríkisendurskoðun á samkvæmt
lögum að hafa eftirlit með fjármál-
um stjórnmálasamtaka og fram-
bjóðenda. Lögin skylda stjórn-
málasamtök til þess að skila inn
ársreikningi fyrir allar einingar
sem falla undir þau.Ríkisendur-
skoðun birtir svo útdrátt úr reikn-
ingunum.
Sveinn gerir innkaupamál ríkis-
ins einnig að umtalsefni í formál-
anum. Innkaupamál embættis rík-
islögreglustjóra komust í fréttir í
fyrra eftir að Ríkisendurskoðun
gerði athugasemdir við innkaup
á búnaði og tækjum. Í formálan-
um áréttar Sveinn að Ríkisendur-
skoðun sé samkvæmt lögum falið
að kanna hvort stofnanir og fyr-
irtæki ríkisins fari að lögum, og
vekja athygli á því ef svo sé ekki.
Hann segir stofnunina leitast við
að rækja þetta hlutverk sitt af
metnaði. „Yfirleitt hafa stofnanir
tekið vel í ábendingar Ríkisendur-
skoðunar um innkaupamál en þó
eru undantekningar á því.“
thorunn@frettabladid.is
Ámælisvert
að skila seint
Ríkisendurskoðandi segir það ámælisvert að stjórn-
málaflokkar virði ekki tímamörk sem Alþingi hefur
sett um skil á ársreikningum. Fjórir flokkar skiluðu
reikningum sínum ekki á réttum tíma í fyrra.
„Á liðnum árum hefur Ríkisendurskoðun ítrekað lagt til að lög um fjárreiður
ríkisins verði endurskoðuð. Í kjölfar skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
frá síðasta hausti ákvað fjármálaráðherra að hefja formlega endurskoðun
laganna,“ segir Sveinn í formála ársskýrslu Ríkisendurskoðunar. Tólf manna
stýrinefnd vinnur nú að frumvarpi um fjárreiður ríkisins sem stefnt er að því
að lagt verði fyrir Alþingi í haust, að sögn Sveins.
Frumvarp um fjárreiður ríkisins á leiðinni
ALÞINGI Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn skiluðu árs-
reikningum sínum eftir að fresturinn rann út. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?