Fréttablaðið - 25.05.2012, Page 12

Fréttablaðið - 25.05.2012, Page 12
25. maí 2012 FÖSTUDAGUR12 FRÉTTASKÝRING Hvað veldur vandræðum Facebook? Gengi hlutabréfa í Facebook hækk- aði lítillega síðustu tvo daga, eftir hrun fyrstu tvo dagana á markaði, á mánudag og þriðjudag. Bréfin voru fyrst tekin til viðskipta síðasta föstudag. Vegna þess hve mikill vandræða- gangur er orðinn tengdur markaðs- skráningu Facebook er hins vegar vafamál hvor máltæki um að „fall sé fararheill“ geti átt við um bréf fyrirtækisins. Þannig eru tæknileg mistök í upp- lýsingagjöf Nasdaq-kauphallarinn- ar bandarísku á föstudag sögð hafa átt þátt í að fjöldasala brast á bréf félagsins í viðskiptum mánudagsins sem nærri því hafi endað í „áhlaupi“ á bréfin. Um það er fjallað í Daily Mail í Bretlandi í gær að vegna hálftíma tafar sem varð á upphafi viðskipta með bréf Facebook á föstudags- morguninn hafi ekki tekist að ganga frá öllum hlutabréfaviðskiptum sem áttu að eiga sér stað á fyrsta gengi dagsins, 42 dölum á hlut. Kaup- höllin hafi svo á mánudagsmorgun sent frá sér tilkynningu um að fjár- festum, sem vegna þessa hafi ekki tekist að selja bréf sín, yrði bættur skaðinn ef þeir gerðu kröfu um það fyrir hádegi á mánudag. Viðskipta- stöðin CNBC sagði þetta hafa leitt til fjöldasölu fjárfesta sem ætluðu sér að sækja bætur til Nasdaq og ýtt undir verðfall bréfanna. Upphafsraunum Facebook á markaði var þó ekki lokið þarna. Síðla dags á mánudag bárust af því fregnir að fjárfestingarbank- inn Morgan Stanley, sem ábyrgðist skráninguna fyrir Facebook, hafi skömmu fyrir skráninguna endur- skoðað og dregið saman hagnað- arspá Facebook. Þær upplýsing- ar kynnu hins vegar ekki að hafa ratað til allra fjárfesta. Í kjölfarið hefur verðbréfaeftirlitið bandaríska hafið rannsókn á því hvort fjárfest- um kunni að hafa verið mismunað í útboðinu. Í gær höfðaði svo hópur hlut- hafa mál á hendur Facebook, fram- kvæmdastjórn fyrirtækisins og Morgan Stanley. Málið er höfðað fyrir dómstólum í New York, en hluthafahópurinn heldur því fram að útboðsgögn félagsins hafi inni- haldið rangar fullyrðingar og sleppt mikilvægum staðreyndum, svo sem um „mikinn samdrátt í vexti tekna“ sem Facebook hafi gengið í gegnum á sama tíma og félagið var skráð á markað. Þetta segja hluthafarnir að hafi valið þeim skaða. Í tilkynningu frá Facebook í gær er málshöfðunin sögð tilhæfulaus, en Morgan Stanley vildi ekki tjá sig um hana. olikr@frettabladid.is Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook Kærumál streyma inn vegna vandræðagangs við markaðsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á því hvort fjárfestingarbankinn Morgan Stanley hafi mis- munað fjárfestum í hlutafjárútboði og upplýst suma um neikvæða matsskýrslu. Gengi hlutabréfa Facebook hækkaði um 3,2 prósent á hlutabréfamarkaði Nasdaq í Bandaríkjunum á miðvikudag. Gengið fór í rúma 32 Bandaríkjadali, en hækkunin var sú fyrsta eftir fyrstu tvo heilu daga bréfanna á markaði. Hækkun í fyrstu viðskiptum í gær nam svo 1,6 prósentum. Verð bréfanna er engu að síður enn vel undir útboðsgengi þeirra sem var 38 dalir. Við upphaf viðskipta á föstudag var gengi þeirra hins vegar 42,05 dalir og hækkaði í 45 áður en það lækkaði aftur og endaði daginn í 38,23 dölum. Í byrjun vikunnar tók svo við hrun á gengi bréfanna sem í lok dags á þriðjudag höfðu rýrnað um nærri fimmtung. Núna eru þau um 15 prósent- um undir útboðsgenginu. Facebook bréfin hækkuðu um 3 prósent UNDIR SMÁSJÁNNI Almenningshlutafélagið Facebook er nú undir smásjá fjár- málaeftirlits í Bandaríkjunum vegna gruns um að fjárfestum hafi verið mismunað í útboði á bréfum félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • AKUREYRI ellingsen.is PIPA R\TBW A • SÍA • 1123 43 Hjá Ellingsen færðu allt fyrir veiðina. Stangir, hjól og fatnaður í miklu úrvali. Gæðamerki á góðu verði. Faxaflóahafnir sf. Bjóða íbúum Reykjavíkur til göngu- ferðar um Gömlu höfnina í Reykjavík undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar formanns hafnarstjórnar laugardaginn 26. maí 2012. Á undanförnu ári og fram á árið 2012 hefur stýrihópur á vegum Reykjavíkurborgar unnið að rammaskipulagi Gömlu hafnarinnar í Reykjavík í samvinnu við Graeme Massie arkitekta í Skotlandi. NÚ þegar þeirri vinnu er að mestu lokið vill hafnarstjórn gefa almenningi kost á að kynna sér SKIPULAGIÐ OG RÆÐA ÞAÐ. Lagt verður af stað í gönguna frá styttu Ingólfs Arnasonar á Arnarhóli stundvíslega kl 11:00, gengið verður um austur höfnina og út á Grandagarð að Sjóminjasafninu Víkin þar sem formaður mun KYNNA ÞÆR HUGMYNDIR SEM UNNIÐ ER AÐ. PRINSESSA SKÍRÐ Estelle heitir þessi unga manneskja í fangi móður sinnar, Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALÞINGI Allsherjar- og mennta- málanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að undirbúa aðgerðaáætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þá vill nefndin að 50 milljónir fari á fjár- aukalög í heimild fyrir lögreglu til að starfrækja sérstakt rannsóknar- og aðgerðateymi gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali. Björgvin G. Sigurðsson, for- maður nefndarinnar, segir að slíkt teymi hafi gefið góða raun og vilji standi til að halda því áfram. Hann segir tillögur nefndarinnar í góðu samræmi við óskir löggæsluyfir- valda í þessum efnum. „Þetta er líka yfirlýsing um að við tökum þessi mál alvarlega.“ Nefndin lagði tillöguna fram í mars og hefur nú afgreitt hana til annarrar umræðu, en allir nefnd- armenn standa að henni. „Þetta var afgreitt hratt og vel og í mikilli samstöðu og er ástæða til að fagna því, sérstaklega af því að það er mjög mikilvægt að lög- reglunni séu áfram tryggðar fjár- heimildir og aðstaða til að vinna kerfisbundið gegn uppgangi skipu- lagðrar glæpastarfsemi. Hennar gætir víða í samfélaginu eins og við sjáum meðal annars í alvarlegum atburðum innan fangelsa landsins sem utan,“ sagði Björgvin á þingi í gær. - kóp Unnin verði heildstæð áætlun um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi: 50 milljónir gegn glæpastarfsemi Þetta er líka yfirlýsing um að við tökum þessi mál alvarlega BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON HVETTU BARNIÐ TIL AÐ VERA GÆTIÐ ÞEGAR ÞAÐ VEITIR PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR Á NETINU www.saft.is DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjöl- mörg brot. Hann hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi. Maðurinn ók jeppa á útkeyrsluhurðir á Slökkvi- stöð höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð í júní árið 2009. Hann hafði áður hótað að skaða lögreglumenn eða opinbera starfsmenn og reyndi að keyra inn í samskiptamiðstöð lögreglunnar. Lögregla reyndi að stöðva manninn í Skógarhlíð en án árangurs. Hann ók þá á miklum hraða eftir Bústaðavegi og á Snorra- braut, þar sem hann ók á bíl. Hann ók svo áfram að lögreglustöðinni á Hverfisgötu þar sem lögreglubíll keyrði á hann og stöðvaði hann. Maðurinn var sakfelldur fyrir brot gegn vald- stjórninni, tilraun til sérstaklega hættulegrar lík- amsárásar og eignaspjöll. Þá var hann dæmdur fyrir umferðarlagabrot. Maðurinn var undir áhrif- um áfengis og fíkniefna þegar atvikið varð, en hann var einnig dæmdur fyrir önnur fíkniefnalagabrot. Honum var gert að greiða allan sakarkostnað og var sviptur ökuréttindum ævilangt, en héraðsdómur hafði svipt hann ökuréttindum í þrjú ár. - þeb Hæstiréttur staðfestir dóm yfir manni sem ók á slökkvistöð og lögreglustöð: Tilraun til hættulegrar árásar STÖÐVAÐUR Maðurinn var stöðvaður við lögreglustöðina við Hverfisgötu eftir ofsaaksturinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON DANMÖRK Sonur Amagermanns- ins svokallaða, sem var nýlega dæmdur fyrir tvö morð og sex nauðganir, var í gær dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir yfir- hylmingu. Tugir skartgripa, aðallega silf- urhringir, fundust í fórum sonar- ins en gripunum var stolið úr húsi þar sem faðirinn nauðgaði þremur konum árið 1995. Sonurinn neitaði sök. Hann sagðist hafa keypt grip- ina af félaga sínum í Kristjaníu, en hafi þó grunað að um þýfi væri að ræða. - þj Sonur Amagermannsins: Lá á gripum úr nauðgunarmáli

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.