Fréttablaðið - 09.05.2012, Blaðsíða 66
9. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Frammistaða Ingólfs Þór-
arinssonar, miðjumanns Selfyss-
inga, gegn ÍBV vakti verðskuld-
aða athygli. Hann var maðurinn á
bak við frábæran 2-1 sigur Selfyss-
inga sem nær allir spá neðsta sæti
í Pepsi-deildinni í sumar.
„Það sem hefur breyst hjá mér
er líkamlega ástandið og forgangs-
röðunin. Tónlistin situr aðeins á
hakanum núna á meðan fótbolt-
inn er í forgangi,“ sagði Ingólfur
en hann er landsþekktur tónlistar-
maður og stanslaus spilamennska
síðustu sumur hefur ekki hjálpað
honum mikið við að taka framför-
um sem knattspyrnumaður.
„Svo er ég líka með þjálfara
núna sem hefur trú á mér og setur
traust á mig. Hugarfar mitt hefur
breyst og ég fórna meiru en áður.
Fótboltinn hefur
verið til hliðar við
spileríið áður og ég
bara mætt á einstaka
æfingu kannski. Ég
hef líka lyft mikið og
styrkt mig. Ég er lít-
ill og léttur og þarf
að vera sterkari til
þess að keppa við
þá bestu. Við höfum
svolítið verið í því að
horfa á lóðin en núna
fórum við að lyfta
þeim almennilega.“
Ingólfur er orð-
inn 25 ára gamall og
hann viðurkennir að vera fyrst
núna að taka fótboltann af fullri
alvöru.
„Nú er ég farinn að hafna
kannski fjórum til fimm „gigg-
um“ á mánuði. Tónlistin hefur
tekið sinn toll hér áður og orðið til
þess að ég hafði ekki orku í annað.
Nú geri ég þetta af krafti og spila
ekki tónlist langt fram á nótt,“
sagði Ingólfur en hann er þar með
að gefa frá sér talsverðar tekjur
ólíkt flestum öðrum í deildinni.
„Ég er eiginlega að borga hell-
ing með mér til þess að vera í fót-
bolta. Mér finnst aftur á móti mjög
gaman í fótbolta
og það er gaman
að taka þátt í því
á meðan maður er
ungur og getur gert
það. Ég get spilað
meira á gítarinn
seinna. Ég get spilað
á sveitaballi þegar
ég er orðinn fertug-
ur en ólíklegt að ég
geti spilað í Pepsi-
deildinni á sama
aldri,“ sagði Ingólf-
ur en er þessi leik-
ur hans bara einn
smellur?
„Ég ætla rétt að vona ekki. Ég
tel mig alveg geta bætt í.“
Selfyssingar njóta þess að það
er engin pressa á þeim í deild-
inni þar sem allir spá þeim niður.
Ingólfur segir að það henti liðinu
ágætlega.
„Fyrir vikið getum við mætt
afslappaðir í leiki og selt okkur
dýrt. Það er einnig gott fyrir mig
að margir líta bara á mig sem ein-
hvern tónlistarmann og sprell-
ara,“ sagði Ingólfur en ef hann
heldur áfram að spila eins og hann
gerði gegn ÍBV er ekki langt í að
andstæðingarnir fari að taka hann
mjög alvarlega.
„Við erum svolítið óskrifað blað.
Við erum líklega með reynslu-
minnsta liðið í deildinni og það er
því eðlilegt að okkur sé spáð sæti
neðarlega. Við teljum okkur samt
vera töluvert sterkari en 2010. Það
er samkeppni um stöður núna en
það var ekki þannig fyrir tveimur
árum.“
henry@frettabladid.is
VALSKONUR geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð með sigri í fjórða leiknum á móti Fram í úrslita-
einvígi N1-deildar kvenna en hann fer fram í Safamýrinni klukkan 19.30 í kvöld. Fram vann fyrsta leikinn en Valur hefur
svarað með tveimur sigrum í röð. Framkonur eru í úrslitaeinvíginu fjórða árið í röð en eiga enn eftir að vinna heimaleik í
lokaúrslitum. Einu tveir sigrar Framliðsins í úrslitaeinvígunum 2009-2012 hafa komið í Vodafonehöllinni.
Ég get spilað á
sveitaballi þegar ég
er fertugur en það
er ólíklegt að ég geti
spilað í Pepsi-deild-
inni á sama aldri.
INGÓLFUR ÞÓRARINSSON
LEIKMAÐUR SELFOSS
Fótboltinn er kominn í forgang
Ingólfur Þórarinsson er leikmaður 1. umferðar Pepsi-deildar karla hjá Fréttablaðinu. Ingólfur, eða Ingó
Veðurguð eins og margir þekkja hann, er búinn að setja fótboltann í fyrsta sæti en tónlistina í annað.
Hann gefur frá sér mörg atvinnutækifæri og segist borga helling með sér til þess að spila fótbolta.
KOM Á ÓVART Ingólfur hefur ekki verið mjög hátt skrifaður sem fótboltamaður en
blómstraði í leiknum gegn ÍBV þar sem hann var aðalstjarna vallarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Lið umferðarinnar
4-3-3
Sindri Snær Jensson Valur
Ólafur Örn Bjarnason Grindavík
Kári Ársælsson ÍA
Atli Sveinn Þórarinsson Valur
David Elebert Fylkir
Daníel Laxdal Stjarnan
Ingólfur Þórarinsson Selfoss
Atli Jóhannsson Stjarnan
Jón Vilhelm Ákason ÍA
Atli Guðnason FH
Gary Martin ÍA
FÓTBOLTI Valsmenn urðu fyrir
miklu áfalli í upphafi leiksins gegn
Fram á mánudag þegar prímus
mótor liðsins, Haukur Páll Sig-
urðsson, meiddist.
Eins og sönnum harðjaxli sæmir
harkaði hann af sér, kom inn á
völlinn en varð að yfirgefa hann
um tíu mínútum síðar vegna sárs-
auka.
„Ég er svona skítsæmilegur. Ég
er helaumur og hef verið betri,“
sagði Haukur Páll við Fréttablaðið
í gær en Valsmenn náðu að vinna
leikinn án hans.
Miðjumaðurinn meiddist á
mjöðm en rannsóknir í gær leiddu
í ljós að ekkert er brotið eða álíka.
Hann ætti því ekki að vera of lengi
frá.
„Að öllum líkindum er þetta
bara mar sem kom af högginu.
Það er í það minnsta jákvætt að
það virðist ekki hafa komið neinn
snúningur eða álíka á mjöðmina
við þetta högg. Næstu dagar fara
í það að vinna í þessu. Þetta ætti
að jafna sig og vonandi kemst ég
á lappir sem fyrst. Það er samt
ekki víst að ég spili leikinn gegn
Selfossi,“ sagði Haukur Páll en sá
leikur fer fram á morgun.
Hann viðurkennir að það hafi
verið súrt í broti að þurfa að yfir-
gefa völlinn svo snemma í fyrsta
leik á Íslandsmóti eftir langt und-
irbúningstímabil.
„Þetta var ekki sú byrjun sem
ég var að vonast eftir. Ég hugsaði
um framhaldið á sumrinu eftir
því sem leið á leikinn. Ég vildi
ekki vera að skemma eitthvað
strax með því að þjösnast á þessu.
Fannst skynsamlegra að fara af
velli og eiga möguleika á því að
spila fleiri leiki,“ sagði Haukur og
viðurkenndi að hafa hugsað það
versta er hann meiddist.
„Sjúkraþjálfaranum fannst hafa
komið snúningur á mjöðmina. Svo
kom Björn Zoëga læknir. Hann
sagði að ekkert væri brotið og því
ætti ég að fara inn á aftur og láta
reyna á þetta.“ - hbg
Haukur Páll Sigurðsson meiddist gegn Fram:
Ekki víst að ég spili
með gegn Selfossi
HAUKUR PÁLL Harðjaxlinn í Valsliðinu
þarf líklega að hvíla á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Erlend félög eru farin
að kroppa í landsliðsmarkvörðinn
Aron Rafn Eðvarðsson sem spilar
með Haukum.
Aron Rafn hefur verið að bæta
sig mikið á síðustu árum og átti
frábært tímabil með Haukum.
Hann fékk sitt fyrsta tækifæri
með landsliðinu á EM í janúar og
það vakti athygli erlendra liða á
honum.
„Félag Kristjáns Andrésson-
ar í Svíþjóð, GUIF, var í sam-
bandi við mig eftir EM í Serbíu.
Ég ræddi við þá nokkrum sinnum
en það verður ekkert af því að
ég fari þangað,“ sagði Aron Rafn
sem er nýbúinn að framlengja
við Hauka til eins árs.
Hann mun þurfa að axla enn
meiri ábyrgð næsta vetur þar
sem Birkir Ívar Guðmundsson
hefur lagt skóna á hilluna. - hbg
Aron Rafn Eðvarðsson:
Hafnaði tilboði
frá GUIF
ARON RAFN Er spáð frama á næstu
árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Liverpool - Chelsea 4-1
1-0 Sjálfsmark (20.), 2-0 Jordan Henderson (25.),
3-0 Daniel Agger (28.), 3-1 Ramires (50.), 4-1
Jonjo Shelvey (61.)
STAÐA EFSTU LIÐA
Man. City 37 27 5 5 90-27 86
Man. United 37 27 5 5 88-33 86
Arsenal 37 20 7 10 71-47 67
Tottenham 37 19 9 9 64-41 66
Newcastle 37 19 8 10 55-48 65
Chelsea 37 17 10 10 63-45 61
Everton 37 14 11 12 47-39 53
Liverpool 37 14 10 13 47-39 52
ENSKI Í GÆR
FÓTBOLTI Stjarnan sigraði Val 3-1
í Meistarakeppni kvenna í gær
í hörkuleik. Stjarnan var mun
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik
og komst verðskuldað yfir á loka-
mínútu hálfleiksins með marki
Ashley Bares.
Allt annað var að sjá til Vals í
seinni hálfleik. Dagný Brynjars-
dóttir jafnaði metin á 53. mínútu
og fékk Valur færi til að komast
yfir áður en Stjarnan gerði út um
leikinn með tveimur mörkum á
átta mínútna kafla þegar skammt
var eftir af leiknum. Inga Birna
Friðjónsdóttir kom Stjörnunni í
2-1 en hún lagði upp fyrsta mark-
ið fyrir Bares.
„Það er ljúft að lyfta bikurum
og þeim líður vel hérna,” sagði
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
sem gerði út um leikinn af öryggi
á vítapunktinum þegar tíu mín-
útur voru eftir. -gmi
Meistarakeppni kvenna í gær:
Stjarnan vann
GÓÐAR Í GÆR Ashley Bares og Inga
Birna Friðjónsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN