Fréttablaðið - 01.06.2012, Page 2
1. júní 2012 FÖSTUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
DANMÖRK Ef bandaríska leyni-
þjónustan, CIA, vill láta fljúga
með fanga í danskri eða græn-
lenskri lofthelgi þarf hún að
biðja um leyfi áður. Utanríkis-
ráðherra Danmerkur, Villy Søvn-
dal, sagði í gær að loknum fundi
með Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, að hún
hefði fullvissað hann um að CIA
myndi framvegis spyrja um leyfi
vegna fangaflutninga.
Samkvæmt frétt Jyllands-Post-
en lýsti formaður grænlensku
landsstjórnarinnar, Kuupik
Kleist, yfir ánægju sinni með að
Bandaríkjamenn hygðust standa
við fyrirheit sín frá 2008. - ibs
Flutningar á föngum:
CIA þarf leyfi
frá Dönum
STJÓRNSÝSLA Fjölmiðlanefnd hefur
ekki heimild til að grípa til við-
urlaga vegna þeirrar ákvörðun-
ar Stöðvar 2 að bjóða aðeins Ólafi
Ragnari Grímssyni og Þóru Arn-
órsdóttur að taka þátt í umræðu-
þætti á sunnudag. Nefndin
hefur ekki heldur heimild til að
gefa fjölmiðlaveitum fyrirmæli
um hvernig umfjöllun þeirra í
aðdraganda kosninga skuli hátt-
að. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá nefndinni.
Þingmenn Hreyfingarinnar
höfðu sent fjölmiðlanefnd erindi
vegna ákvörðunar Stöðvar 2. Þá
höfðu fram-
bjóðendur gert
athugasemdir
við fyrirkomu-
lagið.
Vísað hefur
verið í 26. grein
fjölmiðlalag-
anna, þar sem
kemur fram að
fjölmiðlaveitur
eigi að halda í
heiðri lýðræðislegar grundvallar-
reglur. Þá eigi þær að gæta þess
að uppfylla kröfur um hlutlægni
og nákvæmni í umfjöllun sinni
um fréttir og fréttatengt efni og
gæta þess að mismunandi sjónar-
mið komi fram.
Fjölmiðlanefnd segir í tilkynn-
ingu sinni að hvað sem úrræðum
nefndarinnar líði standi þessi
grein eftir sem stefnuyfirlýsing
sem fjölmiðlaveitum beri að hafa
í heiðri. Nefndin hvetur til þess
að þær hugmyndir sem búi að
baki þessari grein laganna verði
hafðar í huga á næstu vikum og
gætt verði að því að sjónarmið
allra forsetaframbjóðenda fái að
koma fram.
- þeb
Stöð 2 hefur verið gagnrýnd fyrir að bjóða aðeins tveimur frambjóðendum:
Fjölmiðlanefnd aðhefst ekki
ELFA ÝR
GYLFADÓTTIR
EFNAHAGSMÁL Þrotabú Landsbank-
ans á 122 milljarða króna umfram
forgangskröfur, sem nema 1.323
milljörðum króna. Þetta kom fram
á kröfuhafafundi sem haldinn var í
gærmorgun. Þar kynnti slitastjórn
bankans kröfuhöfum stöðu eigna-
safns hans í lok fyrsta ársfjórð-
ungs 2012. Matið miðast við gengi
íslensku krónunnar 22. apríl 2009.
Í kynningunni kom einnig fram
að raunaukning á virði eigna bús-
ins hafi verið tæpir 77 milljarðar
króna frá lokum árs 2011. Sé veik-
ing krónunnar gagnvart helstu
gjaldmiðlum heims tekin með í
reikninginn nemur aukningin á
þessu þriggja mánaða tímabili 117
milljörðum króna.
Virðisaukning eigna þrotabús
Landsbankans er að langmestu
leyti tilkomin vegna sölunnar
á Iceland Foods sem fór fram í
febrúar síðastliðnum. Þá seldi
Landsbankinn 67,5 prósenta hlut
sinn til Malcolms Walker og hóps
meðfjárfesta á um 1.050 milljónir
punda, um 212 milljarða króna á
gengi dagsins í dag. Landsbank-
inn lánaði kaupendunum um 50
milljarða króna af kaupverðinu.
Fram að sölunni hafði Landsbank-
inn bókfært hlutinn um 33 prósent
undir því verði sem fékkst á end-
anum fyrir hann. Eftir söluna juk-
ust endurheimtur bankans því um
70 milljarða króna.
Auk þess var tilkynnt að slita-
stjórn hefði í lok maí greitt út
hlutagreiðslu til forgangskröfu-
hafa í annað sinn. Í þetta sinn-
ið voru um 162 milljarðar króna
greiddir út. Áður hafði þrotabúið
greitt út 432 milljarða króna í
byrjun desember síðastliðins og
því hefur slitastjórnin samtals
Búið að borga um
helming af Icesave
Þrotabú Landsbankans á 122 milljarða króna umfram forgangskröfur. Búið
greiddi út aðra hlutagreiðslu til kröfuhafa í þessari viku. Þeir hafa nú fengið til
baka 43 prósent af kröfum sínum. Forgangskröfur eru nánast allar vegna Icesave.
SLITASTJÓRN Eignir þrotabús Landsbankans jukust um 77 milljarða króna að
raunvirði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Helsta ástæða þess var salan á Iceland
Foods. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNING Mennta- og menningar-
málaráðuneytið ætlar að láta
gera stjórnsýsluúttekt á stöðu
og þróun fornleifarannsókna á
Íslandi á árunum 1990 til 2010.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
kemur fram að það telji ástæðu
til að líta yfir farinn veg og kort-
leggja stöðu fornleifarannsókna
á Íslandi. Þetta er gert í tilefni
af frumvarpi til laga um menn-
ingarminjar, og þeim breytingum
sem vænta má í kjölfarið á setn-
ingu nýrra laga.
Brynja Björk Birgisdóttir forn-
leifafræðingur mun gera úttekt-
ina. - þeb
Stjórnsýsluúttekt gerð:
Skoða stöðu
fornleifa hér
Á fundinum kom fram að þrotabú Landsbankans hefði höfðað nokkra tugi
riftunarmála fyrir íslenskum dómstólum. Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsbankans, segir flest þeirra vera vegna skuldabréfa. Hann vildi
ekki segja hversu háar upphæðir væru undir í málunum sem hafa verið
höfðuð. Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að slitastjórn Glitnis hafi höfðað
tæplega 20 riftunarmál, sem snúast um 20 milljarða, vegna gerninga sem
áttu sér stað síðustu sex mánuðina áður en bankinn féll.
Höfða nokkra tugi riftunarmála
greitt út jafnvirði rúmlega 594
milljarða króna. Það eru um 43
prósent af öllum forgangskröfum í
búið. Langstærstur hluti greiðsln-
anna rennur til tryggingasjóða
innstæðueigenda í Hollandi og
Bretlandi vegna Icesave-málsins.
Samþykktar forgangskröfur í
bú bankans nema 1.323 milljörð-
um króna. Kröfur tryggingasjóða
innstæðueigenda í Hollandi og
Bretlandi nema um 86 prósent-
um af öllum forgangskröfum. Af
þeirri upphæð er Tryggingasjóð-
ur innstæðueigenda á Íslandi í
ábyrgð fyrir 674 milljörðum, eða
um helmingi allra samþykktra
forgangskrafna vegna trygging-
ar á lágmarksinnstæðum upp að
20.887 evrum. thordur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Húmanistaflokkur-
inn kynnti stefnumál sín á blaða-
mannafundi í gær, en flokkurinn
hyggst bjóða fram í öllum kjör-
dæmum landsins til næstu Alþing-
iskosninga. Eitt helsta stefnumál
flokksins eru lýðræðisumbætur. Þá
vilja Húmanistar að fjármálakerf-
ið verði undir stjórn ríkisins ásamt
því að ríkið ákvarði magn peninga
í umferð.
„Ég held að hrunið og sú stefna
sem hefur verið hér í gangi undan-
farin ár hafi ekki staðið undir vænt-
ingum. Það hefur orsakað að fólk er
orðið mjög opið fyrir öðru,“ sagði
Júlíus Valdimarsson, einn forsvars-
manna flokksins. - ktg
Húmanistaflokkurinn:
Vilja gjörbreyta
samfélaginu
Linda, var þetta ekki bara
„jätte bra“?
„Bra? Er það ekki brjóstahaldari? Jú,
ég var í einum slíkum í þættinum.“
Dansarinn Linda Ósk Valdimarsdóttir
tók þátt í sænskum hæfileikaþætti á
dögunum. Hún er ekki sem sleipust í
sænskunni og segist ekki hafa skilið orð
af því sem dómararnir sögðu við hana.
FAMBOÐIÐ KYNNT Húmanistar kynntu
framboð sitt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Tíu prósenta niður-
færsla allra húsnæðislána myndi
kosta 124 milljarða króna og 25
prósenta niðurfærsla kostaði 310
milljarða. Stærstur hluti kostn-
aðarins myndi falla á Íbúðalána-
sjóð, eða 67 til 167 milljarðar
eftir atvikum. Þá myndu innláns-
stofnanir bera 40 til 99 milljarða
kostnað og lífeyrissjóðirnir 18 til
44 milljarða.
Þetta kemur fram í skýrslu um
áhrif lækkunar höfuðstóls hús-
næðislána, sem fjármálaráðu-
neytið lét vinna eftir að Guð-
laugur Þór Þórðarson og fleiri
Alþingismenn óskuðu eftir
skýrslu frá fjármálaráðherra um
málið. Sveinn Agnarsson og Sig-
urður Jóhannesson hjá Hagfræði-
stofnun HÍ og Benedikt Jóhann-
esson tryggingastærðfræðingur
unnu skýrsluna.
Lækkun höfuðstóls húsnæðis-
lána um tíu til 25 prósent hefði
veruleg áhrif á hagkerfið í heild.
Umtalsverðum hluta af húsnæðis-
skuldum landsmanna yrði létt af
húseigendum á kostnað eigenda
fjármálastofnana, sem eru fyrst
og fremst hið opinbera, eigendur
lífeyrisréttinda og eigendur bank-
anna. Ríki og sveitarfélög myndu
bera að minnsta kosti 70 prósent
af kostnaðinum og einungis yrði
því um tilfærslu á verðmætum að
ræða.
Kostnaður hins opinbera af
lækkun höfuðstóls húsnæðislána
yrði á bilinu ellefu til 41 prósent
af útgjöldum ársins 2011. - þeb
Niðurfærsla allra húsnæðislána kæmi að stærstum hluta niður á ríkinu:
Myndi kosta hundruð milljarða
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Samkvæmt skýrsl-
unni myndi stærstur hluti kostnaðar
falla á Íbúðalánasjóð, eða 67 til 167
milljarðar króna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUR Fyrsta flug íslenska
lággjaldaflugfélagsins Wow Air
fór í loftið rétt fyrir hádegi í gær.
Fluginu seinkaði um 45 mínútur.
Fyrsta flugið var til Parísar og
að sögn Skúla Mogensen stjórnar-
formanns var vélin nánast full.
Fyrir rúmri viku hafði félagið
sem á að þjónusta flugfélagið í
Leifsstöð ekki uppfyllt tilskilin
leyfi fyrir innritun farþega. Málið
leystist þó og að sögn Skúla hélt
botnlaus vinna síðustu mánaða
áfram fram á síðustu stundu.
- þeb
Flugu til Parísar um hádegi:
Fyrsta flug
Wow Air
NEYTENDUR Salmonella hefur
greinst í túrmerikkryddi (Tur-
merick Powder) með vörumerk-
inu TRS, að því er kemur fram á
vef Matvælastofnunar.
Dreifingaraðili á Íslandi, Viet-
nam Market á Suðurlandsbraut 6,
hefur í samráði við Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkur ákveðið að
innkalla vöruna, sem er í plast-
pokum, af markaði.
Viðskiptavinir sem keypt hafa
vöruna eru beðnir um að farga
henni eða hafa samband við Viet-
nam Market.
Matvælastofnun barst tilkynn-
ing um örverumengunina í gegn-
um hraðviðvörunarkerfi Evrópu.
- ibs
Krydd innkallað:
Salmonella í
túrmerikkryddi
Tóbak drepur milljarð
Ban Ki-moon framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna sagði í gær,
á reyklausa deginum, að tóbak geti
valdið dauða eins milljarðs manna
fyrir lok þessarar aldar. Hann sakaði
tóbaksiðnaðinn um herskáa and-
stöðu við aðgerðir gegn tóbaksneyslu.
HEILBRIGÐISMÁL