Fréttablaðið - 25.05.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 25.05.2012, Síða 8
25. maí 2012 FÖSTUDAGUR8 Um 1,3 prósent þeirra sem afstöðu taka segjast myndu kjósa Herdísi Þorgeirsdóttur, en hún naut stuðnings 2,9 prósenta kjós- enda samkvæmt könnuninni í apríl. Um 0,9 prósent styðja Ástþór Magnússon, sem naut stuðnings 1,5 prósenta í apríl. Enginn þeirra sem svöruðu spurningunni sagð- ist styðja Hannes Bjarnason, sem mældist með 0,4 prósenta fylgi í síðustu könnun. Jón Lárusson naut stuðnings 1,2 prósenta í könnun Fréttablaðsins í apríl, en hefur nú dregið sig í hlé. Á þeim mánuði sem liðinn er Stuðningur við áframhald- andi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti for- seta hefur aukist verulega eftir að hann hóf kosninga- baráttu sína í síðustu viku samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðv- ar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar á sama tíma. Aðrir frambjóðendur njóta lítils stuðnings. Umtalsverð breyting hefur orðið á stuðningi við frambjóðendur til embættis forseta Íslands á rúmum mánuði. Þetta sýnir niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gær- kvöldi og fyrrakvöld. Alls sögðust 53,9 prósent þeirra sem afstöðu tóku til einhvers fram- bjóðenda myndu kjósa Ólaf Ragn- ar Grímsson, sitjandi forseta, ef gengið yrði til kosninga nú. Stuðningur við Ólaf hefur auk- ist verulega frá síðustu könnun Fréttablaðsins, sem gerð var dag- ana 11. og 12. apríl. Þá sögðust 46 prósent þeirra sem afstöðu tóku styðja Ólaf til áframhaldandi setu á Bessastöðum. Þóra Arnórsdóttir, sem mældist með svipað fylgi og Ólafur í síð- ustu könnun, mælist nú með stuðn- ing 35,4 prósenta kjósenda. Stuðn- ingur við framboð Þóru hefur dalað frá síðustu könnun, þegar hún naut stuðnings 46,5 prósenta kjósenda. Þegar stuðningur við frambjóð- endur var kannaður í apríl hafði Ólafur Ragnar ekki hafið kosn- ingabaráttu sína. Hún hófst með útvarpsviðtali á Sprengisandi á sunnudaginn fyrir viku, og hefur Ólafur verið áberandi í fjölmiðl- um síðan. Minna hefur farið fyrir Þóru, sem eignaðist stúlku fyrir réttri viku. Tvö í sérflokki Ólafur og Þóra virðast sem fyrr í sérflokki hvað varðar stuðning, og aðrir frambjóðendur standa þeim langt að baki. Um 5,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu til einhvers frambjóðanda í könnun Fréttablaðsins og Stöðv- ar 2 sögðust myndu kjósa Ara Trausta Guðmundsson yrði geng- ið til kosninga nú. Ari Trausti gaf kost á sér eftir að könnun Frétta- blaðsins í apríl var gerð. Andrea J. Ólafsdóttir gaf einn- ig kost á sér eftir að könnunin í apríl var framkvæmd, en nýtur nú stuðnings um 2,7 prósenta sam- kvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. SKOÐANAKÖNNUN Á FYLGI FORSETAFRAMBJÓÐENDA Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is 2,7% 5,3% 0,9% 0,0% 1,3% 53,9% 35,4% 1,5% 0,4% 2,9% 46,0% 46,5% Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn Skoðaðu úrvalið og prufukeyrðu í sýningarsal okkar að Askalind 1, Kópavogi. PIPA R\TBW A • SÍA • 121124 Rafskutlur Vandaðar og kraftmiklar rafskutlur sem henta vel við íslenskar aðstæður. Stuðningur eftir stjórnmálaflokkum ■ Andrea J. Ólafsdóttir ■ Ari Trausti Guðmundsson ■ Ástþór Magnússon ■ Hannes Bjarnason ■ Herdís Þorgeirsdóttir ■ Ólafur Ragnar Grímsson ■ Þóra Arnórsdóttir 0 20 40 60 80 100 54% vilja að Ólafur Ragnar sitji áfram Andrea J. Ólafsdóttir Ari Trausti Guðmundsson Ástþór Magnússon Hannes Bjarnason Herdís Þorgeirsdóttir Ólafur Ragnar Grímsson Þóra Arnórsdóttir % Stuðningur eftir kyni og búsetu 50 40 30 20 10 0 ■ Fylgi ■ Fylgi í apríl ■ Karlar ■ Konur ■ Höfuðborgarsvæðið ■ Landsbyggðin Hringt var í 800 manns miðviku- daginn 23. apríl og fimmtudaginn 24. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og var um lagskipt úrtak að ræða. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvern myndir þú kjósa til embættis forseta Íslands ef gengið yrði til kosninga nú? Alls tóku 79,5 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurn- ingarinnar. Aðferðafræðin Mikill munur er á stuðningi við Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur eftir því hvaða flokk kjósendur segjast myndu kjósa verði gengið til kosninga nú. Áberandi fleiri kjósendur Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins styðja Ólaf á meðan Þóra á mun meiri stuðning meðal stuðningsmanna Samfylk- ingarinnar og Vinstri grænna. Alls segjast 68,2 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins styðja Ólaf Ragnar til áframhaldandi setu á Bessa- stöðum. Rúmur fjórðungur stuðningsmanna flokksins, 25,4 prósent, segist styðja Þóru, og 4,6 prósent Ara Trausta. Færri segjast styðja aðra frambjóð- endur. Heldur lægra hlutfall þeirra sem styðja Framsóknarflokk- inn myndu kjósa Ólaf Ragnar samkvæmt könnuninni, um 61,1 prósent. Um 25,9 prósent segjast myndu kjósa Þóru en 11,1 prósent styðja Ara Trausta. Mikill meirihluti stuðnings- manna Samfylkingarinnar, 67,4 prósent, styðja Þóru Arnórs- dóttur. Um 19,6 prósent þeirra sem kjósa myndu flokkinn styðja Ólaf Ragnar, 6,5 prósent Andreu J. Ólafsdóttur, 4,3 prósent Ástþór Magnússon og 2,2 prósent Ara Trausta. Þóra nýtur einnig stuðnings meirihluta þeirra sem kjósa myndu Vinstri græn yrði gengið til kosninga nú. Um 60 prósent stuðningsfólks flokksins segjast myndu kjósa Þóru yrði kosið í dag, en 23,3 prósent styðja Ólaf Ragnar. Þá styðja 6,7 prósent Ara Trausta og sama hlutfall Herdísi Þorgeirsdóttur. Mikill munur eftir stuðningi við stjórnmálaflokka Lítill munur er á stuðningi við frambjóðendur eftir kynjum, ólíkt því sem kom fram í síðustu könnun Fréttablaðsins, sem gerð var í apríl. Um 53,5 prósent kvenna sem tóku afstöðu styðja Ólaf og 54,4 prósent karla. Þetta er nokkur munur frá því sem var í apríl, þegar 44 prósent kvenna studdi Ólaf en 47,9 prósent karla. Þóra naut umtalsvert meiri stuðnings meðal kvenna í apríl, en sá munur hefur minnkað verulega. Nú segjast 36,8 prósent kvenna styðja Þóru og 34 prósent karla. Í apríl studdu 49,4 prósent kvenna Þóru og 43,7 prósent karla. Ari Trausti Guðmundsson virðist samkvæmt könnuninni njóta heldur meiri stuðnings meðal karla en kvenna. Um 6,6 prósent karla segjast myndu kjósa hann ef gengið yrði til kosninga nú, en um 4,1 prósent kvenna. Munur á stuðningi við frambjóðendur eftir kynjum að hverfa 61,1% 25,9% 25,4% 67,4% 60,0% 68,2% 19,6% 23,3% frá síðustu könnun Fréttablaðsins hefur þeim fækkað verulega sem segjast ekki búnir að ákveða hvern þeir myndu kjósa. Í apríl sögðust um 22,1 prósent ekki hafa gert upp hug sinn, en nú er hlutfallið 14,2 prósent. Framboðsfrestur rennur út í dag og því orðið skýrt hvaða kost- ir verða í boði. Þá styttist í kosn- ingar, sem fara munu fram laugar- daginn 30. júní. Þegar afstaða þeirra sem þátt tóku í könnuninni er skoðuð án frekari vinnslu mælist Ólafur Ragnar með 42,8 prósenta stuðn- ing og Þóra Arnórsdóttir með 28,1 prósent. Um 4,2 prósent styðja Ara Trausta, 2,1 prósent Andreu 1,0 prósent Herdísi, 0,7 prósent Ástþór og enginn Hannes. Þá sögðust um 0,4 prósent styðja einhvern sem ekki hefur gefið kost á sér. Um 3,2 prósent sögðust ekki ætla að kjósa eða ætla að skila auðu, 14,2 pró- sent sögðust óákveðin og 3,1 pró- sent vildi ekki svara spurningunni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.