Fréttablaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 37
09maí 2012
en þeir geti ráðið því hvernig foreldra
þeir eru í dag. Allir alkóhólistar verð
að vinna úr sektarkenndinni en hún
hjálpi ekki.
Heiðarleiki er langbestur
„Gagnvart barninu er heiðarleiki lang,
langbestur. Það er mikilvægt að tala
um áfengi og útskýra fyrir börnun-
um hvernig áfengið hafi verið vanda-
málið,“ segir Magga Pála. Hún mælir
með því að fást við einn dag í einu eft-
ir meðferðina og einhenda sér strax í
batavinnu. Tólf spora vinnan sé hald-
reipið til að feta sig út í daginn en það
taki tíma að fá börn og aðra í fjölskyld-
unni til að treysta drykkjumanninum
að nýju. Það gerist ekki á einum degi.
„Við skulum vera viðbúin því að
fyrstu mánuðina séu tortryggnisaugu á
okkur en þetta snýst um að vinna bata-
vinnuna sína, vera í lagi einn dag í einu
og sættast við fortíðina. Við getum ekki
breytt hvernig við vorum, bara hvern-
ig við erum. Með því ráða hvernig við
erum aukum við líkurnar á því að við
getum ráðið því hvernig við verðum,“
segir hún.
Fundurinn er meðalið
Magga Pála bendir á að tengsl foreldra
og barns séu með þeim hætti að betra
sé að fara saman gegnum erfiðleikana
sem koma í batanum en að láta börnin
frá sér. „Foreldrarnir verða alltaf marg-
falt betri fyrir barnið fyrstu mánuðina
í bata en þeir voru síðustu mánuðina
í neyslu. Hafi barnið ekki verið tekið
meðan á neyslunni stóð þá fer maður
í gegnum bataferlið með barninu,“ seg-
ir hún og mælir með því að ræða opin-
skátt við börnin og segja þeim frá sjúk-
dómnum í skýrum orðum.
„Það er ekkert að því að segja við
barnið: Ég var veik og ég verð veik ef
ég drekk vín. Sumir verða ekki veikir
af víni en mjög margir eru eins og ég.
Ég þarf að fara á fundinn minn með
öllum hinum sem þola ekki vín því að
fundurinn er meðalið mitt. Núna ætla
ég alltaf að vera frísk fyrir þig en ég var
veik og ég þarf að fara á fundinn minn
til að minna mig á að drekka ekki,“ segir
Magga Pála.
Sannleikurinn gefur frelsi
Barnabörnin hennar vita að hún ætl-
ar ekki framar að drekka vín og áfengi.
„Það síast inn með allri þeirra þekkingu
á lífi mínu. Ef barnið skilur mælt mál
þá á maður að tala við það. Börn skilja
og skynja miklu meira en við höldum.
Þeim mun opnari og hreinskilnari sem
við erum og tölum við börn á máli sem
þau skilja þeim mun betur gengur þeim
að vinna úr málunum. Ég trúi hvorki á
leyndarmál né lokaðar dyr,“ segir hún.
„Það er sannleikurinn sem gerir okkur
öll frjáls. Ung börn eiga líka rétt á sann-
leikanum og því frelsi sem hann gefur.“
Íslendingar eru að mati Möggu Pálu
margir hverjir hræsnarar sem upphefja
drykkju, bæði samkvæmisdrykkju og
létta drykkju, reglubundna helgar- og
kvölddrykkju og göfga hana með fal-
legum ímyndum. Svo skilji þeir ekkert í
þeim sem drekki sig á botninn eða fari
í harðari efni. Þetta byrji allt með fyrsta
glasinu.
„Þegar ég segi hræsnarar þá meina
ég að við samþykkjum að neyslan sé rétt
og góð og göfug en fordæmum og för-
um gegn afleiðingum hennar hjá þeim
sem fara illa út úr neyslunni. Af hverju
spyrjum við ekki sjálf okkur af hverju
við þurfum að ölva okkur einu sinni í
mánuði, vikulega eða daglega til að fara
í gegnum lífið? Af hverju teljum við okk-
ur þurfa á því að halda? Ég bíð eftir þeim
degi að þessar spurningar vakni á sama
hátt og núna spyrjum við hvað sé að, af
hverju menn komist ekki í gegnum lífið
án þess að reykja. Af hverju spyrjum við
ekki hvað er að ef helgin er ekki góð, ef
ekki eru kippur af bjór í ísskápnum eða
ekki er farið út að djamma með vinun-
um. Það er samþykkt að það megi ölva
sig að ákveðnu marki og þá er það gott
og göfugt en það má ekki vera of mikið.“
ræðan loftar út
hliðin á misrétti kynjanna á sér birt-
rmynd í áfengisvandanum því að
ur sem heild ná hápunkti í drykkju
na en karlar. Magga Pála segir að
ar séu oft í samfélagsmálum á und-
onum í þróun og hér sé það raun-
onur séu komnar þangað sem karl-
r voru áður en framtíðin sé án efa
ni neysla. Vonandi eru margir karl-
únir að sjá ljósið og það kemur að
ð neysla kvenna muni minnka líka,
síðar.
essu til viðbótar er hið þekkta mis-
smál þeirra sem eiga undir högg
ækja. „Allir hópar sem búa á ein-
hvern hátt við minni rétt í samfélaginu
er hættara við ofneyslu af einhverju tagi.
Ég er ekki að leggja svertingja í Harlem
að jöfnu við íslenskar konur í dag en of-
neysla er þekkt einkenni þar sem þjóð-
félagshópur hefur lakari sjálfsmynd og
misrétti er fyrir hendi. Mælingar sýna
að stúlkur og konur hafa veikari sjálfs-
mynd og þá er hætta við að áfengis-
vandinn verði viðvarandi hjá konum,“
segir Magga Pála sem hvetur til þess að
ræða málin opinskátt til að skilja það
hvað er í gangi og drepa alla drauga.
„Opinská umræða opnar dyrnar og
loftar út. Hún gengur frá öllum draug-
um dauðum og það er SÁÁ að gera í
sínu starfi fyrir utan það að hjálpa fólki
beint og vera tilbúið þegar einhver réttir
upp höndina,“ segir hún.
Ómetanlegt starf hefur verið unnið
gegn áfengisvandanum en Magga Pála
vill sjá meiri vitundarvakningu og við-
urkenningu á því að vart sé til sú fjöl-
skylda á Íslandi sem tengist ekki of-
neysluvandanum á einhvern hátt, þar
sem einhver fjölskyldumeðlimur eigi
við alkóhólisma eða neysluvandamál
að stríða. Vesturlandabúar eru stöðugt
í ofneyslu, hvort sem það er á áfengi,
mat, fjármagni eða gæðum jarðar. Og
svo koma afleiðingarnar og „þá lyfta
margir grettistaki og gera stórkostlega
hluti en við þurfum hugarfarsbreytingu
til að fara lengra.“
Um
Ein
inga
kon
sein
karl
an k
in. K
arni
min
ar b
því a
bara
Þ
rétti
að s
Gleði sálarinnar
að vera allsgáð
r
i
MARGRÉT PÁLA ÓLAFSDÓTTIR, eða
Magga Pála eins og við þekkjum hana flest,
hefur nýlega haldið upp á afmæli. Hún hefur
verið allsgáð í 11 ár. „Það er hamingjan, gleði
sálarinnar,“ segir hún fagnandi um það að vera
edrú í viðtali sem Guðrún Helga Sigurðardóttir
tók fyrir okkur á SÁÁ blaðinu.
MARGRÉT PÁLA
ÓLAFSDÓTTIR, STOFNANDI
HJALLASTEFNUNNAR
„Það er sannleikurinn sem gerir okkur
öll frjáls. Ung börn eiga líka rétt á
sannleikanum og frelsi,“ segir hún.
MAGGA PÁLA MEÐ DÓTTUR
SINNI OG BARNABÖRNUM
Brynja dóttir Möggu Pálu og
barnabörnin í aldursröðMóey Pála,
Agnar Ingi og Lilja Björk.
MYND GU: NNAR GUNNARSSON