Fréttablaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 58
9. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
verður jarðsungin frá Neskirkju
fimmtudaginn 10. maí kl. 13.00.
Birna S. Karlsdóttir
Sigurður Karlsson Guðrún Erla Gunnarsdóttir
Ingibjörg M. Karlsdóttir Sigurður Örn Kristjánsson
Anna Mjöll Karlsdóttir
Kristinn Karlsson Dagný Þórólfsdóttir
Brynjar Karlsson Cristina Gonzalez Serrano
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
LAUFEY BJARKADÓTTIR
Hafrafellstungu,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 6. maí sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Karl Sigurður Björnsson
Hulda Hörn Karlsdóttir Stefán Leifur Rögnvaldsson
Ingiríður Ásta Karlsdóttir Robert Duane Boulter
Birna María Karlsdóttir Einar Sigurjónsson
Bjarki Fannar Karlsson Eyrún Ösp Skúladóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
ÓLAFÍU KRISTÍNAR
ÞORSTEINSDÓTTUR
Stínu frá Firði.
Jens V. Óskarsson Bára Ágústsdóttir
Einar Óskarsson Ása Sigurlaug Halldórsdóttir
Þorsteinn Óskarsson Hrönn Ágústsdóttir
Þórður J. Óskarsson Guðrún Aðalsteinsdóttir
Bergljót Ó. Óskarsdóttir Sveinn Arason
Brynjólfur Óskarsson Lydía Fannberg Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓLAFÍU AUÐAR ÓLAFSDÓTTUR
Sóltúni 2, áður Hvassaleiti 58.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild B6
Landspítalanum í Fossvogi og starfsfólk
Sóltúns fyrir alúð og kærleiksríka umönnun.
Bryndís Ólafsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir Gylfi Árnason
Axel Ólafsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs sonar míns, eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ÁGÚSTS G. BERG
arkitekts.
Björg Baldvinsdóttir
Signý Guðmundsdóttir
Guðrún Björg Ágústsdóttir
Ágúst Ómar Ágústsson
Guðmundur R. Ágústsson
Ármann Pétur Ágústsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sambýlismaður, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR EINARSSON
Blikaási 40, Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut þriðjudaginn 1. maí. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Við fjölskyldan viljum koma á framfæri
innilegu þakklæti til starfsfólks krabbameinsdeildar 11-E og
göngudeildar 11-B.
Aðalheiður Árnadóttir
Einar Þórðarson
Rósa Þórðardóttir Elfar Helgason
Þórður Þórðarson Anna Sigrún Hreinsdóttir
Jórunn Þórðardóttir Þórarinn M. Eldjárnsson
Hafdís Þórðardóttir Trausti Magnússon
Gunnar Þórðarson Dagbjört M. Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, amma,
langamma og systir,
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR
Kvígindisfelli, Tálknafirði,
sem lést 27. apríl á gjörgæslu Landspítalans
í Fossvogi, verður jarðsett frá Tálkna fjarðar-
kirkju laugardaginn 12. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Magnús Guðmundsson
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur dýrmæta samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför okkar elskulega
sonar og bróður,
KNÚTS TRAUSTA HJÁLMARSSONAR
Ragnheiður Bjarney Hannesdóttir
Auðunn Þorsteinsson
Hjálmar Trausti Kristjánsson Eygló Huld Jòhannesdòttir
Ása Berglind Hjálmarsdóttir Hermundur Guðsteinsson
Smári Ragnar Hjálmarsson
Teymi um málefni innflytjenda stend-
ur fyrir morgunverðarfundi í dag þar
sem rætt er um hvort íslenska sé lykill-
inn að íslensku samfélagi eins og iðu-
lega er haldið fram.
„Við sem stöndum að fundinum
eigum öll í miklum samskiptum við
innflytjendur. Við höfum rekið okkur
á að það dugar oft ekki fyrir fólk að ná
tökum á íslensku til þess að verða virk-
ir þátttakendur í samfélaginu.
Þegar náðst hefur vald á íslensku
virðast nefnilega aðrar hindranir taka
við. Sem dæmi má nefna að vel mennt-
að fólk sem talar íslensku á oft í erfið-
leikum með að fá vinnu við hæfi. Það
sýnir okkur að það þarf meira til þess
að ganga inn í íslenskt samfélag en
íslenskukunnáttu,“ segir Fríða Bjarney
Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Reykja-
víkurborg.
Fríða segir þarft og sjálfsagt að allir
líti í eigin barm þegar kemur að því að
skoða aðlögun innflytjenda að íslensku
samfélagi. „Maður heyrir af fólki sem
hefur unnið á sama vinnustað svo árum
skiptir, en er aldrei í samskiptum við
vinnufélagana. Það lærir auðvitað eng-
inn tungumál í tómarúmi og aðlagast
ekki samfélaginu nema með þátttöku
Íslendinga.
Við getum öll gert betur, verið með-
vitaðri um nágranna okkar og foreldra
skólafélaga barnanna og þar fram eftir
götunum,“ segir Fríða sem hvetur
einnig fjölmiðla til þess að kalla inn-
flytjendur að borðinu í samfélagsum-
ræðum. „Það á alltaf við – ekki bara á
sparidögum.“
Fundurinn hefst klukkan 8.30,
aðgangseyrir er 2.100 kr. og er morg-
unverður innifalinn.
sigridur@frettabladid.is
TEYMI UM MÁLEFNI INNFLYTJENDA: RÆÐIR ÞÁTTTÖKU ÞEIRRA Í SAMFÉLAGINU
Íslenska opnar ekki allar
dyr að íslensku samfélagi
FRÍÐA BJARNEY Segir að margt megi gera betur er kemur að aðlögun innflytjenda að íslensku
samfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nokkrir framsögumenn verða á fundinum sem hefst klukkan 8.30 á Grand Hóteli.
Gerður Gestsdóttir, talsmaður Teymis um málefni innflytjenda, setur fundinn og er
jafnframt fundarstjóri. Ari Klængur Jónsson, starfsmaður Fjölmenningarseturs, flytur
erindi sem hann kallar „Er tungumálið lykillinn?“.
Anna Katarzyna Wozniczka segir frá niðurstöðum rannsóknar meðal pólskumæl-
andi grunnskólanemenda í erindi sem hún kallar „Að tala eða ekki tala, er það
spurningin?“ og Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfisstjóri Breiðholts, fjallar um sam-
félagslega þátttöku í erindi sem hann nefnir „Að vera hluti af samfélagi“.
Þá deila þau Michalina Joanna Konstancja Skiba, Juan Camilo Roman Estrada og
Cinzia Fjóla Fiorini reynslu sinni af því að tilheyra íslensku samfélagi og fjalla um efni
fundarins frá sínum bæjardyrum. Fundinum lýkur með samræðu frummælenda og
fundargesta.
AÐ TALA EÐA EKKI TALA?
BILLY JOEL TÓNLISTARMAÐUR er 63 ára í dag.
„Ég man ekki eftir því að hafa hitt nokkra manneskju um
dagana sem ekki hefur gaman af einhverri tegund tónlistar.“
63
Rithöfundasamband Íslands var stofnað árið 1974.
Áður höfðu tvö rithöfundafélög starfað hér á landi
um árabil en fyrstu samtök íslenskra rithöfunda voru
stofnuð 1928 sem deild innan Bandalags íslenskra
listamanna.
Rithöfundasambandið varð til úr tveimur rithöfunda-
félögum; Rithöfundafélagi Íslands og Félagi íslenskra
rithöfunda. Félag íslenskra rithöfunda var klofnings-
félag, stofnað 1945 vegna ágreinings innan Rithöf-
undafélagsins og félögin tvö skiptust lengi vel eftir
pólitískum átakalínum. Við stofnun sambandsins tók það við
aðild félaganna að Bandalagi íslenskra listamanna.
Árið 1974 var Rithöfundafélagið var lagt niður. Félag
íslenskra rithöfunda var þó ekki lagt niður og hélt áfram
einhverri starfsemi þótt það kæmi ekki lengur fram
sem stéttarfélag og félagar þess væru einnig félagar í
sambandinu. 1982 lá við nýjum klofningi þegar félagar
í FÍR lýstu því yfir að þeir teldu fram hjá sér gengið við
úthlutanir Launasjóðs rithöfunda.
Sambandið hefur frá 1997 haft aðsetur í Gunnarshúsi,
Dyngjuvegi 8, í Reykjavík. Núverandi formaður þess er
Kristín Steinsdóttir.
ÞETTA GERÐIST: 9. MAÍ 1974
Rithöfundasamband Íslands stofnað
Merkisatburðir
1593 Í bréfi til hirðstjóra frá konungi var ákvæði þess efnis að
innsigli Íslands skyldi vera hausaður óflattur þorskur með
konungskórónu.
1625 Danir hófu þátttöku í Þrjátíu ára stríðinu þegar Kristján 4.
réðist með her inn í Þýskaland.
1768 Rannveig Egilsdóttir lauk ljósmóðurprófi á Staðarfelli í
Dölum. Hún var fyrsta menntaða ljósmóðirin á Íslandi.
1855 Prentfrelsi var leitt í lög á Íslandi með tilskipun konungs.
1877 Rúmenía fékk sjálfstæði frá Tyrkjaveldi.
1886 Barnastúkan Æskan var stofnuð í Reykjavík.
1958 Kvikmyndin Vertigo eftir Alfred Hitchcock var frumsýnd.
1964 Verkamannasamband Íslands var stofnað