Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 75

Fréttablaðið - 26.05.2012, Page 75
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir26. MAÍ 2012 LAUGARDAGUR 114 Ein þeirra ferðaskrifstofa sem bjóða hópferðir fyrir Íslendinga á fjarlægar slóð- ir er Bjarmaland, ferðaskrifstofa sem skipuleggur ferðir til Rúss- lands og Úsbekistans á þessu ári. Þessi lönd voru Íslendingum lengi lokuð en stutt er síðan þau til- heyrðu Sovétríkjunum sem voru og hétu þar til í lok síðustu aldar. Í f e r ð u n - um t i l Rúss- lands er boðið upp á sigling- ar á skemmti- ferðaskipum, fyrri ferðin er 30. ágúst til 10. september en þá er siglt frá höfuðborginni Moskvu til Pétursborgar. Síðari siglingin er frá Astrakhan-borg við Kaspíahaf til Moskvu, 23. september til 7. október. Í haust, 16. – 30. október, er síðan mikil ævintýraferð til Úsbekistans. Margt framandi og áhugavert er að sjá þarna eystra og blaða- maður sló á þráðinn til Hauks Haukssonar, framkvæmdastjóra Bjarmalands ferðaskrifstofu, en hann bjó lengi á þessum slóð- um. Haukur starfaði meðal ann- ars sem fréttaritari Ríkisútvarps- ins á þeim sögulegu tímum þegar fyrrum heimsveldið Sovétríkin var að leysast upp á tíunda ára- tugnum. „Þetta eru mjög vinsæl- ar og f lottar ferðir,“ segir Hauk- ur. „Um er að ræða stóran pakka þar sem allt er innifalið, þannig að ekki kemur til aukakostnaðar vegna rútuaksturs, leiðsagnar og skoðunarferða.“ Öll þægindi í boði Fram kom í spjalli okkar að siglt er eftir skipaskurðum og á stöðu- vötnum en Rússar nota vatna- leiðirnar í hinu stóra landi mikið, bæði til vöru- og mannflutninga. „Hinar miklu ár í landinu, svo sem Volga, Don og Enisei, eru víðast skipgengar og hafa miklir skipaskurðir verið grafnir til að tengja vatnaleiðirnar en einnig er siglt eftir stöðuvötnunum Onega og Ladoga við Pétursborg en La- doga er stærsta stöðuvatn Evrópu. Í siglingunum eru öll þægindi í boði, allt frá morgunverðarhlað- borði til ýmiss konar skemmti- atriða á kvöldin. Þess á milli er farið í margvíslegar skoðunar- ferðir þar sem menningu og sögu fólksins á viðkomandi svæði eru gerð góð skil en í Rússlandi búa um 120 mismunandi þjóðir með mismunandi tungumál, menn- ingu, trú og þjóðararfleið. Meðal annars er komið til Tatarstan, vel stæðs múslimalýðveldis við Volgu en þar er höfuðborgin Kazan sem hefur tekið miklum framförum á síðustu árum, ekki síst vegna olíu- og gastekna lýðveldisins. Höfuðborg Rússaveldis Moskvu- borg verður skoðuð hátt og lágt en hún er stærsta borg Evrópu með um 12 milljónir íbúa, saga borg- arinnar er einstök allt frá því að væringjar undir forystu Júra, hins langhenta, stofnuðu þar virki og settust að árið 1147. Á sínum tíma var borgin höfuðborg heimsveld- is og ber hún mikil merki þess en arkitektúrinn ber víða merki gríð- arlegs metnaðar og stórhugar. Moskva er nú dýrasta borg heims og er það tengt uppgangi í efna- hagslífi landsins á undanförnum árum og ber borgin þess mikil merki að lífsstandard Moskvu- búa er með því hæsta sem ger- ist. Miklar andstæður eru á milli sveitaþorpa og stórborganna, ekki síst nú þegar efnahagsfram- farir eru sem skyldi í Rússlandi,“ segir Haukur enn fremur. Ný borg daglega „Eftir að siglingin byrjar er komið við í nýrri borg daglega en siglt er á nóttinni, þannig eru fimm borgir eða sveitaþorp heimsótt á leiðinni á milli Moskvu og Pétursborgar.“ Í Astrakhan – Moskvu siglingunni er komið við í níu öðrum borg- um að undantöldum upphafs- og endaborginni, þeirra sögulegust er borgin Volgograd sem betur er þekkt undir sínu gamla nafni Stalíngrad. Þar biðu herir Hitl- ers-Þýskalands alvarlegan ósig- ur fyrir Rauða hernum og þar urðu þáttaskilin í Heimsstyrjöld- inni síðari en mjög litlu munaði að þýsku stríðsvélinni tækist að ýta sovéska hernum ofan í Volgufljót í gríðarlegum bardögum 1942 - ‘43. Hefði það tekist hjá Þjóðverjum liti heimurinn eflaust öðruvísi út í dag en Stalíngrad-orrustan var einn úrslitabardaga í heimsstyrjöldinni síðari. Upphaflega nafn borgar- innar er Tsaritsin en því nafni hét hún á árunum 1589 – 1925 en þá var hún nefnd eftir Kremlarbónd- anum Jósef Stalín. Aðrar borgir á vatnaleiðinni frá Moskvu til Ast- rakhan eru t.d. Samara, Saratov og Kazan. Þægilegur ferðamáti Skipulag siglinganna er með þeim hætti að siglt er á nóttinni en deg- inum er varið í skoðunarferðir og aðra skemmtan, fullt fæði er í veitingasölum skipsins og fjöl- breytt skemmtidagskrá tekur við á kvöldin. Haukur segir þennan ferðamáta mjög þægilegan og að skemmtisigling henti Íslendingum vel á allan máta. Skipin eru af svokallaðri „302 týpu“, lengdin er 130 m, djúprista er um 3 m og farþegafjöldi er 260 manns. Í áhöfn eru rúmlega 100 manns allt frá eldhúsi, þjónum og tónlistarmönnum til skipsstjóra en starfsfólk sér um að öllum líði sem best á meðan á siglingu stendur. Þessi skip henta mjög vel til mannflutninga á hinum miklu vatnaleiðum Rússlands og eru mikið notuð af heimamönn- um, sérstaklega í skemmtiferð- um. Þau eru smíðuð í massavís í Austurríki og Þýskalandi og hafa staðið sig með miklum ágætum. Siglingartíminn er á sumrin frá maí til október en á veturna þegar ár og vötn eru frosin eru skipin í þurrkví. Spennandi ferðir um Rússland og Úsbekistan Talsverð breyting hefur orðið á ferðavenjum Íslendinga á síðari árum en framboð á ferðum til fjarlægra landa eykst stöðugt á kostnað sólarlandaferða. Þannig kjósa stöðugt fleiri Íslendingar að skoða fjarlægar borgir og lönd í menningar- og söguferðum í stað þess að flatmaga á sólarströndum Suður-Evrópu. Ferðaskrifstofan Bjarmaland býður nú óvenjulegar ferðir á framandi staði. Haukur Hauksson framkvæmdastjóri Bjarmalands. Eitt af þeim skipum sem siglt er á í ferðunum. Moska í Búkhara. BJARMALAND FERÐASKRIFSTOFA Nánari upplýsingar um ferðirnar má nálgast á heimsíðunni www.bjarmaland.is eða með því að senda tölvupóst á bjarmaland@bjarmaland.is Síminn er 770 5060 Bjarmaland er á Facebook. Kynningarfundur um ferðirnar verður laugardaginn, 9. júní kl. 15:00 í MÍR salnum (Menn- ingartengsl Íslands og Rússlands) Hverfisgötu 105, Reykjavík. 7 Frá Moskvu. Borgarvirkið í Kazan Registan torg í Samarkand. Úsbeki hvílir sig í sólinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.